Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Lindarhvoll og leyndarhyggjan: Alþingi ber að afhenda skýrslu sem Birgir Ármannsson situr á

Birgir Ármannsson.
Birgir Ármanns­son.

Forsætis­nefnd Alþingis ber að afhenda greinar­gerð setts ríkis­endur­skoðanda, Sigurðar Þóris­sonar, frá árinu 2018, samkvæmt lögfræði­áliti er unnið var að beiðni nefndarinnar; hins vegar hefur forseti Alþingis komið í vegi fyrir birtingu í máli sem einkennist helst af mikilli leyndar­hyggju, eins og segir í frétt ruv.is.

Er þetta niður­staða lögfræði­álits er Flóki Ásgeirsson, lögmaður hjá Magna lögmönnum, vann að beiðni forsætis­nefndarinnar; álit Flóka er nú orðið tveggja ára gamalt; leit þó ekki dagsins ljós fyrr en fyrir helgi.

Hefur því greinar­gerð Sigurðar ekki verið opinberuð þótt að forsætis­nefnd hafi í apríl­mánuði í fyrra ákveðið að það skyldi gert.

Forseti Alþingis, Birgir Ármannsson, hefur komið í veg fyrir það; hann hefur sagt greinar­gerðina vinnu­skjal, og að um slík skjöl gildi ekki ákvæði upplýsinga­laga; en þessari túlkun deilir Birgir með núverandi ríkis­endur­skoðanda – en þó vill Sigurður sjálfur að greinar­gerðin verði birt.

Var eignarhalds­félagið Lindar­hvoll stofnað utan um hlut ríkisins í hinum og þessum félögum er komust í hendur þess eftir samkomulag við kröfuhafa föllnu bankanna; var hlutverk Lindar­hvols að koma eignunum, upp á hundruð milljarða, í verð.

Þegar því verki var lokið árið 2018 var félaginu slitið; fékk forsætis­nefnd sama ár fyrr­nefnda greinar­gerð frá Sigurði.

Jafnvel þótt greinar­gerðin hafi verið afhent forsætis­nefnd, hafa nefndar­menn ekki fengið af henni afrit; þeim hefur einungis verið heimilt að skoða hana í lokuðu herbergi – án skriffæra eða síma.

Undan­farið hafa málefni Lindar­hvols ratað í kastljós fjölmiðla síðustu vikur vegna dómsmáls er rekið er fyrir Héraðs­dómi Reykja­víkur.

Það er félag sem kallast Frigus II, sem hefur stefnt Lindar­hvoli sem og íslenska ríkinu vegna sölu Lindar­hvols á félaginu Klakka, sem áður hét Exista; halda forsvars­menn Frigusar því fram að Lindar­hvoll hafi ekki tekið hæsta tilboði í Klakka; fara þeir fram á 650 milljóna króna skaða­bætur vegna málsins.

Frigus II er í eigu Sigurðar sem og bræðranna Ágústs og Lýðs Guðmunds­sonar, en bræðurnir eru oftlega kenndir við félag sitt, Bakkavör, en það átti um 45% hlut í Exista fyrir hrunið árið 2008.

Í tengslum við það mál hefur Frigus óskað eftir afriti af greinar­gerðinni áður­nefndu, sem Flóki Ásgeirsson vann fyrir forsætis­nefnd.

Það var svo í síðustu viku að úrskurðar­nefnd um upplýsingamál komst að þeirri niður­stöðu að álitið skyldi birt opinber­lega.

Lind­ar­hvoll ber að af­henda álits­gerð og minn­is­blöð; hvenær – og jafnvel hvort – greinar­gerðin verður opinberuð mun tíminn einn segja til um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim