Einn lést og 11 slösuðust eftir troðning í stúkunni meðal stuðningsmanna alsírska knattspyrnufélagsins Mouloudia Club d'Alger á laugardag í Algeirsborg, að því er kemur fram í tilkynningu frá yfirvöldum í Alsír.
Mouloudia Club d'Alger hafði nýverið tryggt sér meistaratitilinn í Alsír í annað sinn í röð og í níunda skiptið í sögu félagsins, en hátíðarhöldin breyttust í harmleik að leik loknum.
„Stuðningsmenn féllu úr efri stúkunni með þeim afleiðingum að einn lést og ellefu slösuðust,“ sagði í færslu frá yfirvöldum á samfélagsmiðlum, þar sem einnig kom fram að tíu sjúkrabílar hefðu verið sendir á vettvang.
Samkvæmt íþróttavefnum La Gazette du Fennec hrundi öryggishlið sem varð til þess að fjöldi aðdáenda féll niður á neðri stúkuna.
Stade du 5 Juillet leikvangurinn var þéttsetinn þegar Mouloudia Club d'Alger, sem eru ríkjandi meistarar, gerðu markalaust jafntefli við NC Magra.
Vegna harmsins ákvað Alsírska knattspyrnudeildin að aflýsa opinberri verðlaunaafhendingu bikarsins.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir