Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Leghálssýni áfram send til Danmerkur – þúsundir kvenna mótmæltu

„Þessar tvær rann­sókn­ar­stofur nota mis­mun­andi kerfi til að greina sýnin. Þá þurfum við í raun­inni að skipta þessu þannig að hver sýna­töku­að­ili taki aðeins í eitt kerfi, eins og til dæmis eins og heilsu­gæslan mun alla vega enn um sinn halda áfram að senda sýnin til Dan­merkur“ segir Ágúst Ingi Ágústs­son, yfir­læknir Sam­hæf­ing­ar­stöðvar krabba­meins­skim­ana.

Sýni tekin í skimunum fyrir leg­hálskrabba­meini verða þar af leið­andi rann­sökuð ýmist á Land­spít­ala eða á rann­sókn­ar­stofu Hvidovre-sjúkra­húss­ins í Danmörku, þar til samn­ingur rík­is­ins við danska sjúkra­húsið rennur út um næstu ára­mót. Flutn­ingur sýn­anna úr landi hefur verið harð­lega gagn­rýndur af bæði sér­fræð­ingum og þjón­ustu­þegum.

Þúsundir kvenna mótmæltu

Þúsundir kvenna skrif­uðu undir áskorun til heil­brigð­is­ráð­herra og kröfð­ust þess að sýnin yrðu rann­sökuð hér­lendis, sem loks var fall­ist á, með þeim fyr­ir­vara að geta til grein­inga á Land­spít­ala kæm­ist fyrst í góðan far­veg.

Land­spít­ali mun fyrst um sinn aðeins taka við sýnum sem tekin eru hjá kven­sjúk­dóma­læknum, sýnin sem tekin verða á heilsu­gæsl­unni verði send til Dan­merkur.

Í byrjun mán­að­ar­ins hóf Land­spít­ali form­lega grein­ingar á sýnum sem tekin eru í skimunum við leg­hálskrabba­meini. Aðdrag­and­inn að því að sýnin rati til Land­spít­ala hefur verið langur og gengið á ýmsu, en þegar sýna­tök­urnar voru færðar frá Leit­ar­stöð Krabba­meins­fé­lags­ins yfir til opin­bera heil­brigð­is­kerf­is­ins, biðu konur í allt að sjö mán­uði eftir nið­ur­stöðum.

Þá var fram­kvæmd sýna­tök­unnar sett í hendur heilsu­gæsl­unnar, undir stjórn Sam­hæf­ing­ar­mið­stöðvar krabba­meins­skim­ana, og samið við dönsku rann­sókn­ar­stof­una um grein­ingu sýn­anna.

Land­lækn­is­emb­ættið vinnur nú að sam­an­tekt um þátt­töku í leg­háls­skimunum, en sam­kvæmt fyrstu nið­ur­stöðum þá dvín­aði þátt­taka í kjöl­far þessa langa bið­tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Mannanafnanefnd samþykkti átta eiginnöfn en hafnaði tveimur eiginnöfnum og einu millinafni.
Innlent

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Heimur

Ísrael hefur nán­ast útrýmt ævafornum ólífutrjám Gaza

Fólk

Átta mis­tök sem fólk ætti að forð­ast ef það flýgur um jólin

Heimur

Rússar sagðir und­ir­búa kjarn­orku­vopn á braut um jörðu

Innlent

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

„Ég biðla til þeirra þingmanna sem kalla sig jafnaðarmenn að beita sér gegn þessum breytingum“

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984