Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Baba Vanga spáir vitundarvakningu árið 2026

Sið­ferð­is­leg og tækni­leg mörk brotin á nýju ári

Baba Vanga
Baba Vanga Baba Vanga sá fram í tím­ann, þrátt fyrir að vera blind Mynd: Samsett

Eftir því sem dregur nær nýju ári hefur hluti netheims­ins enn og aftur farið að velta því fyrir sér hvað forn­spá­menn og sam­tíma­smiðlar segi að bíði mann­kyns á kom­andi ári.

Nafn Baba Vanga hefur enn á ný komið aftur upp á yfir­borðið, þar sem fylg­is­menn hennar eru farnir að skoða á ný eina umdeild­ustu spá hennar, spá sem sumir telja geta átt við árið 2026: að sið­menn­ing okkar muni brátt átta sig á að hún hafi „gengið of langt“. Spáin á að fjalla bæði um tækni og sið­ferði. Samkvæmt trú­endum spáði mið­ill­inn því að til kæmi ár þar sem sér­fræð­ingar og sam­fé­lög víða um heim kæmu sér sam­eig­in­lega að þeirri nið­ur­stöðu að mörk hefðu verið brotin, bæði sið­ferði­leg og tækni­leg.

Þeir halda einnig fram að þessi vit­und­ar­vakn­ing verði ekki bundin við einn afger­andi atburð heldur komi fram í vax­andi alþjóð­legro spennu og vís­inda­legum fram­förum sem breyti því hvernig mann­fólk teng­ist og lifir. Auk tækni­legra áhyggja bendir Sky History á að þótt margar spár Baba Vanga um efna­hags­leg hrun teng­ist árinu 2025, túlki fylg­is­menn hennar sýnir hennar þannig að efna­hags­leg óvissa og óstöð­ug­leiki muni vara áfram um heim allan inn í árið 2026, sam­kvæmt Express.

Fylg­is­menn hennar vísa einnig í meintar við­var­anir hennar um stjórn­lausar fram­farir í vís­indum og heil­brigð­is­málum. Daily Mail dró sér­stak­lega fram einn slíkan spá­dóm sem snýr að hraðri þróun í gervi­líf­færum og líf­færa­ígræðslum. Á sama meiði er Baba Vanga eignað að hafa spáð því að fjölda­fram­leiðsla gervi­líf­færa gæti haf­ist árið 2046 hið fyrsta. Sið­ferði­lega og tækni­lega grá svæði sem hún á að hafa vísað til eru oft tengd við meinta spá hennar um stórar fram­farir í grein­ingu á krabba­meini.

Fylg­is­menn hennar telja að árið 2026 gætu blóð­próf sem greina margar teg­undir krabba­meina á frum­stigi byrjað að ryðja sér til rúms í að minnsta kosti einu stóru ríki. Þeir segja að hæfni til að greina ill­víg krabba­mein snemma gæti bjargað lífum, en jafn­framt vakið áhyggjur af fölskum jákvæðum nið­ur­stöðum, kostn­aði og for­gangs­röðun ákveð­inna hópa.

Baba Vanga, sem hét réttu nafni Vangelia Pandeva Gústeróva, lést árið 1996 úr brjóstakrabba­meini. Fylg­is­menn hennar telja þó að hún hafi skilið eftir þús­undir spá­dóma sem nái allt til árs­ins 5079, þrátt fyrir að engin skrif­leg skjöl séu til. Spárnar eiga að hafa varð­veist í fjöl­skyld­unni, þar á meðal hjá frænku hennar, Krasim­iru Stoya­nova.

Baba Vanga hefur lengi verið tengd við spár um alþjóð­lega stór­at­burði, á borð við árás­irnar 11. sept­em­ber í New York, dauða Díönu prinsessu og veð­ur­tengdar ham­farir. Gagn­rýnendur halda hins vegar fram að flestar spár hennar séu óljósar og opnar fyrir túlkun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

„Ég var orðinn kynlífsfíkill“
Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Unnusti hennar, David Dangerfield, greindi frá því að hún hefði látist á Filippseyjum, samkvæmt upplýsingum frá fjölskyldu hennar.

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana