Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

„Í alvöru, er ekki komið nóg af því að tala við okkur eins og fáráðlinga?“

Sólveig Anna Jóns­dóttir, formaður Eflingar, lætur Katrínu Jakobs­dóttur forsætis­ráðherra heyra það í færslu sem hún birtir á Facebook. Sólveig vísar í orð Katrínar í kvöld­fréttum Stöð 2 í gær en þar sagði Katrín: „Á sama tíma og talað er um lítið svigrúm til launa­hækkana þá verður það að gilda fyrir allan stigann. Það getur ekki bara gilt fyrir launafólk. Það hlýtur að gilda ekki síður fyrir stjórn­endur.“

Sólveig bendir á að laun þingmanna hafa hækkað gríðar­lega á einungis sex árum. „Nú er það svo að laun þingmanna hafa hækkað um næstum 90% frá árinu 2016. Grunnlaun ráðherra hafa hækkað enn meira á sama tímabili eða um rétt tæpa milljón á mánuði. Laun forseta Íslands eru þrjár og hálf milljón á mánuði. Borgar­stjóri Reykja­víkur er með 3.082.538 krónur í mánaðar­laun. Ef að við beinum sjónum okkar að forstjórum íslensks kapítalisma sjáum við sjálftöku-milljónir pólitískrar yfir­stéttar blikna í saman­burði; forstjóri Haga er með rétt tæpar sex milljónir á mánuði, forstjóri Icelandair með rétt tæpar sjö. Og við skulum ekki einu sinni skoða þá al-tekju­hæstu á eyjunni okkar, klukkan er orðin margt og ekki ráðlegt að heimsækja ofskynjunar-lendur þær sem þriggja milljarða mennirnir hafa lagt undir sig svona stuttu fyrir svefninn,“ segir Sólveig.

Á sama tíma á ungt fólk enga möguleika á því að eignast eigið húsnæði. „Ójöfnuður eykst. Verka og láglaunafólk stritar en nær aldrei endum saman. Láglauna­konur ganga sér til húðar og sumar missa heilsuna um fimmtugt, líkaminn þolir ekki meira strit. Ungt fólk sem tilheyrir stétt vinnu­aflsins á enga möguleika á því að eignast eigið húsnæði; frá því að síðustu kjara­samningar á almennum vinnu­markaði voru undir­ritaðir hefur húsnæðis­verð hækkað um meira en 60%. Viðbjóðslegustu lögmál hins frjálsa markaðar fá óhindrað að leggja tilveru þess fólks sem fast er á leigu­markaði í rúst; konan sem á ekkert borgar nú mánaðar­lega 50.000 krónum hærri leigu en fyrir ári,“ segir Sólveig.

Sólveig vitnar svo í fyrrnefnd orð Katrínar í kvöld­fréttum Stöð 2:

„Á sama tíma og talað er um lítið svigrúm til launa­hækkana þá verður það að gilda fyrir allan stigann. Það getur ekki bara gilt fyrir launafólk. Það hlýtur að gilda ekki síður fyrir stjórn­endur.“

Hvað þýðir þessi setning? Hverjir eiga að meðtaka þessi skilaboð? Þau sem tilheyra yfir­stéttinni og eru þegar búin að hækka eigin laun stórkost­lega? Þau sem fengu hækkanirnar áður en að skýrslu­höfundar Þjóð­hagsráðs komust að þeirri niður­stöðu að svigrúmið væri á þrotum? Á það fólk að tíma-flakka til baka og stoppa sig sjálft í nýliðinni fortíð nákvæmlega á þeirri stundu sem það tók við sjálf-skömmtuðum launa­hækkunum? Eða er verið að tala til verka og láglaunafólks, ómissandi fólksins, þeirra sem skapa hagvöxtin með vinnu sinni og þeirra sem halda umönnunar­kerfum okkar gangandi með þraut­seigju sinni? Eru þetta skilaboð til vinnu­aflsins um að vera heimsk og undir­gefin, að vera ekki með vesen, skilaboð um að samþykkja að hafa það ömurlegt svo að þau sem stýra þessu landi geti haldið áfram að lifa í sjálfs­blekkingu um að stöðug­leikinn sé bara rétt handan við hornið, og náist þegar að láglauna­konurnar samþykki að fara aftur aftast í röðina þangað til að reykvíska meritókrasían tilkynni í hátalara­kerfinu að stundin sé loksins runnin upp, svigrúm hafi komið í leitirnar fyrir þau sem svitna fyrir hagvöxtinn?,“ spyr Sólveig.

„Í alvöru, er ekki komið nóg af því að tala við okkur eins og fáráðlinga? Má ég plís afþakka orðasalöt stjóranna? Ég hef enga lyst á þeim og ég treysti mér til að fullyrða að sömu sögu má segja um ansi marga“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Kröfuhafar fengu ekkert greitt úr fjórum búum þar sem lýstar kröfur námu samtals rúmum 34,2 milljónum króna.
Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta