Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Hvað fór úrskeiðis í tilfærslu leghálsskimana yfir á opinbera aðila?

Mannlíf hefur undir höndum skýrslu frá starfs­hópi Lækna­félags Íslands vegna legháls­skimana; Skýrsla og sérálit frá starfs­hópi Lækna­félags Íslands, haustið 2021. Skýrslan fjallar um breytingar á skipulagi og framkvæmd legháls­skimunar. Þar var mælt fyrir um breytinguna sem átti að verða við árslok 2020. Í skýrslunni kemur fram að verkefna­stjórnun innan Heilbrigðis­ráðuneytisins hafi brugðist með ýmsum hætti í tilfærslu legháls­skimana yfir á opinbera aðila:

Þann 29. janúar 2020 var tilkynnt að heilbrigðis­ráðherra hefði ákveðið að vinna að framkvæmda­verkefna í samræmi við tillögu ráðgjafar­hóps frá 2017 vegna legháls­skimana.

Samkvæmt skýrslunni kemur fram að Heilbrigðis­ráðuneytið hafi séð um vinna að því markmiði að gera skimunina betri og færa hana nær konum með því að bjóða hana í heilsu­gæslunni fremur en í leitar­stöðvum Krabbameins­félagsins.

Formaður LÍ, Reynir Arn­gríms­son erfða­læknir og Svandís Svav­ars­dóttir fyrr­ver­andi heil­brigð­is­ráð­herra.

Vandaðri undirbúning og mun meiri tíma hefði þurft

Í skýrslunni eru talin upp þau atriði sem talin er hafa brugðist við tilfærsluna:

• Ekki var haft samráð við Krabbameins­félagið í að skipuleggja hvað þyrfti að vera til staðar og hvernig yfir­færslan ætti að fara fram. Hjá Krabbameins­félaginu lá mesta þekkingin um
skimunar­starfið. Sérstak­lega með tilvísan til þess að Embætti land­læknis hafði í
minnis­blaði til heilbrigðis­ráðherra frá 22.02.2019 lagt áherslu á að það yrði gert og
víðtæks samráðs leitað hjá aðilum með fagþekkingu, með langtíma þrepa­skipt markmið
að leiðar­ljósi.

• Ekki var gert áhættumat á því hvar veika punkta gæti verið að finna í yfirfærslu­ferlinu.

• Ekki var gert ráð fyrir tíma þar sem bæði kerfin væru keyrð samtímis til að tryggja
samfellu og að nýtt kerfi virkaði sem skyldi.

• Ekki var gerð kostnaðar­áætlun þar sem allir þeir þættir voru teknir með sem bættust við
þegar greining sýna færi fram erlendis.

• Ekki var gætt með réttum hætti að persónu­vernd við flutning íslenskra lífsýna erlendis og
geymslu þeirra þar í lífsýna­safni sem ekki laut íslenskum reglum. Ekki var hugsað fyrir
ýmsum þáttum sem þyrfti að samhæfa við flutning starfseminnar frá einum aðila yfir á
þrjá (þ.e.a.s. heilsu­gæsluna, Land­spítalann/Sjúkra­húsið á Akureyri og Embætti
land­læknis).

• Ekki var beðið um frest á yfir­færslunni þegar í ljós kom að undir­búningur var ekki nægur.

• Yfirmenn framkvæmda tóku takmarkað tillit til viðvarana fagaðila, s.s. hjá
Krabbameins­félagi Íslands, fagfélögum fæðinga- og kven­sjúkdóma­lækna,
rannsóknar­lækna, lífeinda­fræðinga, Læknaráði Land­spítalans, Lækna­félagi Íslands og
fleirum. Skrif­legum ábendingum og viðvörunum var oft ekki svarað.

Land­læknir hafði mælti með víðtæku samráði til að tryggja öruggan flutning á
framkvæmdinni, en það var ekki viðhaft. Yfir­stjórn Heilsu­gæslunnar gerði sér ekki nægilega grein fyrir miklu umfangi og flækju­stigi þessa verkefnis og fékk heldur ekki til liðs við sig starfs­fólk Krabbameins­félagsins sem hafði áratuga langa reynslu af starfseminni sem heilsu­gæslan átti að taka yfir. Þegar ljóst var að ekki myndi nást að vera með alla þætti ferlisins tilbúna á réttum tíma þá hefði stjórnunar­aðilum í heilbrigðis­ráðuneytinu átt að vera ljóst að gera þurfti ráðstafanir til að tryggja að ekki yrði rof á öruggri þjónustu.

Vandaðri undir­búning og mun meiri tíma hefði þurft vegna þessa umfangs­mikla verkefnis.

Breytinga- og verkefnastjórnunin brást

Alma Möller Land­læknir

Embætti land­læknis var fengið hlutverk beggja vegna borðsins sem framkvæmdar­aðila í að
fylgjast með framkvæmd breytinganna, skipuleggja skimunar­leið­beiningar og bera endanlega ábyrgð á skimunar­skrá, sem ekki aðeins tekur til skráningar kvenna sem hafa komið í skimun, heldur er líka notuð í daglegu starfi hjá Samhæfingarstöð krabbameins­skimana til boðunar, eftirlits og úrvinnslu, svo og til að senda út svör til kvenna og lækna. Embættið er ráðgjafar- og eftirlits­aðili með heilbrigðis­starfs­mönnum og allri heilbrigðis­þjónustu. Embætti land­læknis hefði þurft að fara fram á betri undir­búning síðla árs 2020 í samræmi við fyrri tilmæli, en þá var embættið jafnframt að sinna þátttöku í tilteknum verk­þáttum yfir­færslunnar. Á Samhæfingar­stöðinni hefði þurft að vera sú yfirsýn að óskað væri eftir frestun framkvæmda til að hægt væri að undirbúa tilfærslu verkefnins betur.

Upplifun almennings

Umræður fóru fram á Alþingi í fyrirspurna­tíma og með skrif­legum fyrir­spurnum til
heilbrigðis­ráðherra frá nokkrum þing­mönnum. Í framhaldi af því fékk fyrr­verandi heilbrigðis­ráðherra sóttvarna­lækni/ritara skimunar­ráðs til að gera skýrslu um framgang málsins fyrir heilbrigðis­ráðuneytið. Sú skýrsla var lögð fyrir þingið í júní 2021.

Talsverð blaða­skrif, andmæli í fjöl­miðlum og á samskipta­miðlum komu frá einstökum konum og samtökum kvenna. Þetta voru áhyggjur af upplýsinga­miðlun og framkvæmd skimunar í upphafi ársins 2021. Eftir því sem á leið komu fram sögur kvenna af samskiptum við samhæfingar­stöðina. Bent var ítrekað á verulegar tafir á svörum frá rannsókna­stofunni í Danmörku og frá samhæfingar­stöðinni, sem allt fram til ágúst­mánaðar 2021 höfðu dregist í allt að sex mánuði í nokkrum tilvikum. Greint var frá samskiptum við yfirlækni samhæfingar­stöðvarinnar og spurt hvort þau væru eðlilegur samskipta­máti. Svör hans birtust einnig í fjöl­miðlum.

Aðför að heilsu kvenna

Hópurinn #adforadheilsukvenna var stofnaður 20. febrúar 2021 sem umræðu­hópur um
legháls­skimunina á Facebook-vefnum, en hlaut strax verulegar undir­tektir meðal kvenna.
Konur greindu þar frá erfið­leikum í samskiptum við samhæfingar­stöðina og við þáverandi
yfirlækni hennar. Löng og óhófleg bið eftir niður­stöðum úr legháls­skimunum í einhverjum
tilvikum var gagnrýnd, allt frá því þjónustan var færð frá KÍ og til heilsu­gæslunnar.
Þjónustu­þegar kvörtuðu yfir óöryggi og upplýsinga­óreiðu og nefnt var að traust hafi brostið og þurfi að byggja upp að nýju.

Í hópnum kom einnig fram óánægja með aðskilnað legháls- og brjósta­krabba­meins­leitar.
Notendur þjónustunnar hafa margar kallað eftir að hún yrði aðgengileg á einum stað líkt og áður. Þá varð til óánægja víða á lands­byggðinni, svo sem í Vestmanna­eyjum þar sem konur fengu boð í skimanir sem útheimtu ferð á Selfoss eða til Reykja­víkur. Allt þetta ætti að vera hægt að lagfæra með því að færa þjónustuna til notanda líkt og þær þekki frá fyrri tíð og því ættu þær ekki að þurfa að missa úr vinnu, koma börnum fyrir og valda álagi á aðra og síðan leggja í dýrt ferðalag með því sem því fylgdi.

Athugasemdir starfshóps Læknafélags Íslands

Heilsu­gæslan var ekki vel undirbúin varðandi yfirtöku legháls­krabba­meins­leitarinnar
um áramótin 2020-2021 eftir að heilbrigðis­ráðuneytið hafði falið henni að taka við
verk­efninu um mitt árið 2020. Ekki var teljandi innra samráð innan Heilsu­gæslunnar um
framkvæmdina, né gert ráð fyrir skimuninni sem hluta heilsu­gæslunnar í venju­legum
skilningi, heldur var hún sett upp sem sérstakt verkefni þar sem aðeins sýnitakan sjálf
fór fram á heilsu­gæslu­stöðvum.

Á allt annað var litið á sem sérstakt verkefni samhæfingar­stöðvarinnar. Aðkoma heilsugæslu­lækna að skimuninni var engin og ekki hugsað fyrir henni, t.a.m. vegna ráðgjafar til kvenna varðandi niður­stöður úr sýnatökum þegar svör væru afbrigðileg. Alfarið var treyst á ekki vel mannaða samhæfingarstöð í því efni. Þar urðu verkefnin fljótlega mun meiri en ráð var fyrir gert.

Samningi við erlenda rannsókna­stofu áður en nýtt fyrir­komulag hófst, né heldur gerð verkferla vegna meðferðar sýnanna. Gera mátti ráð fyrir að þjálfa þyrfti verulegan fjölda ljósmæðra til sýna­tökunnar (um 50 talsins) áður en leitar­stöðinni yrði lokað. Sú þjálfun hófst ekki að ráði fyrr en á fyrri hluta ársins 2021.

Takmarkað samband var haft við fagaðila sem hefðu getað lagt til þekkingu á einstökum
eða mörgum þáttum legháls­skimunar, s.s. hjá KÍ (sem bauð fram samráð og aðstoð),
krabbameins­skrá, heilsu­gæslu, fagfélögum lækna, lífeinda­fræðinga og ljósmæðra, yfir­læknum heilsu­gæslunnar, fyrrum yfir­læknum leitar­stöðvar og yfir­mönnum frumu-
eða veiru­rannsókna hér á landi. Engar leið­beiningar eða skipurit um sýnatöku­ferlið komu fyrr en í árslok 2020 og byrjun árs 2021. Þær voru fyrst á dönsku, a.m.k. 3ja ára
gamlar, og voru ekki útgefnar fyrr en nokkru síðar á íslensku. Leið­beiningar til
almennings birtust í maí 2021 á vef Embættis land­læknis, en kynningar­starf var lítið,
aðallega rafræn sending “bæklinga” til kvenna sem boðaðar voru í skimunina.

Svör voru óljós eða bárust seint

Óskar Reyk­dals­son, for­stjóri Heilsu­gæsl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu

Svör við endur­teknum fyrir­spurnum Krabbameins­félags Íslands árið 2020 til heilbrigðis­ráðuneytisins og til Heilsu­gæslu Höfuð­borgar­svæðisins voru óljós, eða bárust í sumum tilvikum seint. Þau komu ekki endanlega fram þannig að unnt væri að bregðast við þeim af hálfu leitar­stöðvar og Krabbameins­félags Íslands fyrr en í nóvember og
jafnvel desember­mánuði 2020.

Sama var um samskipti við Land­spítalann. Nægilega yfirgrips­mikil, tímasett og tímanleg kostnaðar­úttekt hefur ekki birst og virðist ekki hafa verið gerð, heldur var stuðst við gögn sem ekki voru gerð opinber af hálfu forsvars­aðila heilsu­gæslunnar eða heilbrigðis­ráðuneytisins. Ekkert mat var gert fyrirfram á hugsanlegum erfið­leikum í skráningu og meðferð sýnanna, á flækju­stigum í sendingu sýna og upplýsinga milli landa, á persónu­verndar­atriðum eða á því hvernig staðið yrði að svörun vegna sýni­tökunnar þegar afbrigðilegar niður­stöður bærust.

Það var lagt í hendur eins fagaðila, þ.e.a.s. yfir­læknis samhæfingar­stöðvarinnar sem settur
var til þeirra starfa án venjulegs ráðningar­ferlis. Starfs­hlutfallið sem fékkst til verksins
var einungis hálft starf, og svo var enn þegar nýr aðili tók við því. Óformlegum
undir­búnings­hópi heilbrigðis­ráðuneytisins sem starfaði síðasta ársfjórðung 2020 og í
ársbyrjun 2021 var ætlað að styðja við umbreytingar í bæði brjósta- og
legháls­krabba­meins­skimuninni, en ekki er ljóst hvert umfang þessa óformlega starfs var
eða hvaða máli það skipti varðandi legháls­skimunina.

Úrvinnslustarf legið niðri í 8 ár

Úrvinnsla og skýrslu­gerð var ekki tryggð áður en starfsemin var flutt og leitar­stöðinni
lokað, enda hafði slíkt úrvinnslu­starf þá legið niðri að mestu leyti um 8 ára skeið.
Verk­ferlum og upplýsinga­gjöf gagnvart læknum og almenningi var ábótavant.
Heilsu­gæslan og forsvars­fólk hennar, fyrr­verandi yfir­læknir Samhæfingar­stöðvar
krabbameins­skimana, land­læknir og heilbrigðis­ráðuneytið hafa komið fram með
almennar ástæður til að skýra breytingar á skimunar­ferlinu.

Flestir hafa samsinnt tillögum um tilfærslu skimunarinnar til heilsu­gæslunnar í megin­atriðum, en ekki var fyrirfram unnt að ætla að þær mundu bæta árangur eða mætingu í skimunina. Breyting með megin­áherslu á HPV-greiningu eftir þrítugt var eðlileg, enda alþjóð­lega staðfest hvað gagnsemi og hagræðingu í skimuninni varðar. Nauðsynin á að leggja af starfsemi leitar­stöðvar KÍ og færa greiningu sýna til danskrar rannsókna­stofu orkaði tvímælis að
margra mati, og varð umdeild. Samráð skorti við fagaðila og ekki var byggð upp
þekking eða tiltrú almennings á nýju kerfi.

Mörgum, og þar með talið læknum og fagsamtökum þeirra og lífeinda­fræðinga, hefur
þótt skorta á svör varðandi spurningar um ákvarðana­töku, tímaferli, samninga við
erlendan aðila, takmarkaðar samnings­umleitanir við innlenda aðila, skoðun á því hvort
og hvernig mætti halda HPV-greiningum og frumu­meinafræði­rannsóknum í landinu.
Fjölmörg framkvæmda­atriði á árinu 2020 og á síðastliðnu ári 2021, þ.m.t. varðandi
kostnað, ábyrgð og stjórnun legháls­skimunarinnar voru ekki nægilega undirbúin.

Misgreiningar

Síðla árs 2020 segir í skýrslunni að það hafi verið umræða um tilvik þar sem meinsemd hafði ekki greinst í frumu­rannsókn hjá Krabbameins­félaginu með alvarlegum afleiðingum. Á þessu tilviki voru gefnar skýringar af hálfu Krabbameins­félagsins og viðamikil endur­skoðun sýna fór fram. Embætti Land­læknis benti á úrbætur sem mátti gera. Misgreiningar gátu þó ekki orðið forsenda breytinga sem gerðar voru á legháls­skimuninni.

„Þá mátti vera ljóst að yfirgrips­mikil breyting, gerð með mjög skömmum fyrirvara,
mundi verða erfið á sama tíma og mikil heilbrigðisvá steðjaði að samfélaginu með
Covid-heims­faraldrinum. Mun lengri tíma hefði þurft af þeirri ástæðu einni.
Framkvæmdin var að miklu leyti gerð á síðustu stundu á öllum stigum, allt frá og með
ákvörðun heilbrigðis­ráðherra um mitt sumar 2019.

Ábyrgðin var hjá Heilsu­gæslunni sem hins beina framkvæmdar­aðila. Endanleg ábyrgð liggur hins vegar hjá heilbrigðis­ráðuneytinu sem ekki fór að ráðum eigin starfs­hópa (skimunar­ráðs, meirihluta fagráðs) eða eigin verkefnis­stjórnar eða Embætti Land­læknis, heldur virðist hafa treyst á ráðgjöf eins aðila, yfir­læknis í heilsu­gæslunni sem jafnframt var settur yfir samhæfingar­stöðina.“

Staða leghálsskimana eftir mitt ár 2021

Heilbrigðis­ráðuneytið hefur sagt upp samningi við rannsókna­stofuna á Hvidovre-spítalanum í Kaupmanna­höfn. Verið er að semja við Land­spítalann um frumu­meinafræði­rannsóknir og HPV-greiningar. Nýr yfirmaður (yfir­læknir) Samhæfingar­stöðvar krabbameins­skimana var ráðinn í ágúst 2021 til hálfs árs og samhæfingar- og stjórn­stöðin flutt. Greiða þarf úr ýmsum þeim vanda sem skapast hefur.

Í forgrunni munu vera heilbrigðis­tæknileg uppfærsla og aðlögun gagna­banka leitar­stöðvarinnar að nýju skipulagi skimunarinnar og samningar við Land­spítalann um frumu­meinafræði- og veiru­skimanir. Í skýrslunni er spurt hvort mannafli við þau verk verði nægur eða réttur og hvert ráða verður leitað varðandi svo mikilvægt verk?

Tekið er fram að tryggja þurfi tengsl við erlendu rannsóknar­stofuna í þessu skyni um leið og innlendri þekkingu á frumu­meinafræði­rannsóknum og veiru­greiningum er viðhaldið.
Það víðtæka samráð við fagaðila sem áður komu að legháls­skimuninni, það gegnsæi í
ákvarðana­töku og skilgreining ábyrgðar­ferla sem skimunarráð kallaði eftir, þarf að virkja á ný og verða hluti þess sem gert verður til að lagfæra­skimun fyrir legháls­krabba­meini á Íslandi. Þetta á ekki síst við um aðkomu Embætti Land­læknis, hlutverk heilsu­gæslunnar og hlutverk Krabbameins­félags Íslands.

Hvað fór úrskeiðis?

Í skýrslunni kemur fram að: „margt hafi farið úrskeiðis í undir­búningi og við framkvæmd málsins. Ábyrgð á því að áfram var haldið inn í mjög stutt breytinga­ferli hlýtur að hafa verið hjá stjórn­endum heilbrigðis­ráðuneytisins og ráðherra. Tillögur komu fram um að breyta skimuninni á árunum 2017-18, þ.m.t. hjá Embætti Land­læknis, þar sem lagt var til að færa skimunina í opinbera þjónustu frá félaga­samtökunum Krabbameins­félags Íslands sem höfðu séð um þetta í meira en hálfa öld. Röksemdir fyrir breytingunni voru settar fram með óljósum hætti eða þær skorti.

Skimunarráð vann að málinu þó skýrsla frá því kæmi ekki fyrr en eftir að
ákvarðana­taka var afstaðin, breytingar voru hafnar og ráðið sjálft ekki lengur við lýði.
Land­læknir skilaði minnis­blaði um málið. Fagráð var sett á fót sem ásamt verk­efnastjórn
heilbrigðis­ráðuneytis skilaði af sér í byrjun árs 2020. Fagráðið var ekki samstíga. Þessar tillögur allar voru í raun aðeins stefnu­markandi álitsgjöf. Það skorti nánari útfærslu. Endanleg ákvörðun kom ekki frá ráðherra fyrr en á sumri 2020.

Þá var heilsu­gæslunni á höfuð­borgar­svæðinu falið verkefni sem hún hafði ekki beðið um að fá og undir­búningur hvíldi einkum á einum starfs­manni hennar. Eftir það miðaðist undir­búningur fyrst og fremst við tiltekna framkvæmda­þætti sem leysa þurfti úr. Verkefnis­stjórn, sem sett var á fót af heilbrigðis­ráðuneytinu rétt fyrir gildis­töku nýs skimunar­ferlis, var ekki markviss, þar vantaði á í breytinga­stjórnun og ekki allir sem þar komu að málum höfðu djúpa þekkingu á því hvað þurfti vegna flókins verkefnis sem þessa.

Samráð var lítið eða ekkert við þá sem áttu að hætta fyrri störfum sínum og höfðu reynslu úr því. Samvinna var einnig takmörkuð við aðra aðila; helst þá sem áttu að taka að sér tiltekna verkþætti. Því voru veiga­miklir þættir ekki tilbúnir þegar nýtt fyrir­komulag átti að taka gildi, breytinga­ferlið misfórst og óöryggi skapaðist meðal heilbrigðis­starfsfólks og almennings.

Framkvæmdinni má líkja við að byggja hús á grunni annars eldra húss, þar sem margt var gott og mátti nýta í nýbygginguna, en þarfnaðist endurnýjunar. Það var samt illa kannað þegar nýir eigendur tóku yfir. Ekki var metið hvað mátti nýta úr grunninum eða fyrri byggingu eða hvernig það yrði gert.

Tillögur og teikningar voru ekki tilbúnar, enginn arkitekt, bygginga­áætlanir óljósar, bygginga­stjórinn ráðinn til þess að sjá um að sandur, sement, skóflur og hjólbörur væru keyptar, og semja við verktaka um hluta framkvæmd­anna. Fáir ráðnir til vinnu. Enginn bygginga­fulltrúi til eftirlits. Eftirlit á hendi aðila sem tengdist framkvæmdinni. Einungis tekin ákvörðun með óljós markmið um nýja byggingu og gefin fyrirmæli um að byrja á verkinu. Flest þar á milli vantaði.“

Næstu skref

Ráðgjafa­hópur skýrslunnar telur að það geti ekki talist ráðlegt að heilsu­gæslan ein stýri því sem gerist, jafnvel þó aðkoma hennar verði miðlæg. Forgangs­atriði er að skýra lagalegan grundvöll skimunarinnar. Þar við bætist nauðsyn á að semja um hvar legháls­sýni sem nú eru komin til Danmerkur verða vistuð með hliðsjón af íslenskum lögum um lífsýna­söfn og söfn heilbrigðis­upplýsinga (lögnr. 110/2000).

Í skýrslunni eru teknar fram nokkur atriði sem talið er að geti betrumbætt stöðuna til muna.

„Ef Heilsu­gæslan ætlar að reka lífsýna­safn þurfa allar forsendur og leyfi til slíks að vera fyrir hendi. Skimunarráð þarf að endur­skipa og gefa því sess innan heilbrigðis­kerfisins. Meginmál hlýtur að verða fyrir stjórn­endur Samhæfingar­stöðvar krabbameins­skimana og fyrir forsvars­menn heilsu­gæslunnar að taka höndum saman við aðra fagaðila og fulltrúa almennings í því verkefni að efla traust á legháls­krabba­meins­skimuninni innan heilsu­gæslunnar og Land­spítalans/Sjúkra­hússins á Akureyri og ná þannig upp ásættanlegri mætingu kvenna og árangri sem jafnast eins og áður við það besta sem gerist.

Þá þarf góða samhæfingu við sýnatökur og tengdar lækninga­rannsóknir hjá sjálfstætt starfandi sérfræði­læknum í kven­sjúkdómum. Byggja þarf upp gæði, eftirlit, þekkingu og rann­sóknir á ný á grund­velli upphaflegra tillagna skimunar­ráðs og land­læknis og í samvinnu við starfs­fólk Rannsókna- og skráningar­setur Krabbameins­félags Íslands sem rekur krabbameins­skrána. Loks skiptir tiltrú og þekking almennings á nýju ferli megin máli.“

Heimild:

BREYTINGAR Á SKIPULAGI OG FRAMKVÆMD LEGHÁLSSKIMUNAR; Skýrsla og sérálit frá starfs­hópi Lækna­félags Íslands, haustið 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Leigjandinn viðurkenndi að eldurinn hefði kviknað vegna gáleysis hans

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu