Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Barnfóstra John Stamos misnotaði hann í æsku: „Ég pakkaði því niður eins og fólk gerir“

John Stamos opnar sig upp á gátt í endurminningarbók sinni sem kemur út á næstunni. Bókin heitir If You Would Have Told Me en sennilega er mesta uppljóstrunin í bókinni, kaflinn þar sem hann lýsir kynferðislegri misnotkun sem hann varð fyrir í æsku.

Í bókinni segir leikarinn góðkunni frá því er hann var beittur kynferðis­legu ofbeldi af barn­fóstru þegar hann var krakki. Stamos opnaði sig um misnotkunina í viðtalið við People í gær en þar sagði hann að það hefði þurft bók til þess að hann áttaði sig á hversu óviðeigandi meint hegðun kvenkyns barn­fóstru hans var.

„Ég meina, ég vissi, þetta var alltaf á bakvið eyrun, og ég held mikið upp vörnum fyrir fórnar­lömbum. Mér leið eins og ég mundi það örlítið. Það hefur alltaf verið til staðar, en ég pakkaði því niður eins og fólk gerir, ekki satt?“

Þegar brotin áttu sér stað, sagði Full House-stjarnan ekki neinum frá hvað gerðist en sagði sjálfum sér þess í stað: „Æ, svona eru stelpur, gaur.“

„Þetta var eins og þú værir að þykjast vera dauður svo þær myndu hætta. En þetta var ekki algjör­lega aggresívt. Ég veit ekki, þetta var ekki gott.“

Stamos hafðu áður ætlað að tala um misnotkunina en það var þegar hann átti að halda þakkar­ræðu fyrir verðlaun sem hann hlaut fyrir vinnu sína fyrir misnotuð börn. En hann hætti við þegar hann var að skrifa ræðuna. „Ég byrjaði að skrifa þetta, og það var þá sem þetta kom allt út.“ En svo áttaði hann sig á því að þetta væri ekki réttur tíminn til að segja frá þessu. „En svo hugsaði ég, „Nei, kvöldið snýst ekki um mig. Það snýst um börnin. Ég ætla að pakka því niður aftur og velja betri tíma til að segja frá þessu“.“

Bætti hann við: „Ég vildi ekki að fyrir­sagnirnar yrðu um þetta, og ég vildi ekki að bókin yrði bara um þetta. Þetta er kannski blaðsíða eða eitthvað, en ég fannst ég þurfa að tala um þetta. Þetta var skrítið. Þetta er eitthvað sem gerðist þegar ég var, minnir mig, ég var sennilega 10, 11 ára þegar þetta gerðist. Ég hefði ekki átt að þurfa að takast á við þessar tilfinningar.“

Ein af ástæðunum sem Stamos stígur fram nú er sú að hann er nú faðir fimm ára drengs, Billy, sem hann á með eiginkonu sinni Caitlin McHugh Stamos. „En ég skal segja þér það, að ef ég kæmist að því að einhver væri að gera þetta við son minn, þá væri það allt annað mál.“

Bókin segir Stamos, breyttist úr því að verða „hetjusaga“, eins og hún átti að vera, yfir í að verða „mannleg saga“, en hann bætti við að það hafi verið „erfitt að vera 100 prósent hrein­skilinn“ í byrjun. Bókin kemur út þann 24. október.

Fréttin er unnin upp úr frétt Perez Hilton.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Slysið varð aðfaranótt sunnudags á blautum vegi við Flúðir.
Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Stefnir í rólegt stuð

Dóttir.x tilnefnd til Music Moves Europe-verð­launanna 2027