Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Eydís í áfalli eftir heimsókn á Ísey skyrbar: „Þetta er ekkert annað en viðbjóður“

Eydís nokkur var ansi brugðið er hún brá sér nýverið á Ísey skyr­barinn í Skeifunni. Þar fannst henni illa hugað að hreinlæti hjá afgreiðslu­manni. „Þetta er ekkert annað en viðbjóður,“ segir Eydís í færslu inni í fjölmennu samfélagi matgæðinga á Facebook, Matartips! Þar útskýrir hún hvað henni þótti miður á skyr­barnum:

„Var að versla við Ísey skyr bar í Skeifunni. Greiddi með pening. Konan lét mig hafa pening til baka, hún var í hönskum og fór svo beint, með sömu hanska og hélt áfram að gera skyrskál, þar sem hún tók m.a ávexti upp með höndunum sínum og lét í skyrksál og lét síðan viðskiptavin fá.“

Fjölmargir meðlimir hópsins tjá sig og taka flestir þeirra undir með Eydísi. Ólína hefur oft orðið vitni að svipuðu. „Hef kvartað yfir svona vinnu­brögðum. Væri jafnvel betra að þau væru ekki með hanska en þvæðu sér um hendurnar strax eftir að hafa afgreitt með peningum eða korti,“ segir Ólína. Og Bergdís veit alveg hvað hún ætlar ekki að gera. „Ég mun aldrei versla þarna,“ segir hún ákveðin.

Elfa tekur í sama streng og er mjög óánægð. „Þetta er alveg ótrúlega algengt, það er engu líkara en fólkið haldi að hanskarnir séu til að hlífa eigin höndum! Þetta er líka skylda yfirmanna að útskýra fyrir starfs­fólki hvernig á að nota hanskana, segir hún.

Aðalbjörg bendir líka á fleiri vandamál. „Kannski sú sama og ég sá henda frosnum mangó pokum í gólfið og skellti því svo upp á borðið með hráefnis­döllunum  Hún var s.s. að reyna að ná frosna mangóinu í sundur með þessari aðferð  Sami staður fyrir svona viku síðan,“ fullyrðir Aðalbjörg.

Jökull furðar sig á þessari umræðu. „Eins gott að þið eruð uppi á 21’stu öldinni en ekki á fyrir fimm þúsund árum þegar þið hefðuð drepist af því að fá klink­sýkla í matinn. Jú eða bara 90 prósent af hinum löndum heims­byggðarinnar þar sem er ekki búið að ala móðursýki í almennan plebbann,“ segir Jökull.

Í umræðuna blandar sér Ólafur Valur Ólafsson, talsmaður Ísey skyrbars, og þakkar hann Eydísi fyrir ábendinguna. Hann segist þess fullviss að um einangrað tilvik hafi verið að ræða.

„Við hjá Ísey leggjum mikið uppúr kröfu um hreinlæti við okkar starfs­fólk. Ég reikna með að í þessu tilfelli hafi starfs­maður gleymt sér og því fór sem fór. Ég þekki það sjálfur að hafa gert svipuð mistök á mínum afgreiðslu­ferli og gleymi þeim aldrei og geri þau ekki aftur. Við munum fara yfir þetta mál með öllu okkar frábæra starfs­fólki og reyna að koma í veg fyrir að svona endurtaki sig,“ segir Ólafur og bætir við:

„Mér þykir afskaplega leiðinlegt að heyra af þessu. En við munum nota þessa ábendingu til að koma í veg fyrir að svona endurtaki sig. Takk kærlega fyrir að láta okkur vita.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Eftir að hafa gert við klakavélar segist einn þátttakandi aldrei hafa pantað klaka aftur.
Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi