Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sjoppa seldi fíkniefni og lyf: „Þetta er búið að koma upp nokkrum sinnum áður“

Sölu­turninn Draumurinn stóð við Rauðarár­stíg til margra ára. Þangað leituðu útigangs­menn og fíklar enda var þar hægt að festa kaup á hinum ýmsu fíkni­efnum og lyfjum. Þrátt fyrir ítrekaða aðkomu lögreglu hélt reksturinn áfram fram til ársins 2010. Þá var eigandinn, Júlíus Þorbergsson, borinn út.

„Við erum búnir að innsigla og það verður væntanlega gerð krafa um það að þessi staður verði ekki notaður áfram til ólöglegrar starfsemi,“ sagði Geir Jón Þórisson, þáverandi yfir­lögreglu­stjóri, í samtali við mbl.is

Sjö árum áður, í maí árið 2003 birtist frétt í DV þar sem fram kom að við húsleit í sölu­turninum hafi fundist ýmislegur ólöglegur varningur. „Samkvæmt heimildum DV fannst hagla­byssa við húsleitina í söluturninum Draumnum viö Rauðarárstíg í fyrradag og er byssan nú í haldi lögreglunnar. Eins og fram kom í DV í gær fundust fíkniefni í söluturninum, smyglað áfengi og tóbak. Þrír menn voru hand­teknir í tengslum við málið en tveimur þeirra hefur verið sleppt að yfirheyrslu lokinni. Einn maður er enn i haldi lögreglunnar. Starfs­menn Tollstjórans í Reykjavík hafði lengi grunað að þar væri boðið upp á ólöglega innflutt áfengi og tóbak og því var látið til skarar skríða. Við húsleit fannst talsvert af smyglvamingi, auk eitur­lyfja, og var fíkniefnalögreglu gert viðvart um það. Söluturninn hefur lengi verið þekktur fyrir að vera eins konar athvarf drykkju­manna og hafa nágrannar oft kvartað undan ónæði vegna viðskipta­vina staðarins.“ Staðnum var lokað í stutta stund eftir húsleitina árið 2003. Viðskiptin héldu þó áfram að blómstra, þrátt fyrir ólöglega sölu áfengis, tóbaks, lyfja og fíkniefna.

Snemma árs 2010 birti Vísir stutta og laggóða frétt þess efnis að Draumurinn stæði fyrir sölu á lyfinu Rítalín. Misnotkun á lyfinu er þekkt en almennt er það notað við ofvirkni og athyglis­brest. „Frétta­stofa vildi sannreyna málið og fékk manneskju með upptöku­tæki til að fara í sölu­turninn Drauminn á Rauðarár­stíg og biðja um lyfið Rítalín. Þar fékk hún þau svör að lyfið væri ekki til í augna­blikinu en kostaði venjulega þúsund krónur. Matthías segist hafa tilkynnt lögreglunni um málið en hún hafi lítið sem ekkert aðhafst.“

Drauminum var lokað í júní árið 2010. Eigandinn var settur í gæslu­varðhald og seinna dæmdur í 12 mánaða fangelsi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim