Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

„Íslendingar eru þrælar, tjóðraðir með krónufjötrum við staura“

Kristinn Hrafns­son gagn­rýnir gróða bank­anna harð­lega

Íslenska krónan
Íslenska krónan Kristinn er ekki hrif­inn af ofur­gróða bank­anna Mynd: Shutterstock

Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri Wikileaks, gagn­rýnir harð­lega mik­inn hagnað íslensku bank­anna og segir almenn­ing bera kostn­að­inn af því í gegnum háa vexti og krónu­kerfið. Í Facebook-færslu sem hann birti nýverið setur hann spurn­ing­ar­merki við það að ríkið og banka­menn telji eðli­legt að bank­arnir skili um hund­rað millj­örðum króna í hagnað.

„100 millj­arða króna gróði íslensku bank­ana er bara í fínu lagi að mati rík­i­s­tjórn­ar­innar,“ skrifar Kristinn og bendir á að banka­menn hafi varið hagn­að­inn með því að vísa til arð­semi eigin fjár, svo­kall­aðs RoE. „Ég sé einnig að ein­hverjir banka­menn full­yrða að þetta sé ekki mikið því þetta sé álíka hlut­fall gróða­skila til eig­enda og tíðk­ist í Evrópu (RoE). En jafn­vel þar eru íslensku bank­arnir hærri en víð­ast í Evrópu.“

Kristinn segir að þessi sam­an­burður ein­blíni fyrst og fremst á hags­muni eig­enda bank­anna.

„Þarna er ein­blínt á hags­muni eig­enda. Ef sam­an­burð­ur­inn á að vera á for­sendum við­skipta­vina er eðli­legra að nota mælistik­una hvað gróð­inn er hátt hlut­fall af „eignum“ bank­ans (RoA).“ Hann útskýrir að þessar eignir séu í raun skuldir almenn­ings. „Þær „eignir“ eru að langstærstum hluta hús­næð­is­lánin þín, önnur lán til einka­að­ila, lán til fyr­ir­tækja – lík­leg­ast eru þetta 60–80% af eigna­safni. Eignir bank­ana eru sum sé skuldir lands­manna.“

Í færsl­unni ber Kristinn saman arð­semi eigna íslenskra og evr­ópskra banka og segir mun­inn slá­andi. „Hreinn gróði sem hluti af eigna­safni (RoA) er á bil­inu 0,4%–0,8% í stórum evr­ópskum bönkum. Stóru við­skipta­bank­arnir þrír á Íslandi eru með þetta hlut­fall 1,5–1,9%, eftir að gróði lið­ins árs var gerður upp.“ Hann birtir jafn­framt tölu­legan sam­an­burð sem sýnir að hlut­fallið sé mun hærra hér á landi.

Af þessu dregur Kristinn þá ályktun að hagn­aður bank­anna ætti að vera mun lægri ef miðað væri við Evrópu. „Útfrá þessum for­sendum mætti álykta að „heil­brigður“ heild­ar­hagn­aður bank­anna á Íslandi ætti að vera 25–50 millj­arðar króna, miðað við evr­ópskan sam­an­burð.“ Hann segir þetta þýða að almenn­ingur borgi auka­lega fyrir íslenska gjald­mið­il­inn. „Það þýðir þá vænt­an­lega, ef litið er til pen­inga­sjopp­ana ein­göngu, eru Íslend­ingar að borga 50–75 millj­arða auka­lega á ári fyrir að hafa krónu.“

Í lok færsl­unnar notar Kristinn mynd­rænt og harka­legt orða­lag til að lýsa stöðu almenn­ings gagn­vart banka­kerf­inu. „Íslend­ingar eru þrælar, tjóðraðir með krónu­fjötrum við staura og vext­irnir eru blóðug hnúta­svipa sem ristir upp holdið á bökum þeirra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Peningar

Kaup­máttur jókst um 5,8 pró­sent frá upp­hafi kjara­samn­inga­lot­unnar

Atvinnuleysi fór á öðrum ársfjórðungi í fyrsta sinn frá 2010 yfir meðaltal OECD, þótt það sé enn tiltölulega lágt í alþjóðlegum samanburði.
  • Skiptum lokið á þrota­búi Talays

  • Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

  • Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

  • Lands­liðs­konur í ný störf

  • Danskur hag­fræð­ingur segir krón­una hafa verið mis­heppn­aða til­raun í heila öld