Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Tveir starfsmenn Fox-fréttastofunnar létust á Þorláksmessu: „Hann elskaði vinnuna sína“

Tveir starfs­menn Fox-frétta­stof­unnar lét­ust rétt fyrir jól.

Frétta­mað­ur­inn Matt Napolitano og rekstr­ar­stjóri Chicago-deildar Fox, Adam Petlin lét­ust báðir rétt fyrir jóla­há­tíð­ina.

Eig­in­maður Napolitano, Ricky Whitcomb stað­festi sorg­ar­frétt­irnar um að and­lát hins 33 ára Matt, þann 23. des­em­ber.

„Það er með miklum trega sem ég deili með ykkur að eig­in­maður minn hafi lát­ist í gær­morgun,“ skrif­aði Whitcomb á aðfanga­dag á X (áður Twitter). „Hann elskaði vinn­una sína og elskaði að færa ykkur fréttir í útvarpi og sjón­varpi.“

Whitcomb bætti við að Napolitano hafi „greinst með sjálfsof­næm­is­sjúk­dóm fyrir næstum 20 árum og lést vegna sýk­ingar.“

Í kjöl­far fregna af and­lát­inu dásam­aði Suzanne Scott, For­stjóri Fox News Media, fram­lag Napolitano til frétta­mið­ils­ins. „Matt gerði allt, hann var frétta­þulur, hann skrif­aði og fram­leiddi fyrir hljóð­mið­il­inn. Og elskaði að geta unnið í fjöl­miðla­brans­anum sem hann þjálf­aði fyrir alla ævi sína.“

Petlin, 58 ára, hafði unnið hjá Fox í nærri þrjá ára­tugi og var einn af þeim fyrstu sem ráð­inn var á stöð­ina 1996. Hann lést einnig 23. des­em­ber, eftir langvar­andi veik­indi, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá Fox.

„Hann var mik­il­vægur partur af sviðs og fram­leiðsluteym­is­ins og hæfi­leik­a­ríkur sjón­varps­ljós­mynd­ari,“ skrif­aði Scott í til­kynn­ingu frá frétta­stöð­inni. „Adam var líka mik­ils met­inn af fjöl­mörgum frétta­rit­urum og frétta­þulum sem voru svo heppnir að hafa verið á staðnum með honum í næstum öllum helstu fréttum síð­ast­liðin 27 árin.“

Petlin lætur eftir sig eig­in­kon­una Lauren, 18 ára dótt­ur­ina Ava og 14 ára son­inn Luca.

Eonline sagði frá and­lát­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Upptökurnar eru frá Mið-Austurlöndum og ná yfir árin 2020 til 2026. Varnarmálaráðuneytið segir enn óljóst hvað þær sýni.
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

„Við erum að skapa framandi verur“

Pólland rann­sakar óþekktan hlut sem féll úr lofti

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest