Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Ómar lögmaður skuldaði skattinum 53 milljónir króna – Fasteign eiginkonunnar í Garðabæ kyrrsett

Ómar lögmaður.
Ómar lög­maður.

Ómar R. Valdimarsson lögmaður þarf að sæta því að fasteign í Garðabæ, sem skráð er á eiginkonu hans, Margréti Ýr Ingimars­dóttur, hefur verið kyrrsett vegna himin­hárrar skatta­skuldar. Skuldin nam á síðasta ári 53 milljónum króna en óljóst er hvernig hún er tilkomin þar sem Ómar hefur ekki svarað spurningum Mannlífs.

Samkvæmt skjal­festum heimildum Mannlífs hefur fasteignin verið kyrrsett í framhaldi þess að banka­reikningur lögmannsins var frystur. Málið var tekið fyrir hjá Sýslu­manninum á höfuð­borgar­svæðinu á síðasta ári og kyrr­setning eignarinnar færð til bókar. Samkvæmt nýju veðbóka­vottorði eru þau veðbönd enn á fasteigninni. Áður var innistæða á innláns­reikningi Ómars að upphæð rúmar fimm milljón krónur fryst. Krafa skattsins var hins vegar rúmar 53 milljónir króna. Fallist var á að aflétta frystingu banka­reikningsins en kyrrsetja þess í stað fasteignina við Hofslund í Garðabæ. Þeir gjörningar áttu sér stað í maí og júní á síðasta ári.

Ekki liggur fyrir hvernig lögmanninum tókst að stofna var til svo hárrar skuldar. Skilyrði fyrir málflutnings­réttindum eru að menn hafi aldrei þurft að sæta því að bú sé tekið til gjaldþrota­skipta. Auk þess er það skilyrði að lögmaður hafi aldrei hlotið fangelsisdóm. Skatturinn hefur enn ekki svarað fyrir­spurn Mannlífs um málið. Blaða­maður hafði samband við Ómar sem sleit símtalinu án þess að tjá sig efnilega um málið.

Mannlíf hefur fjallað um mál sem úrskurðar­nefnd lögmanna kvað upp þann 14. mars síðastliðinn. Þar var Ómari R. Valdimars­syni gert að endur­greiða skjólstæðingi sínum 1.859.801 krónur að meðtöldum virðis­aukaskatti að frádregnum innborgunum vegna vinnu sinnar við innheimtu slysabóta. Ómar hefur áður verið áminntur af úrskurðar­nefndinni fyrir háttsemi í garð umbjóðanda.

Uppfært: Ómar Valdimarsson segir í yfir­lýsingu að hann sé skuldlaus við Skattinn og birtir bréf því til stað­festingar. Hann sleit samtali við Mannlíf þegar leitað var eftir viðbrögðum hans við vinnslu fréttarinnar. Eftir stendur að á veðbókar­vottorði er enn skráð kyrr­setning á Hofslundi í Garðabæ fyrir tæplega 30 milljónum króna. Fyrirsögn hefur verið breytt í þá veru að tilgreina skuldina sem upphaf­lega var til grund­vallar skuldinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra