Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Ásta hótaði að hjóla í dánarbúið: „Þetta er sú allra mesta mannvonska sem ég hef orðið vitni að“

„Þetta er sú allra mesta mann­vonska sem ég hef orðið vitni að og allt í boði Bláskóga­byggðar með Ástu Stef­ánsdóttur sveitar­stjóra í forsvari sem kvittar undir þetta viðbjóðs­lega bréf. Þið megið deila að vild.“

Svo líkur Steinunn Skúla­dóttir færslu sinni á Facebook þar sem hún greinir frá kaldri kveðju Bláskóga­byggðar eftir að móðir hennar lést fyrir aldur fram. Steinunn segir að ekki hafi liðið mánuður frá því að móðir hennar lést þar til stjúpfaðir hennar fékk hótunar­bréf frá Bláskóga­byggð, undir­ritað af Ástu Stef­ánsdóttur sveitar­stjóra. Steinunn gaf Mannlífi góðfúslegt leyfi til að endur­birta pistil hennar.

Þar fer Steinunn yfir málið frá a til ö. „Mamma mín Inga Björk og stjúpi minn Jón Þór hafa verið með hjólhýsi í Bláskóga­byggð síðastliðin 20 ár. Þau hafa verið dugleg að byggja upp fallega og notalega aðstöðu í kringum hjólhýsið sitt. Börnin þeirra og barnabörn eiga dásamlegar minningar frá sumrunum þarna með ömmu, afa og okkur foreldrunum. Fyrir einu og hálfu ári greinist mamma með íllvígt heilaæxli og strax ljóst að hún ætti ekki mikinn líftíma eftir, nokkrum mánuðum áður er þeim sagt upp leigunni á hjólhýsa­stæðinu og fara strax af stað viðræður á milli leigutaka hjólhýsa­svæðisins og Bláskóga­byggðar varðandi að vinna að lausn þannig að hjólhýsa­svæðið fái að vera starfrækt áfram og skiljanlega er fólk áfram á svæðinu á meðan samninga­viðræður standa yfir. Í júlí 2022 er svo tekin sú ákvörðun að hjólhýsa­svæðinu yrði lokað!,“ lýsir Steinunn.

Í dag er mánuður síðan Inga Björk, móðir hennar, lést. Hún var einungis 56 ára. „Þann 22. júlí 2022 deyr mamma ekki nema 56 ára eftir mjög erfið veikindi sem hafa tekið ofsalega á fjöl­skylduna og sér í lagi manninn hennar sem hugsaði um hana mjög veika fram undir það síðasta. Hún er svo jörðuð 2 ágúst. Af skiljanlegum ástæðum hefur stjúpi minn ekki farið austur í sumar til að taka allt niður þar sem bæði allur hans tími fór í að hugsa um mömmu og hann var einnig að vona að hann gæti fengið að hafa hjólhýsið þarna áfram þar sem þetta var uppáhalds­staðurinn hennar sem var henni svo kær. Eftir jarðar­förina þá hefur hann verið langt niðri og ekki treyst sér til að fara austur án mömmu. Þann 18 ágúst fær hann svo ábyrgðar­bréf frá Bláskóga­byggð. Mamma var skráð fyrir hjól­hýsinu og fær stjúpi minn fyrirmæli um að koma hjól­hýsinu og pallinum og öllu af lóðinni ÞEGAR Í STAÐ! Að öðru leyti yrði leigutaki (mamma) borinn út og gerð krafa í dánarbúið hennar fyrir þeim kostnaði sem af hlýst,“ segir Steinunn.

Stjúpfaðir hennar sá ekki annað í stöðunni en að fara austur. „Hann fer því austur á föstu­daginn og byrjar að rífa allt niður. Allt sem mömmu var kærast. Allt líf sem þau voru í sameiningu búin að byggja þarna upp í 20 ár, tveimur vikum eftir jarðar­förina hennar. Hann hringir svo í mig bugaður á laugar­daginn og segist ekki geta gert þetta einn því þetta sé svo erfitt. Sonur minn fer þá rakleiðis austur og fer að hjálpa afa sínum að brjóta niður allt sem ömmu hans var kærast og allar minningar sem hann hefur átt þarna með ömmu sinni. Hann er 20 ára og hefur komið þarna á hverju einasta sumri frá því hann var smábarn. Hann er svo með afa sínum yfir nótt og heldur áfram á sunnu­deginum að rífa niður og þá kemur systir mín og hennar maður og hjálpa til við að rífa allt niður þannig að nú er lítið eftir. Nema að gefa hjólhýsið því það eru bruna­útsölur á hjól­hýsinu þessa dagana í boði Bláskóga­byggðar!,“ segir Steinunn.

Hún segir að Jón Þór hafi verið bugaður eftir þetta. „Stjúpi minn kom til mín í gærkvöldi eftir að hafa eitt helginni í að rífa niður allar minningarnar sínar með konunni sinni og var bugaður. Hann átti erfitt þegar hann jarðaði konuna sína til 40 ára en að þurfa að rústa öllu sem henni þótti vænt um það var talsvert erfiðara og ekki hægt að leggja á nokkurn eiginmann eða fjöl­skyldu sem er nýbúin að ganga í gegnum svona mikinn missi. Það hefði ekki verið neitt mál fyrir Ástu sem skrifar undir þetta bréf að hringja í stjúpa minn og athuga hver staðan sé og kannski finna einhverja sameiginlega lausn í stað þess að reka hann út ÞEGAR Í STAÐ og hóta að hjóla í dánarbú mömmu varðandi kostnað. Það er ekkert mannlegt við þessi vinnu­brögð og ekkert nema skepnu­skapur og mann­vonska. Það eru nokkur hjólhýsi sem hafa frest til áramóta til að fara af lóðinni og hefði ekki verið mikill skaði fyrir bæjar­félagið að veita honum einhvern frest í ljósi aðstæðna,“ segir Steinunn og deilir myndum af bréfinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Héraðsdómur Reykjaness hafnaði kröfu konunnar um tvær milljónir króna í miskabætur þótt ökumaðurinn hefði sýnt af sér gáleysi.
Innlent

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Héraðsdómur Reykjavíkur sá um málið

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík