Í tilkynningu frá lögreglunni kemur segir að klukkan 20:18 í kvöld lögreglunni í Vestmannaeyjum tilkynning frá skipverjum á bát sem var á leið inn til hafnar, að bifreið hafi farið í höfnina á Nausthamarsbryggju.
Allt viðbragðslið var ræst út og kafari sendur niður.
Greiðlega gekk að ná ökumanninum upp, sem var einn í bílnum.
Lífgunartilraunir hófust þegar í stað en báru ekki árangur og var ökumaðurinn úrskurðaður látinn.
Lögreglan vill þakka öllum viðbragðsaðilum og vottar aðstandendum samúð.
Rannsókn stendur yfir af tildrögum slyssins.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir