Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Saki gefur út lagið Dauðvona: „Leyfi efanum og óörygginu ekki stjórna því sem ég geri“

Saki
Saki

Ísak Dagur Krist­jáns­son er nýtt nafn í tón­list­ar­heim­inum á Íslandi en hann rappar undir nafn­inu Saki. Glænýtt lag er komið út eftir kapp­ann.

Mannlíf ræddi við hinn 21 árs gamla rapp­ara, Ísak Dag Krist­jáns­son eða Saki eins og hann kallar sig, í kjöl­far þess að glæ­nýtt lag eftir hann er komið út en það ber heitið Dauðvona.

Hver er Saki?

„Saki er lista­maður sem er alinn upp í Hlíðunum. Hann á sér marga drauma og tón­listin er fyrsta skrefið í átt að þeim. Hann er ungur, ákveð­inn og leggur sig allan fram í því sem hann gerir. Saki ætlar alla leið.“

Ertu búinn að vera lengi að vinna í tónlist?

„Já ég myndi alveg segja það, en ég er samt bara á byrj­un­ar­stigi eins og er. Ég byrj­aði fyrst að skrifa ljóð þegar ég var tólf ára, fór svo að fikta við tón­list og texta­gerð seinna á ung­lings­ár­unum. Ég hef verið að taka þetta alvar­lega núna í um þrjú ár, og ein­beitt mér að því að verða betri.“

Nú heitir lagið Dauðvona og fjallar meðal ann­ars um ein­manna­leika og efa­semdir, er það eitt­hvað sem þú hefur þurft að glíma við?

„Ein­manna­leiki er eitt­hvað sem ég held að við upp­lifum öll öðru hvoru. Þegar ég samdi þetta lag var ég atvinnu­laus og í svolitlu rót­leysi. Það var mikið í gangi hjá mér og mér fannst ég ekki eiga neinn að. Að sjálf­sögðu var það ekki raunin, en á þessum tíma leið mér þannig. Efa­semdir um sjálfan mig hafa haldið aftur af mér síð­ustu ár. Ég tók sex mán­aða pásu frá tón­list sum­arið 2022, aðal­lega vegna þess að mér fannst það sem ég var að gera ekki hljóma nógu vel, eða ekki nógu mikið svona eða ekki nógu mikið hinsegin. Ég hef þurft að læra að þetta er bara partur af þessu ferli og það ganga mjög lík­lega lang­flestir í gegnum þetta. Í dag hef ég meira sjálfs­traust og leyfi efanum og óör­ygg­inu ekki stjórna því sem ég geri.“

Hverjir eru þínir helstu áhrifavaldar í tónlistinni?

„Þeir eru ofboðs­lega margir, tón­list­arsmekk­ur­inn minn er mjög breiður. 2pac hefur alltaf verið í miklu upp­á­haldi hjá mér, eins hefur hljóm­sveitin Kings of leon fylgt mér lengi. Ég hef fengið mik­inn inn­blástur frá tón­list­ar­mönnum eins og XXXTentacion og Juice Wrld, og ég verð líka að fá að nefna bæði Drain gang og nýja Opium stíl­inn sem er búinn að vera í gangi. Til að nefna nokkra Íslenska tón­list­ar­menn, þá hef ég alltaf verið mjög hrif­inn af texta­smíð­inni hjá Birni. Svo hefur soundið hans Daniil haft mikil áhrif á stíl­inn minn und­an­farið. Að lokum vil ég minn­ast sér­stak­lega á Ásgeir Trausta, og radd­beyt­ingu hans í lögum sínum.“

Þú segist stefna langt í tónlistinni, hvar sérðu þig eftir fimm ár?

„Ég sé fyrir mér að vera áfram að gera tón­list, og mjög lík­lega með önnur verk­efni í gangi og fleiri bolta á lofti.“

Hér fyrir neðan má sjá mynd­band við lagið Dauðvona:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Upptökurnar eru frá Mið-Austurlöndum og ná yfir árin 2020 til 2026. Varnarmálaráðuneytið segir enn óljóst hvað þær sýni.
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027