Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fimm ára drengur segir móður sína lemja sig: „Lýsti því að ákærða hefði meitt hann mörgum sinnum“

Íslensk móðir var sýknuð í Héraðs­dómi Reykjaness á dögunum en hún var ákærð fyrir brot á barna­verndar­lögum og líkams­árás. Þann 9 maí í fyrra barst lögreglu tilkynning um hugsanlegt heimilis­ofbeldi á heimili konunnar. Þegar lögregla kom á staðinn tók fyrrum eigin­maður konunnar á móti þeim og sagði hana hafa sparkað í son þeirra og lamið hann í síðuna. Drengurinn bæði sagði frá árásinni og sýndi með látbrögðum hvernig móðir hans lamdi hann. Hann sýndi lögreglu áverka þessu til stað­festingar. Móðirin var þá handtekin og flutt á lögreglustöð, við blásturs­mælingu mældist áfengis­magn 1,97 o/oo. Til saman­burðar er ökumaður talinn óhæfur til aksturs við 0,2 o/oo.

Fyrrum eigin­maður konunnar sagði hana hafa verið við drykkju allan daginn, hann mældist ekki undir áfengis­áhrifum. „Hann  skýrði  lögreglu­mönnum  frá  því  að  ákærða  hafi  verið  við drykkju allan daginn. Hann hafi verið að elda matinn þegar hann hafi heyrt grát í herbergi sonar þeirra og farið til að athuga hvað væri í gangi. Ákærða hafi þá viðurkennt að hafa sparkað í son þeirra. Þegar fyrrum eigin­maður ákærðu og sonur þeirra hafi verið að borða hafi ákærða sest hjá þeim og þá hafi fyrrum eigin­maður ákærðu séð hana slá son þeirra í síðuna  og  hann  þá  farið  að  gráta.  Fyrrum  eigin­maður  ákærðu  hafi  þá  hringt  í Neyðar­línuna,“ segir í dómi Héraðs­dóms Reykjaness.

Daginn eftir atvikið gaf konan skýrslu hjá lögreglu. Hún hélt fram sakleysi sínu og sagðist hafa verið að klæða son sinn í náttföt þegar hún klóraði hann óvart í vinstri síðu, hún sé með langar neglur. Hún sagðist ekki hafa sparkað í son sinn heldur hafi hún verið að leik þegar hún meiddi hann fyrir slysni. Kvaðst hún þá ekki hafa verið undir áhrifum áfengis og segist einungis hafa fengið sér eitt glas af áfengi.

Faðir drengsins fór með hann til læknis daginn eftir atvikið. Samkvæmt læknis­vottorði var hann með fjólu­blátt mar, 2×2 cm á stærð, á miðbaki vinstri síðu. Engir sjáanlegir áverkar voru á kvið drengsins.

„Ákærða neitar sök og kvaðst hafa sótt son sinn á leikskóla kl. 15:00 umræddan dag og fyrrum eigin­maður hennar hafi komið heim kl. 17:00. Hann og ákærða hafi farið að rífast og  hún  þá farið inn í herbergi með son þeirra. Þau hafi verið í ,,flugvéla­leik“ þar sem hann hafi verið flugvélin. Ákærða hafi verið með hnéð við mitti hans og óvart meitt hann en það hafi ekki verið alvarlegt. Eftir það hafi þau haldið leiknum áfram. Nokkru seinna hafi hún verið að klæða son sinn í náttföt en hann hafi ekki viljað vera kyrr og ákærða þá kitlað drenginn.  Hún  hafi  verið  með  langar  neglur  og  óvart  klórað  drenginn  sem  hafi fengið litla skrámu. Drengurinn hafi farið að gráta og þá hafi fyrrum eigin­maður ákærðu komið og spurt hana hvað hún væri að gera við barnið. Þegar þetta hafi gerst hafi fyrrum eigin­maður ákærðu verið inn í herbergi eða inn á baðherbergi. Hann hafi síðan hringt í lögregluna  og  þá  líklega  til  að  hefna  sín  á  ákærðu.  Ákærða  kvaðst  hafa  verið  undir áhrifum áfengis og verið búin að drekka um 200 ml af vodka en hún hafi byrjað að drekka um kl. 17:00 eða eftir að hún hafi sótt son sinn á leik­skólann. Ákærða kvaðst alls ekki hafa  ætlað  að  meiða hann.  Þegar  atvik  urðu  hafi  ákærða  og  faðir  drengsins  verið  í hjóna­bandi en þau séu nú skilin.“

Drengurinn lýsti því í Barnahúsi að móðir hans hafi meitt hann með hendinni og benti á vinstri síðu og maga. Hann segir hana einnig hafa sparkað í hann og að það hafi verið vont. Drengurinn sagði móður sína hafa sagst ætla að berja hann og að hún hafi oft meitt hann. Hann sagði föður sinn líka hafa meitt sig. „Brotaþoli lýsti því einnig að faðir hans væri að lemja brotaþola með hendinni í rassinn og hausinn og það hafi gerst mörgum sinnum. Þegar faðir brotaþola lemji hann í bossann taki faðir hans buxur brotaþola niður og hann meiði sig í bossann.“

Drengurinn var tæplega fimm ára þegar atvikið átti sér stað og sagði hann fyrir dómi að móðir hans hafi lamið hann oftar en einu sinni. Þar sem ekkert vitni sá ofbeldið gerast segir í dómnum að ekki sé hægt að dæma móðurina seka. Hún lýsi atburðum eins bæði í skýrslu­töku og fyrir dómi. Konan var sýknuð og allur saka­kostnaður greiddur úr ríkis­sjóði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim