Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Katrín Júlíusdóttir: „Ég bognaði því allhressilega“

Katrín Júlíusdóttir
Katrín Júl­í­us­dóttir

„Ég hef sinnt núverandi starfi í tæplega sex ár og átt mjög góða tíma. Nú finnst mér tími kominn til að líta aðeins upp úr þeim verkefnum og taka einhvers konar „kúnstpásu“ í þessu spilverki sem lífið er,“ segir Katrín Júlíusdóttir, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka fjármála­fyrirtækja, sem hefur sagt starfi sínu lausu.

Hvað stendur upp úr á þessum árum hjá samtökunum?

„Í fyrsta lagi verð ég að nefna allt fólkið sem ég hef verið svo lánsöm að starfa með að alls kyns ólíkum verkefnum. Ég hef unnið með sterku fagfólki og góðum manneskjum sem hafa kennt mér mikið. Ég mun sakna þeirra mikið þó að mörg þessara tengsla hafi leitt til fallegrar vináttu sem mun endast ævina ef ég fæ einhverju ráðið. Í öðru lagi þá verð ég að nefna fjöl­breytileika starfsins. Hér er aldrei lognmolla.“

Fjár­mála­fyr­ir­tækin voru nýskap­andi í leiðum til að mæta aðsteðj­andi vanda.

Katrín segir margt standa upp úr þegar hún er spurð hvaða verkefni séu eftir­minnilegust og hafi skipt mestu máli. „Ég verð þar fyrst að nefna heims­faraldurinn og þau öflugu viðbrögð sem starfs­fólk fjármála­fyrirtækja sýndi í þeirri óvissu sem við blasti strax í upphafi. Allir lögðust á eitt við að mæta fólki og fyrir­tækjum til að verja heimili og störf innan þess ramma sem þeim var heimilt. Fjármála­fyrirtækin voru nýskapandi í leiðum til að mæta aðsteðjandi vanda og unnum við á skrif­stofu SFF til dæmis hratt og þétt með aðildar­félögum okkar, lífeyris­sjóðum og opinberum aðilum að gerð samkomu­lags um greiðslu­fresti á lánum fyrir­tækja og heimila. Þetta samkomulag gerði fyrir­tækjum og heimilum kleift að komast hratt í skjól á erfiðum óvissu­tímum. Viljanum til að ganga eins langt og framast var unnt gleymi ég seint. Fleiri verkefni frá þessum tíma gæti ég líka nefnt en þau einkenndust öll af þessu sama viðhorfi, að gera allt sem hægt er til að verja heimili og störf.

Mig langar líka að nefna nýlegt verkefni sem er fræðslu­átak gegn netsvikum sem heitir „Taktu tvær“. Við settum í byrjun ágúst af stað auglýsingar og upplýsingavef ásamt Samtökum atvinnu­lífsins og Neytenda­samtökunum. Þar er farið yfir leiðir netþrjóta til að svíkja út fé og hvernig við getum varið okkur sem best. Einnig leggjum við áherslu á að við ræðum þetta opinskátt og skilum skömminni sem margir upplifa sem hafa orðið fyrir barðinu á netþjófum. Samtökin koma að mörgum svona verkefnum sem hefur verið gaman að taka þátt í og rekum við meðal annars öfluga fjármála­fræðslu með Lands­samtökum lífeyris­sjóða sem heitir Fjármálavit.“

Katrín segist hafa lært mikið um fjármála­heiminn og samfélagið á þessum árum hjá samtökunum. „Ég hef kannski ekki síst séð enn betur hversu miklu máli fjármála­fyrirtækin skipta í okkar samfélagi hvort heldur sem er í með- eða mótvindi. Við þurfum að hafa sterk og vel rekin fjármála­fyrirtæki og mér finnst flestir gera sér grein fyrir því þó að auðvitað komi alltaf upp umræða um leiðirnar fram á við og hlutverk fjármála­fyrirtækja. Sú umræða er heilbrigð og eðlileg í ljósi þess mikilvæga hlutverks sem þau gegna. Þá eru þau einnig að fá sífellt fleiri og stærri samfélagsleg hlutverk svo sem í loftslags­málum og í barátt­unni gegn skipulagðri glæpa­starfsemi. Ástæðuna fyrir því tel ég vera að þar býr mikil fagleg þekking og geta til að leggjast á árarnar með samfélaginu í stórum mikil­vægum málum.“

Ég er for­vitin og ævin­týra­gjörn að eðl­is­fari.

Hvað tekur nú við? „Ég held störfum mínum áfram um tíma eða þar til ráðning nýs framkvæmda­stjóra liggur fyrir. Að því loknu ætla ég aðeins að anda og fara síðan að líta í kringum mig. Lífið hefur upp á svo margt að bjóða. Ég hef mjög fjöl­breytta reynslu, hef unnið í fiski, komið að rekstri barna­fata­verslana, unnið í hugbúnaðar­geiranum og var lengi í stjórn­málum áður en ég hóf störf hér. Ég er forvitin og ævintýra­gjörn að eðlisfari. Það hefur hingað til leitt mig inn á skemmtilegar brautir. Þetta kemur því bara allt í ljós. Ég tek bara eitt skref í einu.

Spennusagnaverðlaun

Fisk­vinnsla, rekstur barna­fata­verslana, hugbúnaðar­geirinn, ráðherra… Svo er Katrín Júlíusdóttir líka rithöfundur og fékk hún á sínum tíma spennusagna­verðlaunin Svartfugl fyrir sína fyrstu bók, Sykur.

„Ég verð að viðurkenna að ég hafði ekki gengið með rithöfunda­feril í maganum. En ég er svo lánsöm að hafa í uppvextinum fengið hvatningu til að láta slag standa og prófa mig áfram. Síðan gerðist það að maðurinn minn, sem er rithöfundur, hvatti mig til þess að prófa. Eftir 17 blaðsíður sýndi ég honum þetta og hann sagði einfald­lega: „Þetta er frábært, haltu áfram.” Ég hef lesið mikið í gegnum tíðina, hlustað á hljóð­bækur og horft á bíó og heimilda­myndir. Ég horfi til dæmis mikið á þætti um raun­verulega glæpi, kannski til að reyna að skilja þetta. Hvað veldur því að fólk fremur glæpi? Er það illska? Græðgi? Reiði? Svik? Ótti? Þessi áhugi á fólki og löngunin til að skilja af hverju fólk gerir óskiljanlega hluti er gott veganesti í skrifin. Þá pælir þú í þessu í gegnum persónu­sköpun. Mér finnst dínamík á milli ólíkra einstaklinga og innan fjöl­skyldna einnig áhugaverð og þegar ég var byrjuð á bókinni þá stækkuðu kaflar sem fjölluðu um þau málefni þannig að það kom mér sjálfri á óvart.

Ég er til dæmis komin með frá­bæran umboðs­mann í Bret­landi eftir að hafa fengið verð­launin.

Það var algerlega ótrúlegt að fá verð­launin og ég trúi því varla ennþá tveimur árum seinna. Það er fyrst og fremst mikill heiður og hvatning til frekari skrifa ásamt því að opna á ný tækifæri ef mér auðnast að vinna fyrir þeim. Ég er til dæmis komin með frábæran umboðs­mann í Bretlandi eftir að hafa fengið verð­launin og er mjög spennt fyrir því samstarfi.“

Katrín er byrjuð að skrifa aðra bók sem byggir áfram á Sigurdísi sem er aðal­persónan í Sykri. „Ég get ekki sleppt henni alveg strax því mér þykir líka bara svo vænt um hana. Hún er svo ung í Sykri að það er heilmikið eftir af hennar sögu. Þetta er því glæpasaga, með breyskum persónum, flókinni fjölskyldudínamík en líka ást. Ég vonast til að geta klárað hana á næsta ári.“

Katrín segir að þær bækur sem hún les séu margar og misjafnar. „Ég hef lesið mikið af spennu­sögum í gegnum tíðina og leita mikið í þær en einnig ævisögur af öllu tagi; þær hlusta ég mikið á þegar ég er að sinna heimilis­störfum. Þá les ég líka töluvert af skáld­sögum af ýmsu tagi og á það til að taka einn höfund fyrir í einu ef ég dett niður á bók sem mér líkar.“

Mikill hraði hugsana

Ástin. Maðurinn hennar Katrínar er Bjarni M. Bjarnason rithöfundur.

„Við eigum fjóra stráka á aldrinum 10 til 23 ára og búa þrír þeirra hjá okkur en stjúpsonur minn býr í Noregi hjá fjöl­skyldu sinni þar. Það er því líf og fjör og við viljum hafa heimilið opið. Hjá okkur eru því alltaf nokkrir gestir og á ólíkum aldri og þannig viljum við hafa það. Við fjöl­skyldan erum því voða heimakær og finnst best að dúlla okkur heima við. Okkur er þó farið að langa til að ferðast meira og sýna strákunum heiminn. Mér finnst það mikilvægt til að gefa þeim víðsýni og öryggi, til að elta drauma sína, í veganesti út í lífið.“

Hvað með lífs­stílinn og áhuga­málin?

Þá er gjarnan mik­ill hraði hugs­ana í hausnum á mér, enda greind ofvirk.

„Ég byrjaði að fikra mig áfram í köldu pottunum fyrir nokkrum árum og nú er kæling orðin ómissandi hluti af lífi mínu. Við fjöl­skyldan förum mikið í sund og þá finnst mér best að enda sund­ferðina í kalda pottinum. Síðan finnst mér alger dásemd að fara í vötn og er Kleifar­vatn í algeru uppáhaldi en þangað fer ég með góðum vinum allan ársins hring nema þegar ísinn er það þykkur að hann loki vatninu. Þetta gefur svo góðan kraft en líka hvíld. Mér finnst þetta hafa góð áhrif á líkamann og svo færðu góða „mont-orku“ í kjölfarið en hana má ekki vanmeta. Þá er gjarnan mikill hraði hugsana í hausnum á mér, enda greind ofvirk, og núvitund eða hugleiðsla hefur oft reynst mér erfið. Þessi heila­virkni er oft mikill kostur og hefur komið mér langt en getur verið ansi lýjandi líka. Í kalda vatninu stoppar hrað­lestin og það hægir á öllu sem gefur góða hvíld í erilsömum heimi.“

Mikil vanlíðan

Katrín segir að lífið sé sér gott.

„Ég hef fengið mörg tækifæri sem hafa mótað mig. Þá á ég mikið af vinum sem hafa áhrif á mig á hverjum degi og hjálpa mér að vaxa sem manneskja. Stórir atburðir geta vissulega haft mikil áhrif á mann en við mótumst mest af okkar daglega umhverfi held ég. Mér finnst mikilvægt að sækja í jákvæðan félags­skap þar sem fólk stendur saman, styður og styrkir hvert annað. Ég er því moldrík kona af fjöl­skyldu og góðum vina­böndum sem hafa fylgt mér frá barns­aldri. Mig langar þó að nefna eitt sem hefur kannski mótað grunninn í mér einna mest og það er hversu snemma mér var treyst til að vinna alvöru störf og einnig nokkur sumur á aldrinum 9 – 13 ára þegar ég var send ein í tungu­málanám erlendis. Mér var því kennt snemma að standa á eigin fótum, vera óhrædd og það er gjöf sem ég er foreldrum mínum þakklát fyrir.“

Má þar til dæmis nefna blóð­tappa sem ég fékk í höf­uðið þegar ég var 29 ára.

Þótt lífið sé henni gott þá hefur hún fengið sinn skerf af áföllum.

„Við lendum öll í alls konar í gegnum lífið og ekki verður neitt einfaldara með aldrinum. Ég hef staðið frammi fyrir erfiðum áskorunum eins og margir. Má þar til dæmis nefna blóðtappa sem ég fékk í höfuðið þegar ég var 29 ára og nýlega kjörin inn á þing. Erfiðast var að vera kippt út úr lífinu í nokkra mánuði og frá syni mínum elsta sem þá var einungis rétt að verða fimm ára gamall. Þessi veikindi voru þó blessunar­lega þess eðlis að ég náði mér vel og hef ekki kennt mér meins síðan.

Í einni og sömu vik­unni í júní 2018 lést mér afar kær vinur og ég kom að ungum manni sem féll fyrir eigin hendi auk þess sem ég fékk þá grein­ingu að ég væri með brca2-stökk­breyt­ing­una

Eitt allra erfiðasta tímabil sem ég hef gengið í gegnum persónu­lega var þó fyrir rúmlega fjórum árum en þá í einni og sömu vikunni í júní 2018 lést mér afar kær vinur og ég kom að ungum manni sem féll fyrir eigin hendi auk þess sem ég fékk þá greiningu að ég væri með brca2-stökk­breytinguna. Ég bognaði því allhressilega þetta sumar og það tók mig tíma að vinna úr djúpu hjálpar­leysinu sem helltist yfir mig þessa viku. Ég lýsi þessu stundum þannig að í gegnum tíðina þá hef ég tekið erfið­leika á kassann og haldið áfram en í þetta sinn þá límdist þetta við brjóst­kassann á mér og fór bara ekki. Ég gekk í gegnum tímabil sem einkenndist af mikilli vanlíðan, kvíða og eins varð ég mjög þung í sinni og félags­fælin. Ég komst þó í gegnum þetta á ástinni frá manninum mínum, strákunum, vinum mínum og vinnu­félögum sem ég get seint lýst með orðum hversu þakklát ég er fyrir. Fjöl­skylda unga, fallega mannsins sem ég kom að hjálpaði mér líka mikið og þar urðu til vinabönd sem eru mér afar kær. En örlæti þeirra í minn garð þegar þau voru að ganga í gegnum sína dýpstu sorg sýndu mér líka það fallegasta sem við mann­fólkið eigum í okkur sem er samkenndin og kærleikurinn.

Ég tók líka þá ákvörðun þetta sumar að fara í fyrir­byggjandi aðgerðir vegna brca2 og hóf það ferli í byrjun árs 2019. Samhliða líkamlega bata­ferlinu fór svo að birta til í sálar­tetrinu og mér tókst að vinna úr þessu hjálpar­leysi og því sem af því leiddi. Ég lærði þarna að við komumst bara ákveðið langt á því að valta yfir eigið tilfinningalíf og keyra áfram. Stundum þurfum við að staldra við og horfast í augu við erfiða líðan og díla við hana. Nú býr öll þessi reynsla í mér og gefur mér styrk til að halda áfram að vera ég sjálf og gera það besta úr hverjum degi. Ef eitthvað er þá er ég sáttari í eigin skinni en áður, hef róast og reyni að njóta líðandi stundar. Samanlagt hafa erfiðir tímar líka kennt mér að leggja mig fram um að lifa lífinu fallega. Eiga góð samskipti og koma fram við alla af virðingu því við göngum öll í gegnum erfiða tíma og því alger óþarfi að búa til leiðindi vegna mála sem hægt er að leysa með því að ræða málin og hlusta hvert á annað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Eftir að hafa gert við klakavélar segist einn þátttakandi aldrei hafa pantað klaka aftur.
Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi