Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Bjössi í World Class og Jói Fel í dyrunum á Bankastræti Club: „Rifjuðum upp gamla takta“

„Kannski var þetta ástæðan að enginn var í bænum,“ skrifaði Jói Fel, bakari og veitinga­maður, í færslu á Instragram. Þar birti hann jafnframt mynd af því þar sem hann og Björn Leifsson, eigandi World Class, stilltu sér upp sem dyra­verðir á skemmtistaðnum Banka­stræti Club í gærkvöldi.

Dóttir þess síðarnefnda, Birgitta Líf, hefur staðið í ströngu undan­farna daga eftir alvarlega hnífaárás á skemmtistaðinn í síðustu viku. „Þökkum Guði að ekki fór verr,“ sagði hún þegar hún opnaði sig um hnífa­árásina á dögunum.

Sjá einnig: Bjössi í World Class um hnífa­árásina: „Jón var látinn fara fyrir tveimur mánuðum“

Dyra­vörðurinn Jón Pétur Vágseið er einn þeirra sem fór ásamt  fylkingu 27 hettu­klæddra hnífa­manna inn á skemmtistaðinn Banka­stræti Club aðfarar­nótt föstu­dagsins síðastliðinn. Þrír menn slösuðust alvarlega í hnífa­árásinni eftir að hafa verið marg­stungnir.

„Jón var látinn fara fyrir tveimur mánuðum,“ segir Björn Leifsson, gjarnan kenndur við World Class, í samtali við Mannlíf. Þar vísar hann til dyra­varðarins Jóns Péturs Vágseið, en hann var einn þeirra sem fór ásamt fylkingu 27 hettu­klæddra hnífa­manna inn á skemmtistaðinn Banka­stræti Club aðfarar­nótt föstu­dagsins síðastliðinn.

Sjá einnig: Jón var ásamt hnífa­hernum á Banka­stræti Club – Fjölskyldu­meðlimir hafa flúið land vegna árása

Eftir því sem Mannlíf kemst næst er Jón Pétur um þrítugt og rekur fyrirtæki sem býður dyra­vörslu á skemmtistöðum, á viðburðum og hátíðum se, og í einka­samkvæmum. Hann er nokkuð eldri en flestir hnífa­mannanna sem með honum voru í för þetta kvöld. Engar heimildir eru þó fyrir því að Jón hafi beitt vopni þetta kvöld.

21 hefur verið hand­tekinn í tengslum við málið, tólf sitja í gæslu­varðhaldi en lögregla á enn eftir að taka ákvörðum um hvort farið verði fram á gæslu­varðhald yfir þremur. Hinum hefur verið sleppt úr haldi og fimm til sex manna er enn leitað vegna árásarinnar. Þá hafa fjöl­skyldu­með­limir hinna grunuðu árásar­mannanna sætt stöðugum hótunum og á­rásum síðan og ein­hverjir hafa flúið út á land vegna á­standsins.

Sjá einnig: Marg­stunginn á Banka­stræti Club og sendir kveðju frá sjúkra­beði: „Nokkrar stungur, ekkert stress!“

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu var með mikinn viðbúnað í nótt vegna háværrar umræðu um yfir­vofandi hefndar­aðgerðir eftir árásina á Banka­stræti Club. Segja má að nokkurs konar gengja­stríð hafi geisaði í höfuð­borginni undan­farna daga.Björn og Jói Fel létu gengið þó ekki hræða sig og skelltu sér á Banka­stræti Club í gærkvöldi og brugðu þar á leik með því að taka sér stöðu sem dyra­verðir skemmtistaðarins.  „Rifjuðum upp gamla takta. Tókum dyra­vörsluna á B5. Kannski er það ástæðan að enginn var í bænum,“ skrifaði Jói.

Sjá einnig: Þessir þrír voru stungnir á Banka­stræti Club – „Þetta eru bara skíthælar“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Tilkynning um slysið barst lögreglu skömmu eftir klukkan fjögur síðdegis í gær
Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Innlent

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt