Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Geir Ólafsson: „Þunglyndi og kvíði er bara ömurlegur sjúkdómur“

Geir Ólafsson
Geir Ólafsson

„Við erum með tvö lög sem þeir hafa áhuga á að gefa út í Kólumbíu fyrir kólumbínskan markað og við unnum þau hérna í Kólumbíu. Þessi tónlist hefur fengið góða dóma og menn eru hrifnir af þessu og kveikja á perunni varðandi það að þetta gæti náð langt. Ég ætlast ekki til neins og er miklu frekar að vinna þetta af ástríðu heldur en einhverri hugmynda­fræði um það hvað þetta gæti verið; þetta verður bara það sem verður,“ segir Geir Ólafsson sem flutti fyrr á þessu ári til Kólumbíu ásamt kólumbískri eiginkonu sinni, Adriana Patricia Sanchez Krieger, og sex ára gamalli dóttur þeirra, Önnu Rós.

Geir samdi annnað lagið, She’s My Whole World, sem er tileiknað Adriana. Textinn er eftir Terry Knudsen. Richard Scobie samdi hitti lagið, All That I Wish For, og er textinn einnig eftir hann. Lögin eru fleiri og koma þau öll síðar út á geisla­diski. „Það eru bara þessi tvö lög sem við erum að leggja áherslu á hér.“ Hér á Íslandi er Geir í samvinnu við Óttar Felix Hauksson. „Ég er mjög ánægður og stoltur yfir því verkefni. Ég er stoltur yfir því að ég sé að koma með músík eftir mig sjálfan og að hún sé að fá góða dóma. Mér finnst það bara ótrúlega magnað.“

Upptöku­stjórinn fyrr­nefndu laganna tveggja er Harbey Marin Martinez sem hlotið hefur Grammy-verðlaun í Suður-Ameríku og voru lögin hljóð­blönduð þar. Önnur lög voru tekin upp á Íslandi og var upptöku­stjórinn Vilhjálmur Guðjónsson. Undir­leikurinn var tekinn upp í Los Angeles.

Ég er með algjör­lega heimsklassa hljóð­færa­leik­ara.

Það er fleira fram undan hjá Geir en í desember heldur hann sína árlegu jóla­tónleika hér á landi, Las Vegas Christmas Show, sem haldnir verða í Gamla Bíói 1., 2., 3. og 4. desember. Þetta verður sjöunda árið í röð sem tónleikarnir verða haldnir. Don Randi, sem starfað hefur með stór­stjörnum í Banda­ríkjunum svo sem Frank Sinatra og Barbara Streisand, mætir enn eitt árið með stórsveit sína. „Þarna verður þriggja rétta galadinner, rosalega flott skreyttur salur og heims­klassa hljóðfæra­leikarar. Þetta er orðið svakalega rútínerað og ég er með frábært fólk. Ég er með algjör­lega heims­klassa hljóðfæra­leikara. Ég er með Vilhjálm Guðjónsson, Þóri Baldursson, Birgi Nielsen, Heimi Inga Guðmundsson og Ástvald Þrastason og svo er ég með sjö gæja frá Ameríku. Þetta er nátt­úrlega svakalegt band. Þetta er æðislegt band. Þessu fylgir mikil vinna og yfirlega. Ég er ekki með nein stór­fyrirtæki sem kaupa 500 miða. Ég þarf að hafa fyrir þessu sjálfur og ég er bara ánægður með það. Og orðið á götunni um þessa sýningu er gott og ég hef heyrt fólk sem hefur farið á sýninguna segja að það vilji fara aftur. Þetta er aldrei eins. Við erum aldrei með sömu músíkina nema að litlum hluta af því að það eru ákveðin lög sem ganga alltaf vel í fólk. Það er gaman að vinna með Don Randi sem spilaði inn á allt hjá The Beach Boys, Elvis Presley og Frank Sinatra. Fólk gerir sér ekkert grein fyrir því þegar það mætir hverjir eru á sviðinu að spila fyrir það. Þetta er ótrúlega gaman.“ Hér má sjá viðburðinn.

Geir segir að tónlistin sé Guðs gjöf. „Þegar maður er í tónlist þá verður maður að þakka Guði fyrir þessa frábæru gjöf og þakka honum fyrir að hafa gefið sér hæfileika til þess að geta sinnt henni.“

Kom að lokuðum dyrum

Geir flutti tíma­bundið til Kólumbíu ásamt fjöl­skyldu sinni fyrr á þessu ári þar sem eiginkona hans fékk ekki starf við hæfi á Íslandi þar sem þau bjuggu saman um árabil en Adriana sagði sögu sína í viðtali við Mannlíf fyrr á þessu ári. Þar segir meðal annars: „Mér var sagt að hér á landi fengi fólk frá heima­landi mínu vinnu við þrif eða við að gæta barna,“ segir Adriana Patricia Sanchez Krieger, efnahags- og markaðs­fræðingur, um reynslu sína af því að fara í atvinnu­viðtal hjá ráðgjafa­fyrirtæki sem var eitt það stærsta hér á landi en hún vildi fá starf miðað við menntun sína og reynslu hér á landi; þess má geta að hún stundaði háskólanám í heima­landi sínu, Kólumbíu, og einnig í Mexíkó og Banda­ríkjunum. Hún hafði áður komið að lokuðum dyrum hjá stór­fyrirtækjum hér á landi eftir að hafa farið í fjölda atvinnu­viðtala.“

Adriana er með margra ára reynslu úr alþjóð­legum viðskipta­heimi og vann til dæmis sem yfirmaður markaðs­mála hjá Santander-bankanum bæði í Suður-Ameríku og á Spáni. Hún gafst upp á atvinnu­leitinni á Íslandi og fékk í fyrra starf sem framkvæmda­stjóri markaðs­mála hjá VISA í fjórum löndum í Suður-Ameríku og býr fjöl­skyldan nú í Bogotá. Geir nefnir að yfirmenn VISA á alþjoðavísu hafi valið Adriana ásamt fleirum til að fara á vegum VISA til Katar síðar á þessu ári þegar heims­meistara­mótið í fótbolta verður haldið þar en VISA er aðal­styrktar­aðili þess.

Ég skamm­ast mín fyrir mót­tök­urnar sem hún fékk á Íslandi.

„Þetta er fyrir neðan allar hellur í samfélagi okkar,“ segir Geir um móttöku íslenskra atvinnu­rekenda þegar Adriana sótti um fjölda starfa hér á landi. „Það er fullt af fólki sem hefur ótrúlega hæfileika sem getur látið samfélag okkar blómstra enn meira en fær ekki tækifæri til þess vegna þess að það eru einhverjir aðilar með minni­máttarkennd í einhverjum stöðum sem geta komið í veg fyrir það. Þetta gengur ekki. Adriana er heims­þekkt í sínu starfi fyrir dugnað og fyrir það að vera frjó í starfi og hugsun. Það fer ekkert nema gott orð af henni. Hún er vel metin í öllum löndum í Suður-Ameríku sem eru hjá VISA. Öllum. Ég skammast mín fyrir móttökurnar sem hún fékk á Íslandi; að þetta skuli vera til í mínu samfélagi. Í landi sem ég hef alla tíð elskað og virt; að það skuli taka þátt í svona. Að þetta skuli vera til í okkur.“

Geir segir að ástæðuna megi rekja til fámennisins á Íslandi. „Við erum í sjálfu sér ekki þjóðfélag. Við erum ættbálkur og það sést bara best á því hvernig við störfum og hvernig hlutirnir ganga fyrir sig á Íslandi. Ef við ætlum að vera þjóðfélag þá þurfum við að koma með nýja stjórnar­skrá og við þurfum að fara að segja skilið við eitthvað sem við erum búin að venja okkur á og temja okkur í gegnum áratugi og aldir. Við þurfum samfélag sem fúnkerar og segja skilið við ættbálkana. Og fólkið í landinu á að eiga landið en ekki einhverjir örfáir aðilar sem eru gjör­samlega að eyði­leggja allt fyrir öllum.“

Ísland er í fram­tíð­arplönum okkar sem fjöl­skyldu.

Geir segir að fjöl­skyldan sé ekki alflutt frá Íslandi. „Við verðum hérna í smátíma og ég fer nátt­úrlega fram og til baka. En við tökum bara einn dag í einu. Við eigum íbúðina okkar á Íslandi og Ísland er í framtíðar­plönum okkar sem fjöl­skyldu. Yfirmenn VISA vilja nú helst að fólk vinni heima og mæti á skrif­stofuna kannski tvisvar í viku. Adriana var tjáð um daginn að hún mætti vinna hvar sem hún byggi en akkúrat í augna­blikinu er hún að vinna að ákveðnu verkefni sem felur í sér að hún þarf að ferðast á milli Kólumbíu og annarra landa í Suður-Ameríku og þar af leiðandi ákváðum við að hún myndi vera hér á meðan þetta varir.“

Fatlaðir að betla

Talið berst að fátæktinni í Kólumbíu.

„Hjón með lítið barn stóðu nýlega fyrir utan húsið sem við búum í og kallaði maðurinn að hann þyrfti hjálp vegna þess að þau ættu ekki heimili, væru fátæk og ættu lítið barn sem þyrfti að fá að borða. Hann kallaði að þau þyrftu að sofa einhvers staðar um nóttina.“

Þögn.

„Það eru svona hlutir sem eru til og þetta sér maður hérna því miður. Þegar maður er að keyra og stoppar á rauðu ljósi þá koma til dæmis rosalega færir listamenn og sýna list sína og afla sér þannig tekna og svo kemur fólk sem er blint, er í hjólastól eða sem vantar hendurnar á; þetta er nátt­úrlega ógeðslegt og það er ömurlegt að vita að þetta sé í samfélögum hvort sem það er hér eða einhvers staðar annars staðar.“

Geir segir að þrátt fyrir ástandið í landinu sé læknis­þjónusta almennt góð í Kólumbíu og að hún sé í 22. sæti yfir bestu heilbrigðis­kerfi í heiminum. „Hérna eru frábærir læknar og hjúkrunar­fólk alveg eins og heima en hérna er prótókól í kringum það sem virkar miklu betur. Ég fór í flensu­sprautu um daginn og þurfti ekki að borga krónu fyrir það vegna þess að það er almanna­heill að fólki líði vel. Og þetta er hvatning fyrir það að mæta í bólu­setningu til þess að koma í veg fyrir að fólk veikist.“

Það eru spít­alar fyrir börn fátæk­linga.

Geir segir að þetta bjóðist öllum lands­mönnum. „Fátækt fólk getur allt leitað til læknis og fengið heilbrigðis­hjálp án þess að borga krónu fyrir það. Það eru spítalar fyrir börn fátæklinga. Það er allt hér. Það er hugsað fyrir öllu.“

Hvað hefur Geir lært af því að búa í Kólumbíu? „Ég hef lært það hvað við megum vera þakklát á Íslandi fyrir margt. Hér eru hlutir sem þú myndir aldrei sjá á Íslandi og Íslendingar hafa ekki hugmynd um; hér er handa­laust fólk að biðja um pening og fólk sem á ekki skó. Það er ekkert kerfi hér til að taka við fólki; það þarf að bjarga sér sjálft. Ísland gæti verið paradís á jörðu. Ísland gæti verið flottasta land í heimi. En það er langt frá því að svo sé. Hugsunar­háttur okkar er þess eðlis. Hann er ættbálks­legur. Hann er ekki þjóðernis­legur. Það er vanda­málið.“

Kvíðastillandi og jafnvel róandi

Fyrir utan flensu­sprautuna hefur Geir þurft að nýta sér heilbrigðis­kerfið í Kólumbíu en hann hefur í mörg ár þjáðst af miklum kvíða.

„Ég hef verið heppinn af því að ég hef verið með gott bakland en það eru ekki allir sem hafa það. Og ég hef verið heppinn að hafa kynnst góðum lækni sem heitir Ólafur þór Ævarsson; þú mátt nafn­greina hann af því að hann er frábær læknir og hann er búinn að hjálpa mér og gera mig í raun og veru að því sem ég er í dag.

Ég sagði einhvern tímann að það sé eitt að vera kvíðinn í tengslum við það að fara að gera eitthvað þegar fólk veit hvað það er að fara að gera en það er ekkert hægt að gera þegar maður er með sjúklegan kvíða sem er líkamlegur og andlegur og hann hellist yfir mann og maður getur ekki tengt hann við neitt. Það er miklu erfiðara. Þunglyndi og kvíði er bara ömurlegur sjúkdómur og það er ömurlegt að vita til þess að fólk skuli vera að þjást af þessu.“

Þung­lyndið. „Auðvitað verður maður deprímeraður þegar maður fær þetta. Ég verð aldrei reiður eða skap­bráður; ég læt þetta ekki bitna á fjöl­skyldunni minni. Ég þarf bara að leggjast út af, hvíla mig og slaka á. En ég get ekki gert neitt á meðan. Það versta við þetta er að þetta er að gerast allt of oft.“

Fólk á ekki að hafa skoð­anir á ein­hverju sem það þekkir ekki.

Kvíðinn og þung­lyndið hafa jú áhrif á lífsgæði Geirs. Mikil áhrif. „Þetta er bara erfitt. Og þetta er mjög misjafnt eftir fólki. Þannig að það skal enginn gera lítið úr þessu því þeir sem þekkja þetta vita hvað þetta er en þeir sem þekkja þetta ekki eiga bara að hafa hljótt því þeir vita ekki hvað þetta er. Þannig að fólk á ekki að hafa skoðanir á einhverju sem það þekkir ekki. Það á ekki að hafa skoðanir á fólki sem það þekkir ekki eða hafa fyrir fram ákveðnar skoðanir. Það er svo mikil tímasóun að eyða tímanum sínum í það til dæmis að tala um annað fólk.“

Geir segir að það hjálpi sér að vera mjög upptekinn. „Það breytir þó ekki því að ég get fengið kvíðakast þótt ég sé að spila á píanó.“

Ég hef hringt á sjúkra­bíl af því að mér hefur liðið svo illa.

Hann tekur kvíða­stillandi lyf og hann hefur reglulega þurft að taka róandi lyf. „Kvíðinn hefur þá verið svo mikill að ég hef ekki ráðið við mig. Ég hef hringt á sjúkrabíl af því að mér hefur liðið svo illa. Þetta er rosalegt. Það sem hjálpar mér mest er að ég er aldrei upp á kant við neinn. Ég eyði ekki tímanum mínum í að tala illa um fólk eða að vera að rífast við fólk. En ég læt ekki vaða yfir mig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum