Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Biðlar til almennings um fjárhagsaðstoð: „Tjáningarfrelsið er sem sagt fyrir fáeina útvalda“

Páll Vilhjálmsson bloggari óskar eftir fjárhagsaðstoð eftir að Héraðsdómur dæmdi orð hans ómerk. Myndin er samsett
Páll Vil­hjálms­son blogg­ari óskar eftir fjár­hags­að­stoð eftir að Hér­aðs­dómur dæmdi orð hans ómerk. Myndin er sam­sett

Páll Vilhjálmsson kennari og mbl-bloggari hefur óskað eftir fjárhags­aðstoð vegna máls­kostnaðar eftir að hafa verið dæmdur, í Héraðs­rétti, til að greiða tveimur blaða­mönnum Heimildarinnar 1,5 milljón. Færsla Páls ber yfir­skriftina Áfrýjun til landsrétt, máls­kostnaður.

Málið

Blaða­mennirnir Þórður Snær Júlíusson og Arnar Þór Ingólfsson kærðu Pál Vilhjálmsson fyrir meiðyrði vegna ummæla sem framhalds­skóla­kennarinn hafði uppi um þá á bloggsíðu sinni, þar sem hann staðhæfði að Þórður og Arnar hefðu framið alvarleg hegningar­lagabrot með aðkomu þeirra að byrlun manns og þar eftir rænt hann.

Héraðs­dómur Reykja­víkur ómerkti ummæli Páls og þarf kennarinn að greiða blaða­mönnunum 300 þúsund krónur, hvorum fyrir sig, auk máls­kostnaðar upp á 700 þúsund krónur.

Óskar eftir aðstoð

„Tjáningar­frelsið er sem sagt fyrir fáeina útvalda. Þeir sem andæfa ráðandi frásögn fjölmiðla og vekja athygli á lögleysunni hljóta verra af – til dæmis málssókn. Dómnum frá föstudag verður áfrýjað enda tekur engu tali að ekki megi segja á opinberum vettvangi að máls­aðilar eigi aðild, beina eða óbeina,“ segir Páll í færslunni og bendir á að fjöl­miðlarnir RÚV og Heimildin séu fjár­magnaðir af ríkinu, á meðan hann sjálfur sé einungis launa­maður.

Blogg­arinn Páll biður hjálpfúsa að millifæra á fjárvörslu­reikning og lætur í ljós að þó nokkrir hafi haft samband við sig og óskað eftir upplýsingum hvernig mætti aðstoða.

Hér að neðan má sjá færslu Páls í heild:

Áfrýjun til landsrétt, máls­kostnaður. 

Tilfall­andi bloggari var fyrir helgi dæmdur til að greiða tveim blaða­mönnum RSK-miðla um 1,5 m.kr. vegna blogg­skrifa um aðild RSK-miðla að byrlun Páls skip­stjóra Steingríms­sonar og stuldi á síma. ,,…það má ekki segja hvað sem er um hvern sem er,“ sagði annar blaða­mannanna, Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, við dóms­uppsögu á föstudag.

Tjáningar­frelsið er sem sagt fyrir fáeina útvalda. Þeir sem andæfa ráðandi frásögn fjölmiðla og vekja athygli á lögleysunni hljóta verra af – til dæmis málssókn. Dómnum frá föstudag verður áfrýjað enda tekur engu tali að ekki megi segja á opinberum vettvangi að máls­aðilar eigi aðild, beina eða óbeina.

RSK-miðlar, RÚV, Stundin og Kjarninn (nú Heimildin) eru fjár­magnaðir af ríkinu. RÚV er á fjárlögum og Heimildin fær fjölmiðla­styrk úr ríkis­sjóði. Tilfall­andi bloggari er launa­maður.

Lesendur hafa haft samband og spurt hvernig mætti leggja tilfall­andi athuga­semdum lið með fjár­framlagi vegna máls­kostnaðar. 

kRST lögmenn ehf. hafa verið svo vinsam­legir að opna fjárvörslu­reikning til að halda utan um máls­kostnaðinn. Þeir sem vilja leggja málinu lið er bent á reikninginn sem skráður er hér að neðan – með fyrirfram þökkum frá tilfall­andi bloggara.

KRST lögmenn ehf.

Kennitala

711204-2960

Reiknings­númer

0513-14-640046

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim