Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Lögreglan í Kópavogi skaut hund Þorsteins: „Þetta var mér mikið áfall, en Penni var dauður“

Félagarnir Penni og Þorsteinn Svanur Steingrímsson. Myndin er samsett
Félag­arnir Penni og Þor­steinn Svanur Stein­gríms­son. Myndin er sam­sett

„Penni var mjög hvass og gætti óhemju­lega vel heimilisins. Enginn ókunnugur mátti koma við neitt sem ég átti. Við fengum í langan tíma ekki neina opinbera reikninga,“ svo lýsir Þorsteinn Svanur Steingrímsson, lögreglu­maður, hundinum sínum Penna í viðtali við Morgun­blaðið, sunnu­daginn 11. september 1988.

Þorsteinn Svanur var lögreglu­maður og starfaði hjá rannsóknar­lögreglunni þegar viðtalið var tekið. Hann hefur átt og þjálfað fjölda hunda. Í viðtalinu var farið yfir nokkrar þá tryggu félaga sem Þorsteinn hefur átt og er þar einn sem stendur ögn framar öðrum en það er hundurinn Penni. Örlög hundins voru voveifleg en þrátt fyrir að hafa aðstoðað í lögregluna í vinnu hennar, skaut hún og banaði hundinum.

Hund­ur­inn Penni varð sex ára. Mynd/skjá­skot tíma­rit.is

Penni bjargaði lífi fjölskyldunnar

Þorsteinn segir frá því hvernig hundurinn hans Penni hafi eitt sinn bjargað lífi allrar fjöl­skyldunnar. Þau voru stödd í sumar­bústað og Þorsteinn var nýkominn út veiðitúr. Hundurinn var öllu jafna látinn sofa á næturnar í verk­stæðinu en tilviljun réði því að hundinum hafi verið leyft að sofa inni í stofu hússins þá nóttina: „Í sumar­bústaðnum var miðstöð sem átti það til að gassprengja. Um kvöldið fórum við að sofa eins og vant var, en um nóttina vakna ég úti á stétt.“

Sumar­bústaður fjöl­skyldunnar var lítið timburhús með risi og sváfum þau í svefn­lofti hans. „Mjög þröngur stigi lá neðan af loftinu og niður þann stiga hafði hundurinn dröslað mér og út á hlað,“ útskýrir Þorsteinn og lýsir áverkum og hversu illa særður og nagaður á hand­leggnum hann hafi orðið. Hundurinn hafi bitið Þorsteinn í hand­legginn til að koma honum út undir bert loft eftir árangurs­lausar tilraunir Penna til að vekja Þorstein.

„Ég áttaði mig fljótlega á því að sprenging hafði orðið í húsinu og mér tókst að bjarga konu minni og þremur börnum út úr reykhafínu. […] Ég sá hvemig hann skreið með gólfinu þar sem ekki var reykur,“ segir Þorsteinn Svanur og lýsir því hvernig það var Penna að þakka að fjöl­skyldan hafi öll sloppið heil á húfi – þó tveir höfðu fengið væga reyk­eitrun.

Annað atvik átti sér stað á heimili Þorsteins er hann sat til kvöldverðar­borðið með fjöl­skyldu sinni. Þá ruddust inn á heimili hans þrír menn, sópuðu öllu af borðinu og veittust að Þorsteini. „Tveir króuðu mig af við gluggann og ég barðist þar við þá en sá þriðji réðst á Helgu. Henni tókst þó að opna dymar og kalla á Penna.“

Þorsteinn lýsir því hvernig Penni var bundinn með tommu­sverri kveðju við grunninn úti. Við hjálpar­kall konunnar tók hundurinn svo kraft­mikið tilhlaup að hann sleit keðjuna og þeyttist inn fjöl­skyldunni til bjargar. „Hann var svo fljótur að hreinsa til að ég varð að taka skart viðbragð til þess að bjarga lífi eins af mönnunum sem hann hafði skellt á jörðina,“ útskýrir Þorsteinn Svanur.

Upprætti mál lögreglunar – sem svo drap hann

„Við Penni réttum stundum lögreglunni í Kópavogi hjálpar­hönd því Penni var frábær spor­hundur,“ útskýrir Þorsteinn og segir frá þegar eitt sinn hafði maður ráðist á kindur í Kópavogi og leikið þær illa. Þá hafði lögreglan leitað eftir aðstoð Penna. Afbrota­maðurinn hafði flúið úr fjár­húsinu en skilið eftir smá snifsi af úlpunni sinni á ódæðis­staðnum.

„Penni þefaði af úlpu­snifsinu og þefaði sig síðan að húsi og var kominn þar með kjaftinn á háls manni sem lá þar inni áður en við varð litið,“ segir Þorsteinn og útskýrir að Penni hafi kunnað að opna allar hurðir. Afbrota­maðurinn ku hafa verið svo hræddur við hundinn að hann játaði samstundis verknaðinn.

Þrátt fyrir óeigingjarnt framlag Penna og frábæra frammistöðu hans í þessu máli sem og mörgum öðrum þá urðu það örlög hans hin sorglegustu. Lögreglan í Kópavogi skaut Penna til bana þegar hann var einungis á sjötta aldursári.

„Þetta var gert fyrir misskilning og varð úr mikil rekistefna. Þetta var mér mikið áfall, en Penni var dauður og því varð ekki breytt. Þessi hundur var gæddur svo frábærum hæfi­leikum að eftir að ég átti hann ber ég alla hunda saman við hann og þeir eru fáir sem standast þann samanburð,“ segir Þorsteinn Svanur í viðtalinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim