Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Kristinn Rúnar Kristinsson er með geðhvörf: Er ekki að taka strípalinginn aftur niðri á Austurvelli

„Ég var 13 ára þegar ég íhugaði alvarlega að fremja sjálfsvíg. Þá var ég í mínu fyrsta þunglyndi. Ég hélt að mér myndi aldrei líða betur en ég gat ekki gert fjöl­skyldunni þetta. Ég sá bara svart­nætti,“ segir Kristinn Rúnar Kristinsson sem er með geðhvörf og hefur skrifað bók um reynslu sína því tengdu og heldur auk þess fyrir­lestra í skólum og fyrir­tækjum til að fræða fólk. Hann opnaði sig um veikindi sín árið 2014 og hefur síðan verið ötull baráttu­maður um vitundar­vakningu í landinu um geðsjúk­dóma.

Fyrstu einkenni geðhvarfanna fóru að láta á sér bera einmitt þegar Kristinn var 13 ára. „Það er talað um 50% geðhvarfa tengist umhverfinu og 50% erfðum. Í mínu tilfelli eru þetta örugglega 90% umhverfi af því að það er enginn annar í ættinni með geðhvörf. Ég hef lent í tveimur áföllum sem ég held að hafi „triggerað“ þetta. Hið fyrra tengist því að atvinnu­manna­draumarnir í fótbolta gengu ekki eftir, en ég var í lands­liðinu á Shellmótinu 1999, var marka­kóngur árið áður, og einn sá besti í körfunni, og svo lést Guðni, bróðir minn, í flugslysi þegar ég var 18 ára.“

Ég datt svona 20 sinnum í ung­linga­deild­inni í þung­lynd­is­sveiflur eða -lotur sem vörðu í tvær vikur í senn.

Kristinn segist vera öfga­kenndur maður almennt. Ýktur. „Ég þyngdist til dæmis hratt en sumarið 2001 fór ég úr 50 kílóum í 62 kíló; ég náði mér ekkert aftur á strik í boltanum og þetta var bara gígantískt áfall. Ég og fleiri voru búnir að sjá mig í atvinnu­mennsku í fram­tíðinni. Þetta er upphafið að geðhvörfunum. Ég datt svona 20 sinnum í unglinga­deildinni í þunglyndis­sveiflur eða -lotur sem vörðu í tvær vikur í senn. Læknar og sálfræðingar höfðu ekki séð svona svart­nætti hjá 13 og 14 ára dreng. Ég missti til dæmis einn þriðja af öllum 10. bekk; ég fór ekki í samræmdu prófin. Ég var bara metinn í lokin. Ég fór í sálgreiningu og var metinn það sem heitir „óyrtir náms­örðugleikar“. Þetta er í raun og veru misþroski. Annaðhvort var ég mjög öflugur í hlutum svo sem tungu­málum og málfari og svo var ég mjög heftur í til dæmis stærð­fræði og náttúru­fræði. Greindin mín er á milli 70 og 140; 70 á við mjög greindar­skertan mann og 140 á við flug­gáfaðan mann. Þetta var mikið vandamál fyrir mig í skóla.“

Kristinn var í Kópa­vogsskóla og þrátt fyrir mikla vanlíðan oft á unglings­árunum leið honum stundum svo vel og var svo kátur að hann var valinn húmoristi skólans í 10. bekk. Hann segist hafa skammast sín á þessum tíma fyrir þessar neikvæðu tilfinningar og vildi að enginn sæi sig þegar honum leið sem verst.

Kristinn fór í Mennta­skólann í Kópavogi og segir að hann hafi verið erfiður nemandi; hann truflaði í tímum og var með fíflalæti og hann segist ekki hafa nennt að gera neitt þannig séð nema til dæmis þegar kom að ritgerðar­skrifum.

„Ég kláraði svo MK á átta árum. En ég kláraði allavega. Ég er sterkur á vissum sviðum.“

Fuck It Mode

Kristinn fékk fyrstu maníuna árið 2009 og hefur hann sex sinnum farið í maníu í allt. Hann lýsir fjórum þeirra í bókinni sinni Maníu­raunum sem er komin út í ensku þýðingu, Don’t Stop Me.

Sjálft aksjónið stendur yfir í um fjórar vikur þar sem ég sef þá kannski tvo til þrjá tíma á sól­ar­hring og næ aldrei djúpsvefni.

„Maníurnar standa yfir í svona sex til átta vikur. Ég er með geðhvörf 1 sem eru þessar ýktu maníur; þeim fylgja ekkert endilega djúpt þunglyndi þannig að ég er eiginlega mitt á milli greininga en geðhvörf 1 endar yfirleitt á geðdeyfð eftir maníurnar. Sjálft aksjónið stendur yfir í um fjórar vikur þar sem ég sef þá kannski tvo til þrjá tíma á sólar­hring og næ aldrei djúp­svefni. Aldrei. Ég fer aldrei að sofa; legg mig bara á daginn.“ Þörfin fyrir svefn leggst svo yfir hann þegar maníurnar fjara út og hefur hann sofið í 36 tíma samfleytt í kjölfarið. „Þetta er að dempast með aldrinum og ég er ekki að taka strípalinginn aftur niðri á Austur­velli,“ segir Kristinn en í einni maníunni á sínum tíma fækkað hann fötum niðri á Austur­velli og birtist mynd af honum nöktum í fjöl­miðlum. Í annað skipti vildi hann stjórna umferðinni við Smáralind og var líka hand­tekinn í kjölfarið. Svo í einni maníunni var hann nýkominn úr kjálka­aðgerð og gekk þá samfleytt um 100 kílómetra. Hann talar um peninga­eyðslu í maníunum og stundum eyðir hann um milljón krónum á nokkrum vikum með því að nota ýmsar leiðir til að verða sér út um peninga svo sem lán og raðgreiðslur. „Þetta er þá svo mikið „fuck it mode“; seinni tíma vandamál.

Það er alvarlegt að vera í þessu ástandi í einn til tvo mánuði á ári og vera að skandalísera svolítið og leggja þetta á skrokkinn og líka fjöl­skylduna. Það er rafmagnað andrúms­loft þegar ég er í maníu; fjöl­skyldan hefur áhyggjur af mér, sérstak­lega þegar ég var aðeins yngri.“ Kristinn hefur nokkrum sinnum verið lagður inn á geðdeild og þar af verið nauðungar­vistaður þrisvar sinnum.

Heldur fyrirlestra

Eins og þegar hefur komið fram hefur Kristinn undan­farin ár haldið fyrir­lestra í skólum og fyrir­tækjum og rætt um reynslu sína og geðsjúk­dóma. Fyrir­lesturinn kallast Rússíbana­lífið mitt og verkefnið heitir Vitundar­vakning um geðsjúk­dóma.

„Ég er búinn að vera með 70 fyrir­lestra og meira að segja uppistand. Ég held stundum fyrir­lestra í skólum eftir að nemendur eru búnir að lesa Engla alheimsins eða horfa á myndina.“

Ég klippti efni frá því í fyrra til að sýna hvernig manía er.

Margir hafa að undan­förnu tekið eftir síðu Kristins á Faceook, https://www.facebook.com/krkbipolar. Kristinn heldur úti þeirri síðu en þar vekur hann athygli á geðhvörfum og birtir meðal annars myndbönd sem hann tók í maníum. „Þetta eru átta mínútur,“ segir hann um nýjasta mynd­bandið. „Ég klippti efni frá því í fyrra til að sýna hvernig manía er. Það er rosalega sterkt að eiga svona maníu­myndbönd til að sýna fólki hvernig hún er af því að það er erfitt að útskýra maníu.“

Hvað hefur Kristinn lært á þessari vegferð sinni? „Ég hef lært á sjálfan mig og kynnst mörgu eins og geðdeildum. Ég hef lært hvað við eigum langt í land; hvað fólk veit lítið um geðsjúk­dóma. Mér er hrósað að vera hugrakkur og segja sögu mína og koma fram eins og ég er klæddur. Ég held að ég sé vel liðinn en svo finnst sumum ég kannski vera snar­klikkaður.“

Það er einmitt ein ástæða þess að þörf er á fræðslu um þessi mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Leigjandinn viðurkenndi að eldurinn hefði kviknað vegna gáleysis hans

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu