Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Henson og Hemmi Gunn: „Þegar hann sagðist vera að fara til útlanda fékk ég alltaf sting í magann”

Halldór Einarsson, eigandi Henson, man vel eftir símtalinu þegar honum var tilkynnt að Hemmi Gunn vinur hans væri látinn.

Halldór, sem er oftast kallaður Henson, er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggva­sonar.

„Við hittumst í nánast hverju einasta hádegi í áraraðir. Hann var mjög sérkenni­lega samsettur. Hæfi­leikarnir voru í bunkum á svo mörgum sviðum og hann var með afbrigðum skemmtilegur maður.

En það er enginn sem hefur bara kosti og hann var augljós­lega mjög breyskur líka. En þvílíkt sem hæfi­leikarnir voru enda­lausir. Ef hann hefði til dæmis tekið fótboltann alvarlega hefði hann orðið atvinnu­maður í fremstu röð.

Svo var hann líka mjög greindur og hann var með ofboðs­lega gott hjartalag. En vínið þvældist mikið fyrir honum og kom honum oft í vandræði. Eflaust var pressan líka mikil að vera þessi stór­stjarna í svona litlu landi.

Mér brá alls ekki þegar ég fékk símtalið þar sem mér var sagt að hann væri farinn. Ég hafði haft áhyggjur af honum lengi. Þegar hann hafði fengið hjarta­áfallið nokkru áður var hann í raun mjög heppinn að lifa það af. Alltaf þegar hann talaði um að fara vestur í Dýrafjörð leið mér vel, en þegar hann sagðist vera að fara til útlanda fékk ég alltaf sting í magann.”

Halldór segist enn elska að mæta í vinnuna alla morgna eftir áratuga­störf við að hanna og sauma íþróttaföt; segir að ótrúlegar breytingar hafi átt sér stað síðan hann stofnaði íþrótta­fyrirtækið Henson með eina saumavél að vopni aðeins 22 ára gamall:

„Ég er 75 ára gamall í dag, en mér finnst þetta í raun jafn­áhugavert og skemmtilegt og þegar ég var ungur maður. Þetta eru orðin meira en 50 ár og það hefur gríðar­lega mikið breyst. Þegar ég byrjaði fyrst átti maður svo sem einhverjar treyjur sem maður gat byrjað að herma eftir, en þetta var auðvitað býsna frumstætt. En komandi úr íþróttunum fann ég að það var hreinlega sár vöntun á íslenskum markaði. Það spilaði stóran þátt í að ég ákvað að byrja þessa vegferð. Ég fór á sýningu í London og sá þar í fyrsta sinn nælonefni í treyjur. Fyrir mér var það algjör bylting og ég fór strax í að finna fyrir­tækið sem var að framleiða nælonið, rétt utan við Manchester, og fékk að kaupa af þeim. En ég átti svo eftir að komast að því að það að reka framleiðslu­fyrirtæki á þessum tíma var aðeins flóknara en í dag.

Ekkert internet og gat verið talsvert mikið vesen. Stundum komu vitlaus föt til baka eftir pantanir og þá voru góð ráð dýr. Það kostaði mjög mikið að hringja til útlanda á þessum tíma og þess vegna var oft vænlegra að skrifa bréf þó að það tæki langan tíma. Út frá því veseni kviknaði svo hugmyndin að því að framleiða fötin hreinlega bara hérna heima,” segir Halldór sem hefur upplifað hæðir og lægðir í gegnum árin í viðskiptunum:

„Ég hef upplifað allan skalann. Alveg frá því að vera skít­blankur að reyna að redda hlutunum og redda sölu­skattinum á síðustu stundu, yfir í að vera á þeim stað að verða sterk­ríkur maður ungur að aldri.”

Þrír menn skrifuðu umsögn um Robert Downey þegar hann óskaði eftir uppreist æru árið 2014. Halldór er einn þeirra og segist hann enn sjá mikið eftir því:

„Í fyrsta lagi hefði ég aldrei getað skrifað upp á þetta ef ég hefði gefið mér tíma til að lesa dóminn yfir honum. Ég vissi ekki hvað hafði raun­verulega gerst og þegar hann kom til mín hugsaði ég með mér hvort hann ætti ekkert líf framundan og fór líklega að vorkenna honum. En síðar hitti ég stúlkurnar, fórnar­lömbin og pabbi einnar þeirra kom með og við reyndum að ræða þetta af heilindum og mér fannst það ganga vel. Það sem þær báðu mig um að kanna að gera var hvort ég gæti hreinlega aftur­kallað uppáskriftina og ég fór niður í dómsmála­ráðuneyti til að ganga þeirra erinda. Þar hitti ég lögfræðing sem tjáði mér að það væri einfald­lega ekki hægt. Þannig að þó að ég hafi sannarlega viljað gera það var það ekki í boði. En ástæða þess að þetta fór svo hátt í fjöl­miðlum var líklega vegna þess að ónefndur stjórn­málamaður blandaðist inn í málið,” segir Halldór og bætir við:

„Það er mjög skiljanlegt að það hafi orðið til sterkar tilfinningar í kringum þetta mál allt saman og eðlileg krafa að hækka ránna. En allt þetta mál er í raun bara hræðilegt og það sem hann gerði lætur mig bara fá hroll.”

Er Halldór lítur um öxl á sitt ótrúlega lífshlaup segist hann handviss um hvað hafi verið sín mesta gæfa:

„Ég er mjög lánsamur maður bæði hvað varðar fjöl­skyldu og að hafa unnið við eitthvað sem ég elska í öll þessi ár. Að kynnast konunni minni er mín mesta lukka. Hún hefur alltaf stutt við bakið á mér og unnið með mér. Það þarf sérstaka manneskju til að sigla með manni í gegnum svona lífshlaup og hún er bara ótrúlega flott kona.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim