Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Natan um ESB: „Við ákvörðunarborðið mun Ísland eiga sæti og vera með vægi langt umfram stærð“

Natan Kolbeinsson.
Natan Kol­beins­son.

Natan Kolbeinsson, formaður Viðreisnar í Reykjavík, skrifar grein sem ber yfir­skriftina:

Rykið dustað af gömlum frösum.

Hefst svona:

„Þann 13. mars skrifaði 6. þingmaður Reykavíkurkjördæmis norður pistil þar sem hún þakkaði mér fyrir að dusta rykið af gömlum ESB greinum frá henni. Staðreyndin er samt sú að þrátt fyrir að andstæðingar aðildar hér á Íslandi halda ennþá fast í gamla orðræðu og gömul rök þá hefur Evrópu­sambandið gengið í gegnum miklar breytingar frá því aðildar­viðræður fóru síðast fram.“

Natan segir að „í grein sinni fer þing­maðurinn um víðan völl og skrifar meðal annars um að engin þörf sé á að ræða þjóðar­atkvæði um aðildar­viðræður þar sem við kusum til Alþingis fyrir minna en tveimur árum. Lýðræðið innan ESB Evrópu­sambandið er langt um lýðræðislegasta alþjóða­samstarf mannkyns­sögunnar enda er þar þing kosið í almennum kosningum, framkvæmda­stjórn sem starfar í umboði þingsins og ráðherraráð myndað af lýðræðis­lega kjörnum fulltrúum allra aðildar­ríkja.

Það er rétt sem þing­maðurinn segir að innan ráðherra­ráðsins þurfa margir mála­flokkar ekki einróma samþykki og þar ræður íbúa­fjöldi vissulega hvernig kosningar fara. Í sjávar­útvegs og orkumálum, sem hún nefnir sérstak­lega, þarf aukinn meirihluta fyrir samþykki. Sá meirihluti þarf að koma frá 55% aðildar­ríkja með 65% íbúa á bak við sig. Ótti hennar við það að lítil hópur stórra ríkja ráði þarna öllu er því algjör­lega óþarfur.“

Segir einnig að „Evrópu­þingið sem kosið er í almennum kosningum myndi tryggja okkur 6 þingmenn á þinginu. Það gerir 1 þingmann fyrir hverja 42.431 kjósenda á Íslandi en til saman­burðar er Þýskaland með einn þingmann fyrir hverja 637.303 kjósendur svo við Íslendingar verðum með þingmanna­fjölda lang umfram íbúa­fjölda. Þar að auki mun Ísland fá eitt sæti í framkvæmda­stjórn ESB sem er sami fjöldi og öll önnur aðildar­ríki fá. Ísland mun því hafa fulltrúa á öllum stigum og gott betur en það.“

Natan bendir á að „lítil ríki hafa líka fengið stór og valda­mikil embætti innan sambandsins. Þar má til að mynda nefna forseta Evrópu­þingsins, Roberta Metsola, sem kemur frá Möltu sem er í dag minnsta aðildar­ríki ESB.

Við ákvörðunar­borðið mun Ísland eiga sæti og vera með vægi langt umfram stærð. Við myndum ekki lengur standa frammi á gangi á meðan ákvarðanir um okkar hagsmuni eru teknar. Það þarf því enginn að óttast samstarfs­samning ríkis­stjórnar Þýska­lands, líkt og þing­maðurinn minntist á. Þótt Þýskaland sé stórt þá ræður það ekki eitt síns liðs hvert sambandið stefnir.“

Þetta segir Natan að endingu:

„Fyrir einu og hálfu ári gegnum við til kosninga. Kosningar sem snerust um covid-aðgerðir, skulda­söfnun ríkis­sjóðs í landi tæki­færanna, að það skiptir máli hverjir stjórna og nokkra fleiri hluti. Málefni sem var lítið sem ekkert rætt var möguleg aðild Íslands að Evrópu­sambandinu.

Ég er sammála hátt­virtum þingmanni að Evrópu­málin eru mikilvæg en þau eru ekki það eina sem ræður atkvæðum kjósenda. Að nota þing­kosningar sem mæli­kvarða fyrir því hvort Ísland vilji í ESB eða ekki er ofur­einföldun á myndinni.

Evrópu­sinnar óttast ekki umræðuna sagði ég í grein minni í síðustu viku og Evrópu­sinnar óttast ekki heldur að þjóðin fái að kjósa. Eina leiðin til að komast að því hvort hagsmunum okkar sé best borgið utan sambandsins eða innan er að þjóðin fái kjósa um aðildar­viðræður. Ef þjóðin vill leyfa okkur að klára viðræðurnar þá getum við komist að því hvað okkur stendur nákvæmlega til boða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim