Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

„Besta bókin mín alltaf sú næsta“

Glæpa­sögum Ragnars Jónassonar hefur verið vel tekið og þær komið út víða um heim. Einn erlendi útgefand inn vildi skrifa nýjan endi við eina bók Ragnars, honum fannst svo leiðinlegt þegar aðal­sögu­persónan dó. Nýlega sendi Ragnar frá sér sína tíundu bók, svolítið drauga­lega spennu­sögu.

Ragnar Jónasson Mynd / Hákon Davíð Björnsson
Ragnar Jónasson Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Þorpið stendur bara ein og sér og er ekki hluti af syrpu,“ segir Ragnar þegar hann er beðinn um að lýsa nýju bókinni. „Sagan kom bara til mín,“ bætir hann við. „Í mínum huga er þetta spennu­saga með smávegis drauga­gangi en það þarf enginn að óttast að draugurinn myrði, það eru rökréttar skýringar á öllum glæpunum í bókinni.“

Bókin segir frá Unu, kennara sem flytur í afskekkt þorp þar sem aðeins tíu manns búa, þar af tvö börn. Með tímanum fer hana að gruna að þorpsbúar búi yfir stóru leyndar­máli og hún fær á tilfinninguna að hún sé allt annað en velkomin. Sögu­sviðið eru Skálar á Langanesi, en þorpið þar fór í eyði um miðja
síðustu öld. Bók Ragnars gerist árið 1985 og tekur hann sér þar það skálda­leyfi að halda svæðinu í byggð lengur en raunin var.

Mörgum brá vissu­lega þegar Hulda dó … og einn útgef­andi minn erlendis tók því svo illa að hann skrif­aði nýjan endi þar sem hún dó ekki.

„Það var gott að fá svigrúm til að skrifa eitthvað allt annað eftir að bókunum um Huldu lauk.“ Aumingja Huldu sem Ragnar „drap“ með köldu blóði alveg óvænt, ekki við mikla gleði margra lesenda. „Ég er mjög ánægður ef fólk kvartar yfir örlögum sögu­persónu, þá veit ég að bókin eða persónan hefur haft áhrif og hrist upp í lesandanum,“ segir Ragnar.

„Mörgum brá vissulega þegar Hulda dó … og einn útgefandi minn erlendis tók því svo illa að hann skrifaði nýjan endi þar sem hún dó ekki. Svo var ég beðinn um samþykki fyrir því en það kom aldrei til greina.“

Mikill aðdáandi Agöthu

Ragnar las mikið í æsku og þegar hann var í tólf ára fór hann að lesa bækur Agöthu Christie. Úrvalið af þýddum bókum eftir hana var ekki mikið svo ef hann langaði að lesa meira varð hann að lesa þær á frum­málinu og það gerði hann.

„Það var mjög gott að byrja á Agöthu því hún skrifar frekar einfalt mál og ég veit að margir velja bækur hennar þegar þeir byrja að lesa á ensku. Ég tók upp á því að þýða nokkrar smásögur eftir hana fyrir Vikuna úr ensku á unglings­árunum, en þegar ég var 17 ára, enn ekki kominn með bílpróf, keyrði mamma mig til Björns Eiríks­sonar, útgefanda hjá Skjald­borg, en hann gaf Agöthu Christie­bækurnar út. Ég sagði honum að mig langaði til að spreyta mig á því að þýða heila skáldsögu. Björn sem kannaðist við mig sem strákinn sem hringdi reglulega til að spyrja hvenær næsta bók kæmi út og hvaða bók það yrði, tók mér vel og samþykkti að ég þýddi fyrir sig. Ég valdi bókina Endless Night sem var stysta bókin sem ég átti eftir Agöthu. Næstu 15 árin þýddi ég bækur hennar fyrir Skjald­borg og síðar Uglu útgáfu, alls 14 skáldsögur. Þegar sú síðasta sem ég þýddi kom út, árið 2009, kom jafnframt út mín fyrsta skáldsaga, Fölsk nóta.“

Ragnar gat ekki bæði skrifað eigin glæpa­sögur og þýtt bækur Agöthu og varð að velja. Við lesendur höf um heldur betur grætt á því og ný bók eftir hann komið út á hverju ári. Uppáhaldsbók Agöthu­bók Ragnars er Murder on the Links. „Ég nefni hana alltaf þegar ég fæ þessa spurningu, en hún kom fyrst út á íslensku á fimmta áratug síðustu aldar undir nafninu Dular­fullur atburður. Hún var algjör­lega ófáanleg í bóka­söfnum og bókabúðum svo ég fór með pabba á Lands­bókasafnið til að lesa hana þegar ég var eflaust ekki nema tólf eða þrettán ára. Bókin er mjög skemmtileg sakamála­saga, ein af þeim fyrstu sem Agatha Christie skrifaði, og var síðar endur­útgefin á íslensku og hét þá Opna gröfin.“

Ragnar hafði ekki verið búsettur í ensku­mælandi landi en taldi sig þó geta þýtt skáldsögu. „Ég held að lykillinn að þýðingum sé ekki síst tungu­málið sem maður þýðir yfir á, og mér fannst alltaf gaman að skrifa og vinna með íslenskuna, en þarna þegar ég var sautján ára hafði ég líka lesið mikið á ensku,“ segir Ragnar. „Ég átti líka góða að, pabbi og mamma lásu yfir þýðingarnar og sömuleiðis amma og afi, allt saman mikið íslensku­fólk.“

Iceland Noir í Iðnó

Fyrr í nóvember á þessu ári var haldin glæpa­sagna hátíð í Iðnó, þriggja daga hátíð sem Ragnar skipu lagði ásamt þremur félögum sínum úr glæpa sagna heim inum, Yrsu Sigurðar­dóttur, Lilju Sig urð ar dóttur og Óskari Guðmunds­syni.

„Árið 2013 vor um við Yrsa á glæpasagna­hátíð í Bretlandi, ásamt Quentin Bates, rithöfundi og þýð anda, en hann þýddi síðar bækur eftir mig yfir á ensku. Þar vorum við spurð hvort slík hátíð væri haldin á Íslandi og þá kviknaði hugmyndin. Sex mánuðum síðar var fyrsta Iceland Noir­hátíðin haldin og þar voru þau Ann Cleeves, höfundur bókanna um lögreglu­foringjann Veru, og Arnaldur Indriðason heiðurs­gestir. Vinir okkar að utan, hinir ýmsu rithöfundar, skráðu sig og auðvitað Íslendingar líka, og svo var hátíðin haldin aftur á næsta ári. Peter James var einn heiðurs­gesta þá og tveimur árum seinna voru þau Sara Blædel og Val MacDermid heiðurs­gestir hátíðarinnar. Í ár kom m.a. Shari Lapena, höfundur metsölu­bókarinnar Hjónin við hliðina, en auk hennar voru heiðurs­gestir Sjón, Eliza Reid og Katrín Jakobs­dóttir.“

Sjá einnig: Tækifæri til að komast í nálægð við glæpa­sagna­höfunda

Hátíðir á borð við þessa eru öllum opnar en þá fara fram pallborðs­umræður um hin ýmsu efni og höfunda og setið er fyrir svörum. Í ár voru meðal annars umræður sem forsætis­ráðherrann okkar, Katrín Jakobs­dóttir, stjórnaði en Ragnar, Ármann Jakobsson prófessor sem er með sína eigin glæpasögu í ár og Martin Edwards rithöfundur sátu hjá henni uppi á sviði og umræðu­efnið var Agatha Christie og bækur hennar. Þarna er einstakt tækifæri fyrir fólk að hitta mögulega uppáhalds­rithöfundinn sinn erlendis frá. Hægt er að kaupa helgar­passa en að sögn Ragnars er sniðugra fyrir landann að kaupa aðgang að þeim viðburði sem mest lokkar, eða viðburðum, og það kostar lítið, en hátíðin er unnin í sjálfboða­vinnu og reynt að hafa hana aðgengi­lega fyrir alla.

Okkur dreymir um að gera hátíð­ina að árlegum við­burði.

„Næsta hátíð verður árið 2020 og við erum komin með þrjá heiðurs­gesti, þau Ann Cleeves, Ian Rankin og Louse Penny en hún er vinsælasti glæpa­sagna­höfundur Kanada og með þeim vinsælli í Banda­ríkjunum líka. Okkur dreymir um að gera hátíðina að árlegum viðburði. Í ár héldum við ball þar sem hljómsveit skipuð breskum glæpa­sagna­höfundum lék fyrir dansi. Svo var Ísnálin veitt fyrir bestu þýðinguna. Bjarni Gunnarsson þýðandi og Jo Nesbø rithöfundur hrepptu Ísnálina að þessu sinni fyrir glæpa­söguna Sonurinn, og tók Bjarni við verð­launum fyrir hönd þeirra tveggja.“

Pressan sem þufti

Ragnar fær hug­myndir alls staðar að, meðal ann­ars úr blaða­greinum.

Glæpa­sögur njóta mikilla vinsælda um heiminn og á Íslandi eru ekki mörg ár síðan erlendir krimmar í kiljum fóru að koma út allan ársins hring og seljast eins og heitar lummur. Íslenska glæpa­sagan er heldur ekki mjög gömul því lengi vel þóttu slíkar bækur ekki nógu trúverðugar á litla Íslandi. Ragnar hóf feril sinn á svolítið óvenju­legan hátt, eða tók þátt í samkeppni. Hann vissi fyrirfram að bókin hans myndi ekki sigra en sendi hana samt inn.

„Bóka­útgáfan Bjartur auglýsti eftir hinum íslenska Dan Brown, eða bók í anda Browns, árið 2008. Ég var með bók í huga, ekki í þessum anda en notaði tækifærið og sendi hana inn. Þetta var pressan sem ég þurfti til að klára bókina og konan mín ýtti á eftir mér svo að ég skilaði hand­ritinu á réttum tíma. Enginn íslenskur Dan Brown fannst en Veröld, systur­forlag Bjarts, gaf bókina mína út og bað um aðra að ári. Þannig að Fölsk nóta sá dagsins ljós og allt fór af stað,“ segir Ragnar og bætir við að fyrsta glæpasaga Lilju Sigurðar­dóttur hafi einnig sprottið upp úr þessari Dan Brown­samkeppni.

Ragnar fær hugmyndir alls staðar að. „Blaða­greinar sem ég les geta kveikt hugmynd, þarf oft ekki nema eitt orð, einnig fréttir, samtöl þar sem fólk segir mér sögur en það fólk myndi þó aldrei þekkja þær sögur í bókum mínum, enda kveikja þær yfirleitt einfald­lega hugmyndir að einhverju allt öðru,“ segir Ragnar og brosir en hverja af bókum sínum heldur hann mest upp á? „Uppáhalds­bókin mín er yfirleitt alltaf sú nýjasta … og besta bókin alltaf sú næsta.“

Blaða­greinar sem ég les geta kveikt hug­mynd, þarf oft ekki nema eitt orð.

Nýr karakter

Ragnar, áminntur um sannsögli, ertu byrjaður á næstu bók og ætlar þú að leyfa aðal­persónunni að tóra eitthvað áfram? „Já, já, ég er byrjaður á nýrri bók og þar er nýr aðal­karakter, lögreglu­maður sem fær að lifa,“ lofar Ragnar og bætir við: „Ari lögreglu maður úr fyrstu bókunum er nátt­úrlega enn á lífi og ég á til einn fjórða úr bók um hann sem ég klára einhvern daginn. Ég er búinn að hugsa þá sögu alveg til enda en hef ekki enn haft tíma til að skrifa hana.“ Ragnar byrjar alltaf á nýrri bók í september, hann þarf að skila hand­ritinu til útgefandans að vori. Það er lesið yfir um sumarið og gerðar athuga­semdir, ef þarf. Hann segir að athuga­semdum hafi fækkað með hverri bók, ferlið sé mjög lærdóms­ríkt og hægt að læra af mistökum sínum.

„Ég myndi aldrei senda frá mér bók nema hún fari í gegnum svona nálarauga, þetta er kannski ekki skemmtilegasti tíminn, það eru skrifin sjálf, en hann er býsna mikil­vægur. Una hét t.d. stundum Hulda í nýju bókinni en það var auðvitað lagað í yfir­lestri,“ segir Ragnar og hlær.

Hann vinnur sem lögmaður á daginn og þá er það samveran með fjöl­skyldunni. Um tíuleytið á kvöldin, þegar allt er komið í ró, sest hann við tölvuna og galdrar fram alls kyns plott og persónur. Hefði hann trúað því þegar hann sat í háskóla og lærði lögfræðina að ekki svo mörgum árum seinna yrði hann virtur og vinsæll glæpasagna­rithöfundur? „Ég sá aldrei sjálfan mig fyrir mér sem rithöfund, ég ætlaði aldrei að skrifa skáldsögur, ég miklaði það fyrir mér en þetta var alltaf draumurinn,“ segir Ragnar einlægur. „Ég ólst upp við bækur, Ólafur Ragnarsson bóka­útgefandi var föður­bróðir minn, og faðir minn, Jónas Ragnarsson, hefur skrifað bækur, m.a. Daga Íslands og Jóla­minningar. Afi skrifaði bækur um Siglu­fjörð og ekki má gleyma mömmu sem er lækna­ritari, hún hefur verið mjög dugleg að lesa bækurnar mínar yfir.“

Gott skipulag galdurinn

Minnstu munaði að Ragnar færi í íslensku í háskóla en hann valdi lögfræðina og hefur aldrei séð eftir því. Starfið segir hann vera mjög skemmtilegt, en hann sýslar með fjár­festingar­sjóði hjá fjármála­fyrirtækinu Gamma. „Lögfræði­starfið er mjög fjöl­breytilegt en mér finnst gott að hafa þetta tvennt alveg aðskilið, ég reyni til dæmis að hafa sem fæsta lögfræðinga í bókunum mínum.“

Ragnar segir að gott skipulag sé galdurinn við að skrifa bækur. „Best er að hugsa um bókina í nokkur ár, skipuleggja sig vel og setjast við skriftir þegar maður sér fyrir söguna, að minnsta kosti aðal­atriði hennar, það virkar best fyrir mig. Ég skrifa endalaust niður hugmyndir í minnis­bækur eða sendi sjálfum mér tölvupóst með hugmyndum, og svo renna þær oft saman í eina bók.“

Lög­fræði­starfið er mjög fjöl­breyti­legt en mér finnst gott að hafa þetta tvennt alveg aðskilið.

Ragnar er giftur Maríu Margréti Jóhanns­dóttur sem vinnur sem almanna­tengill hjá Wow air, mest í tengslum við markaði félagsins í Banda­ríkjunum og Bretlandi. Þau eiga dæturnar Kiru, átta ára, og Natalíu, fjögurra ára. Spurning hvort rithöfundurinn segi dætrunum ekki spennandi sögur á kvöldin? „Jú, ég segi þeim oft sögur en skrifa þær ekki niður. Ég var eitt sinn með hugmynd að barnabók en ég verð að viðurkenna að ég ver alltaf öllum þeim tíma sem ég gef mér til skrifta í glæpa­sögurnar.“

Jólin hjá Ragnari og fjöl­skyldu eru hefð­bundin. „Við verðum heima og með hamborgar­hrygg í matinn að vanda. Eftir­rétturinn er sjaldnast sá sami en við erum alltaf með möndlu­graut í forrétt. Dæturnar fá möndluna ótrúlega oft,“ dæsir Ragnar brosandi og segir að þegar komi að því að kaupa jólatré kaupi hann helst stærra jólatré en komist fyrir í stofunni.

„Skemmtilegast er að þurfa að saga það aðeins til svo það passi akkúrat. Fyrir tveimur árum skar ég reynd ar næstum af mér fingurinn við þær æfingar. Svo horfi ég nú oft á sömu gömlu jólamynd irnar á aðventunni, mæli sérstak­lega með Die Hard I og II, og The Man who Came to Dinner frá 1942. Já, svo eru jóla­kveðjurnar á Rás 1 ómissandi á Þorláks­messu og útvarps­messan á aðfangadags­kvöld, bara allt þetta klassíska íslenska,“ segir Ragnar að lokum.

Mynd/ Hákon Davíð Björnsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra