Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

XXX Rottweilerhundar með stórtónleika í maí: „Við erum svo fáránlega æstir“

XXX Rottweiler
XXX Rottweiler Mynd: Aðsend

XXX Rottweilerhundar, ein stærsta rapp­hljóm­sveit íslenskrar tón­list­ar­sögu og texta­gerðar, heldur risatón­leika í Laug­ar­dals­höll föstu­dag­inn 17. maí næst­kom­andi, í sam­starfi við Víking Léttöl.

XXX Rottweiler þarf vart að kynna fyrir þjóð­inni. Hljóm­sveitin kom fyrst saman árið 1999 en skaust svo upp á stjörnu­him­in­inn í mars árið 2000 þegar sveitin vann Mús­íktil­raunir. Þegar síðan sam­nefnd plat­ínu­plata hljóm­sveit­ar­innar kom út undir lok árs 2001 varð spreng­ing sem ekki sér fyrir end­ann á, eins og það er orðað í frétta­til­kynn­ingu frá band­inu.

Rottweilerhundar eru braut­ryðj­endur íslenskrar rapp­senu og í kjöl­far þeirra fylgdi ótal tón­list­ar­manna sem gáfu út rapp á íslensku. Seinni plata Rottweiler kom út árið 2002 en und­an­farin ár hefur hljóm­sveitin gefið út lög með reglu­legu milli­bili sem öll hafa notið mik­illa vin­sælda.

„Það stóð alltaf til að fagna 20 ára afmæl­inu með stórum tón­leikum en heims­far­ald­ur­inn kom í veg fyrir það. Þess í stað ætlum við að keyra á þetta núna þar sem við nálg­umst 25 ára ald­ur­inn, xxxR og með­limir, við erum allir alltaf 25 ára,“ segir Erpur Eyvind­ar­son, BlazRoca, um tón­leik­ana.

Landslið tón­list­ar­manna hefur í gegnum tíð­ina komið við sögu í lögum Rottweilerhunda og stendur til að fá mikið af góðum gestum á tón­leik­ana til að gera þá sem glæsi­leg­asta og segja sögu þess­arar stór­merku hljóm­sveit.

„Það er alveg óhætt að lofa rosa­legri sýn­ingu, stemn­ingin sem mynd­ast á tón­leikum okkar hefur alltaf verið band­brjáluð. Við erum svo fárán­lega æstir í að leggja allt okkar í hvert ein­asta smá­at­riði, fyrir fulla Laug­ar­dals­höll af okkar yfir­burða aðdá­endum“ segir Ágúst Bent Sig­berts­son, Bent, um tón­leik­ana.

Miðasala á tón­leik­ana hefst á föstu­dag­inn, 12. jan­úar, og fer fram á midix.is. Verð á miða í stæði verður kr. 7.900 en verð á miða í stúku verður kr. 11.900.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Upptökurnar eru frá Mið-Austurlöndum og ná yfir árin 2020 til 2026. Varnarmálaráðuneytið segir enn óljóst hvað þær sýni.
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027