Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Haukur Hilmarsson hefði orðið 36 ára í dag – Áður óbirt ljóð eftir hugsjónamanninn

Haukur Hilmarsson
Haukur Hilm­ars­son Mynd: GeiriX

Afmælis­barn dagsins er náttúru­verndar­sinninn, anarkistinn, aðgerðar­sinninn og hugsjóna­maðurinn Haukur Hilmarsson. Ekki er víst hvort hann sé lífs eða liðinn þó líklegast þykir að hann sé liðinn. Hann er eða hefði orðið 36 ára í dag.

Haukur Hilm­ars­son – hug­sjóna­maður

Haukur hafði ríka réttlætis­kennd og mátti ekkert aumt sjá. Sem unglingur mótmælti hann Kára­hnjúka­virkjun ásamt Saving Iceland aðgerðar­hópnum og var Haukur ekki hræddur við að koma sér í vandræði en meðal annars hlekkjaði hann sig við vinnu­vélar. Þá barðist hann einnig fyrir rétti flótta­fólks til að fá að búa á Íslandi en meðal aðgerða sem hann tók þátt í varðandi þann málaflokk var það þegar hann hljóp, í slagtogi við annan mann, inn á flugbraut til að reyna að stöðva brott­flutning flótta­mannsins Paul Ramses sem fljúga átti úr landi. Ramses var flogið úr landi en fékk svo síðar hæli á Íslandi. Þá spilaði Haukur gríðar­lega stóran part í Búsáhalda­byltingunni svokölluðu en frægt er atvikið er hann fór upp á Alþingis­húsið og tók niður íslenska fánann og hengdi upp Bónus fánann í staðinn.

Sjá einnig: Uppreisnin á Austur­velli: Þegar Haukur Hilmarsson hengdi upp Bónus­fánann

Árið 2017 fór Haukur til Sýrlands til að hjálpa Kúrdum að berjast gegn hryðjuverka­samtökunum ISIS sem herjuðu á Afrin-hérað með tilheyrandi drápum og limlestingum. Kúrdarnir og Haukur sigruðu ISIS-menn 2018 en fögnuðu ekki lengi því her Nató-ríkisins Tyrklands réðist á Kúrdana með flugskeyta­árásum og er talið að Haukur hafi látist í þeim árásum en lík hans hefur aldrei fundist. Reyndar hefur aldrei verið leitað að því en einhverjar fyrir­spurnir sendar en fátt hefur verið um svör.

Sjá einnig: Fjögur ár frá hvarfi Hauks Hilmars­sonar: „Var Haukur með kurteisari mönnum í daglegu lífi“

Ekki vita allir af því en Haukur var bráðgott skáld en hér fyrir neðan má sjá sennilega síðasta ljóðið sem hann skrifaði en það er frá árinu 2017. Vinur Hauks, Linus Orri Gunnarsson Cederborg, birti í dag myndband í tilefni af afmæli Hauks þar sem hann syngur lag við ljóð Hauks. Mynd­bandið má sjá hér fyrir neðan ljóðið.

Dansa á ösku daganna

Ég hef farið hörðum höndum
helming alls sem ég hef snert,
ljóð mín vafið bögu­böndum,
brotið lög, mitt orðspor svert.

Hollráð vísra haft að spotti,hundsað sektir, gróða skert,þræla reynt með þöglu glotti,

þrálátt marið hold mitt bert.

Lifa til að leika og herjahart á verði laganna.Taka hús og timbur ferja,duga og vinna dagstund hverja.Frelsið verja,valdið berja,

dansa á ösku daganna.

Mildum höndum, hins þó vegar,hef ég leikið smærri menn.Elskað stúlkur stórfenglegar,stundum fleiri en eina í senn.Heimskum hlíft og hlúð að þjáðum,hlýt ég lengi að verja enn,hörðum, mjúkum höndum báðum,heim þann sem ég fyrir brenn.Lifa til að leika og herjahart á verði laganna.Hlaupa, klifra, kné sín merja,gáma mat og moldina erja.Frelsið verja,valdið berja,

dansa á ösku daganna.

Mannlíf óskar afmælis­barninu og aðstand­endum innilega til hamingju með afmælis­daginn!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.
Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið