Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Öll áhöfnin fórst með Sjöstjörnunni – 21 barn varð föðurlaust

Fyrir nákvæmlega 49 árum síðan, þann 11. febrúar 1973, fórst 100 tonna eikar­báturinn Sjöstjarnan KE 8 frá Keflavík, rétt fyrir utan suður­strönd Íslands. Allir tíu áhafnar­meðlimir létust í slysinu.

Báturinn var nýkominn úr viðgerð í Færeyjum en þegar hann var staddur í um 100 sjómílur aust-suðaustur af Dyrhólahey, barst tilkynning frá skip­stjóra bátsins, Egilberti Kolbeins­syni að leki væri komin að bátnum. Þrátt fyrir aftaka­veður á svæðinu voru skip send án tafar til hjálpar. Það síðasta sem heyrðist frá Engilberti var að allir skip­herrarnir væru komnir í tvo gúmmíbáta nema hann en að það væri tíma­spursmál hvenær báturinn sykki.

Ein umfangs­mesta leit Íslands­sögunnar á sjó var gerði í kjölfarið en leitað var bæði á landi og sjó. Að lokum var það eina sem fannst leifar af gúmmíbáti og lík eins skip­herrans bundið fast við. Allir 10 áhafnar­meðlimir létust, fimm Íslendingar og fimm Færeyingar. Kona skip­stjórans, Gréta Þórarins­dóttir var ein af þeim sem var um borð.

Alþýðu­blaðið birti frétt um leitina þann 13. febrúar, tveimur dögum eftir sjóslysið. Var frásögnin eftir­farandi:

Þungur sjór og frost er Sjöstjarnan sökk

Þegar blaðið fór í prentun um miðnætti, hafði enn ekkert frétzt til skipbrots­mannanna 11 af Sjöstjörnunni frá Keflavik. Ýtarleg leit var gerð i allan gærdag og fram á kvöld. Veður var mjög slæmt á þeim slóðum sem Sjöstjarnan sökk, þungur sjór og frost. Leit átti að halda áfram í nótt, og í dag verður væntanlega leitað til þrautar. Sjöstjarnan var að koma frá
Færeyjum, þar sem báturinn hafði verið i viðgerð vegna bruna sem kom upp i káetu er
báturinn lá í Kefla­vikurhöfn í desember. Um borð voru 10-11 manns, þar af fimm Íslendingar, fjórir karlmenn og eiginkona skip­stjórans. Auk Íslendinganna voru 5-6
Færeyingar um borð, en þeir höfðu verið ráðnir á bátinn í vetur. Ekki hafði fengizt á því
stað­festing frá Færeyjum i gærkvöldi, hvort Færeyingarnir væru fimm eða sex. Það var klukkan 14,10 á sunnu­daginn að Sjöstjarnan tilkynnti strandstöð Land­símans á Höfn í Horna­firði, að vart hefði orðið við leka. Var báturinn þá staddur djúpt undan landi. Um
100 sjómilur undan Dyrhólaey. Var káetan orðin hálffull af sjó og skip­verjar farnir að undirbúa að fara í björgunar­báta. Virðist lekann hafa borið brátt að, þvi stuttu áður hafði Sjöstjarnan tilkynnt staðar­ákvörðun til Tilkynninga­skyldunnar, og var þá ekki vitað betur en allt væri í stakasta lagi.

Um klukkan 15 var vitað til þess að Sjöstjarnan var sokkin, og að áhöfnin komst í tvo
gúmbjörgunarbáta. Heyrðist í neyðar­talsstöðvum þeirra í stuttan tíma eftir að báturinn sökk, en siðan hefur ekkert í bátunum heyrzt. Stöðin sendir í sífellu, sé allt með felldu.
Á þessum slóðum voru vestan 8-10 vindstig, er báturinn fórst, og þungur sjór. Um 30 skip
héldu þegar til leitar, loðnu­veiðiskip, rannsóknar­skip og erlendir togarar, auk flugvéla. Leitar­veður var mjög slæmt í allan gærdag og spáð var svipuðu veðri. Sjöstjarnan var eikar­bátur 100 lestir að stærð. Hann var smíðaður í Danmörku árið 1964. Hét báturinn áður Otur. Eigandi er Sjöstjarnan hf í Reykjavík, en báturinn er skrá­settur í Keflavík og var gerður þaðan út.

Ungi maðurinn sem fannst bundinn við björgunar­bátinn hét Þór Kjartansson, 26 ára. Var hann sá eini sem fannst af þeim sem fórust. Sjö af þeim sem fórust voru foreldrar. Fimm konur misstu eiginmenn sína, 21 barn varð föður­laust og eitt barn munaðar­laust.

Hjónin Eng­il­bert og Gréta

Nöfn þeirra er létust eru eftir­farandi:

  • Engilbert Kolbeinsson, skip­stjóri (34 ára).
  • Gréta Þórarins­dóttir, matsveinn (27 ára).
  • Þór Kjartansson, stýri­maður (26 ára).
  • Guðmundur J. Magnússon, fyrsti vélstjóri (41 árs).
  • Alexander Gjöveraa, háseti (38 ára).
  • John Fritz, 2. vélstjóri (47 ára).
  • Arnfinn Jóensen, háseti (17 ára).
  • Niels Jul Haraldsen, háseti (46 ára).
  • Hans Marius Ness, háseti (16 ára).
  • Holberg Bernhardsen, háseti (28 ára).
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Leigjandinn viðurkenndi að eldurinn hefði kviknað vegna gáleysis hans

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu