Landsliðsmaðurinn, Jón Daði Böðvarsson og María Ósk Skúladóttir, unnusta hans, eiga von á sínu öðru barni saman. Fyrir eiga þau eina dóttur en parið greindi frá gleðifréttunum í sameiginlegri færslu á Instagram.
Parið birti fallegar myndir af sér úti í náttúrunni ásamt dóttur sinni sem heldur á sónarmynd af litla systkininu. „Þrjú verða fjögur, apríl 2024,“ skrifuðu þau við myndina. Mannlíf óskar fjölskyldunni innilega til hamingju.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir