Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Heimur

Kyn­þokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 millj­ónir dala í lækn­is­skuldum

Vilja endurnýja Kjalveg með einkaframkvæmd: „Fátt sem styrkir byggðirnar eins og bættar samgöngur“

Átta þing­menn úr röðum Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu er varðar end­ur­nýjun veg­ar­ins yfir Kjöl með einka­fram­kvæmd.

Njáll Trausti Frið­berts­son, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, er fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar.

„Með heils­árs­vegi yfir Kjöl er mögu­legt að stytta til muna leið­ina lands­horna á milli og auð­velda þannig ferðir á milli Suður- og Norð­ur­lands og opna fyrir mögu­leika á þróun nýrra ferða­manna­leiða,“ segir í til­kynn­ingu frá Sjálf­stæð­is­flokknum vegna máls­ins.

Í grein­ar­gerð með þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni er gert ráð ráð fyrir að veg­ur­inn yfir Kjöl verði end­ur­nýj­aður þannig hægt verði að halda honum opnum stórum hluta árs­ins; ráð­gert er að verk­efnið verði unnið sem einka­fram­kvæmd, og segir í grein­ar­gerð að við und­ir­bún­ing að end­ur­nýjun veg­ar­ins sé brýnt að allir fletir máls­ins verði vel greindir; hvernig best væri að standa að fjár­mögnun og hvort skyn­sam­legt sé að líta til fyr­ir­komu­lags­ins við gerð Hval­fjarð­ar­ganga með aðkomu Spalar hf. sem fyr­ir­myndar fyrir þetta mögu­lega verk­efni.

„Við þekkjum að það er fátt sem styrkir byggð­irnar jafn mikið og bættar sam­göngur. Það er stórt og mikið mál innan ferða­þjón­ust­unnar að skapa for­sendur fyrir betri dreif­ingu erlendra ferða­manna um allt land. Allt Ísland, allt árið. Mjög stór hluti allra ferða­manna sem sækja Ísland heim leigja sér bíla­leigu­bíl og keyra um á eigin vegum. Ég er full­viss um að upp­bygg­ing Kjal­vegar er mikið fram­fara­mál sem myndi styrkja byggð­irnar bæði norðan og sunnan heiða,“ segir Njáll Trausti.

Í til­kynn­ing­unni kemur fram að aðrir flutn­ings­menn þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar séu Óli Björn Kárason, Birgir Þór­ar­ins­son, Haraldur Bene­dikts­son, Berglind Ósk Guð­munds­dóttir, Ásmundur Frið­riks­son, Vil­hjálmur Árnason og Guðrún Haf­steins­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto