Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Inga er samsærisdrottning Íslands: „Þetta tengist allt The Great Reset“

Nýjasti gestur bræðranna Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarps­þættinum Þvotta­húsið er blogg­arinn og Covid-19 samsæris­drottningin Inga Guðrún Halldórs­dóttir. Athugið, þær kenningar og skoðanir sem kom fram í þessu viðtali endur­spegla ekki skoðanir og afstöðu Mannlífs í málum sem snúa að Covid, bólu­setningum og því um líkt.

Inga sem er einnig tækni­teiknari og félags­liði hefur skrifað á annað hundrað blogg­færslur um covid19, bóluefnin og kenningar um alræðis­hyggju og „hina miklu endur­ræsingu.“

Að sögn ræddu bræðurnir Gunnar og Davíð við Ingu með opnu hjarta en gagnrýnum hug og þá sérstak­lega Davíð sem átti afar erfitt með að draga ályktanir sem snúa að þeim samsæris­kenningum sem Inga lagði fram í viðtalinu.

Inga Hall­dórs­dóttir

Hið Nýja upphaf

Inga, sem er kristin, segir að hennar hlutverk á þessari jörðu sé að þjónusta heildina og standa upp í Guðs­hugrekki og benda á samsærið, lygarnar og ranglætið. Minna má það nú varla vera.

Hvað varðar Covid-19 faraldurinn og bólu­setningarnar, vill Inga meina að um sé að ræða mjög skipulagða aðgerð sem hefur með hagræðingu að gera og vissa hlýðnis­herslu. Í því samhengi talar hún um Festa, miðstöð um samfélags­ábyrgð og sjálfbærni. Festa eru einskonar samtök eða gæða­stimpill sem stór­fyrirtæki hafa aðild að, sem brúa bilið milli hins opinbera og einka­rekinna stór­fyrirtækja.

Þar eru haldnar ráðstefnur og fleira tengt umhverfis­málum, endur­skipulagning á fjármála­kerfinu, eins og það er uppbyggt í dag, og endur­skilgreining á því hvernig samfélag okkar er byggt upp.

Þar er líka mikið minnst á heims­markmið til árið 2030 sem kallast „The Great Reset.” eða „Nýtt upphaf.“

„Ég veit að það eru fullt af fyrir­tækjum sem eru inn í þessu og þetta virðist vera gæða­stimpill, þú sérð þetta heims­markmiða­merki, þú alla þessa ráðamenn hjá World Economy of Forum að þeir eru allir með þetta heims­markmiða­barmmerki, þetta tengist allt The Great Reset,“ sagði Inga og bætti við. „Agenda 2130 er áætlun sem er til í skýrslum sem var gerð af sameinuðu þjóðunum og þessi skýrsla er áætlun The New World Order í rauninni, total control yfir öllu,” sagði Inga á átti við skugga­samtök sem samsæris­fólk trúir á og telur að stjórni heiminum á bakvið tjöldin.

Inga hélt áfrma að útskýra ástæðuna fyrir þessu öllu.

„Lúsifer kemur í ljós­eng­ills­mynd, hann kemur ekk­ert með horn og hala, hann nær þér ekk­ert þannig.”

„Ásetningurinn er að ná heims­byggðinni undir vald lítillar stjórnar ríks fólks. Lúsifer kemur í ljósengillsmynd, hann kemur ekkert með horn og hala, hann nær þér ekkert þannig.” En inni í þessari ljós­engilsmynd er hulin gildra. Gildran er að við förum undir þetta totalerian, efnahags­kerfi þar sem til dæmis er kveikt og slökkt á kortinu þínu allt eftir því hvort þú hagir þér vel eða ekki.”

Aðildar­ríki Sameinuðu þjóðanna, þar á meðal Ísland, hafa skuld­bundið sig til að vinna skipulega að innleiðingu mark­miðanna. Heims­markmiðin eru samþætt og snúa að öllum þáttum sjálf­bærrar þróunar, hinnar efnahags­legu, samfélags­legu og umhverfis­legu. Þetta kemur allt fram á heimasíðu Festa á Íslandi

Inga vill meina að þetta sé allt skreytt með pallíettum og kósý­legheitum en sé í raun bara úlfur í sauðagæru. Að um valda­græðgi örfárra einstaklinga búi þarna að baki og það standi til að afmá alla mannúð, andleg­heit, sjálf­stæða, skapandi hugsun úr manninum og í raun framkalla heim sem Guðrún Bergmann kom einnig inn á í viðtali í Þvotta­húsinu, hið foreldra­lausa samfélag.

Vald­beitingin, sem hún vill meina að sé iðkuð kerfis­bundið, er að hennar mati allt hluti af áætlun á sálfræði­legu plani og hafi með blindna hlýðni að gera. Hvernig stjórn­völd herða skrúfuna og losa svo smá áður en hert er aftur. Smátt og smátt eru valdhafar búnir að búa til ákveðið trúar­kerfi í sameiginlegri vitund mannsins sem hefur með hlýðni og einangrun að gera, allt keyrt af ótta við einhvern sameiginlegan óvin, óvin sem getur verið veiru­sýking eða eins og hún Inga nefnir hlýnun jarðar, sem hún vill meina að sé ekki af manna­völdum.

Inga Hall­dórs­dóttir

Valinn maður í hverri stöðu

„Þetta endar alltaf á einstaklingnum, þú ferð í Costco og það er allt í einhverju plasti, ég meina af hverju færð þú ekki bara hveitið í einhverjum sekkjum eins og í gamla daga? Það er alltaf verið að láta einstaklinginn taka allt á sig og nú á einstaklingurinn að taka það á sig út af því að ríki­stjórnin hefur ekki staðið sig í rekstri spítalana.”

Þá talaði hún einnig um út, frá einum blogg­pistli sínum, að það sé valinn maður í hverri stöðu í þessu samsæri. Nefnir í því samhengi foreldra Kára Stef­ánssonar og Ölmu Möller. Hún vill meina að ættar­tengsl margra lykil­manna í stjórn­málum, innan heilbrigðis­kerfis sem og í einka­rekstri og eignar­haldi stór­fyrirtækja séu augljós og þar af leiðandi hagsmunir einstakra fjöl­skyldna eða hópa leiðandi afl í þessari endur­ræsingu. „Þetta er galið ef að þú veist það að hann er að vinna fyrir erlendan lyfjarisa sem er í bólu­efna­framleiðslu, risinn er Amgen sem er í samstarfs­verkefni við bæði Active og Microsoft við fram­leiðslu á bóluefnum,“ segir Inga og er að tala um Kára Stef­ánsson.

PCR prófanir á kóki og apríkósu

„Sjáum ásetn­ing­inn í stríði, þá eru menn bara að ná sér í land­svæði, sumir vilja bara plánetur

Gunnar og Davíð veltu upp þeim möguleika að ásetningurinn með þessari endur­ræsingu sem greini­lega er í kortunum, samkvæmt heimasíðu Festa, sé af hreinum hug og að forsendur hennar sé að göfga og skilvirkja uppbyggingu samfélags manna á þessari jörð.

„Sjáum ásetninginn í stríði, þá eru menn bara að ná sér í landsvæði, sumir vilja bara plánetur. Svo var þessi austurríski alþingis­maður sem gerði próf á kóki og fékk jákvæða niður­stöðu og síðan var það forseti afríku­ríkisins Tansaníu sem gerði próf á apríkósu og fékk jákvæða niður­stöðu,” segir Inga um áræðanleika PCR prófana og vill meina að þau próf séu notuð í áróðurskyni.

Inga er orðin þreytt

Gunnar sem kannski er ekki jafn mikill efahyggju­maður og bróðir sinn Davíð, spurði Ingu í viðtalinu hvort þessi þróun væri ekki bara eðlileg og það sem þorri fólksins vill. Nefndi í því samhengi það tímabil sem Trump gegndi hlutverki forseta Banda­ríkjanna. Það puðruðust allir yfir honum eins og enginn væri morgun­dagurinn en á sama tíma var hann sá sem var kosinn til að gegna þessu hlutverki. Samfélags­uppbyggingin, vildi Gunnar meina, er alltaf í samræmi við megin þorra fólksins og því sé lítið annað að gera en bara halla sér aftur og fylgjast með. Sagði hann ennfremur að 90% þeirra sem myndu horfa eða hlusta á þetta viðtal muni halda því fram að Inga væri klikkuð.

Inga svaraði því til að hún segist vera orðin þreytt, hún er eins og komið hefur fram, búin að skrifa blogg sín á annað ár og hefur það tekið mikla orku frá henni. Hún segist vera komin á stað þar sem hún þurfi mögulega að draga sig í skel hvað þessi mál varðar enda að eigin sögn búin að gera nóg til að vekja fólk til vitundar um spillingu og stór­samsæri hinnar fámennu elítu.

Viðtalið má hlusta á í heild sinni á öllum helstu streymis­veitum sem og að horfa á það í mynd Hér fyrir neðan

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Náttfata­veisla unglings­stúlkna endaði í harmleik

Um 50 ungmenni mættu í veisluna eftir að hún hafði verið auglýst á netinu
Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt