Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Lögreglan þvertekur fyrir að hafa teiknað typpi viljandi

Gordon Bird segir þyrl­una hafa flogið yfir hverf­inu í að minnsta kosti fimmtán mín­útur

Breskir lögreglumenn
Breskir lög­reglu­menn Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint Mynd: pam fray / Wikimedia Commons (CC BY-SA 2.0)

Breska lög­reglan hefur þurft að svara fyrir heldur óvenju­lega flug­leið lög­reglu­þyrlu sem virt­ist mynda risa­stórt typpi á korti yfir Hamps­hire á Englandi. Flug­leiðin vakti athygli íbúa á svæð­inu en lög­reglan þver­tekur fyrir að áhöfn þyrl­unnar hafi vís­vit­andi myndað kyn­færa­laga formið.

Breska rík­is­út­varpið greinir frá mál­inu.

Gordon Bird, 53 ára íbúi í Ancells Farm í bænum Fleet, segir að tveggja ára dóttir hans hafi vaknað við hávaða frá þyrl­unni um klukkan 23 á mánu­dags­kvöld. Þyrlan hafi flogið í hringi yfir íbúða­hverf­inu í að minnsta kosti fimmtán mín­útur.

Þegar Bird skoð­aði flug­leið­ina á vefnum brá honum heldur betur í brún. Á kort­inu mátti greini­lega sjá form sem minnti á karl­mannskyn­færi.

Segir opinberum fjármunum sóað

Að sögn Birds tók um hálf­tíma að mynda hið óvenju­lega form en heild­ar­flugið stóð yfir í um klukku­stund. Hann segir hávað­ann frá þyrl­unni hafa verið slíkan að húsið titr­aði og rúður nötr­uðu.

Bird kveðst ekki reiður en telur að um sóun á opin­berum fjár­munum hafi verið að ræða.

Breska lög­reglu­þyrlu­þjón­ustan, National Police Air Service (NPAS), hafnar því alfarið að flug­leiðin hafi verið skipu­lögð með þessum hætti.

Samkvæmt þjón­ust­unni var áhöfnin að leita að öku­tæki sem hafði ekki sinnt fyr­ir­mælum lög­reglu um að stöðva akstur.

Þyrlan hafi því flogið yfir til­tekna vegi, gatna­mót og svæði sam­kvæmt fyr­ir­mælum lög­reglu­manna á jörðu niðri.

Í svari til Birds við­ur­kenndi þjón­ustan að óheppi­legt væri að flug­leiðin líkt­ist kyn­færum á opin­berum flugrakn­ing­ar­kortum en ítrek­aði að flugið hefði þjónað lög­mætu lög­gæslu­hlut­verki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Býður Trump að nefna heil­brigð­is­kerfi eftir sér

Abdul El-Sayed segist tilbúinn að láta forsetann fá heiðurinn af opinberu heilbrigðiskerfi, styðji hann að allir Bandaríkjamenn fái aðgang að þjónustu.
Heimur

Robert Patt­in­son næsti James Bond

Pólitík

Segir Hildi Björns­dóttur beita tvö­földum mæli­kvarða á fjár­mál borg­ar­innar

Heimur

Brand óskaði eftir auka­teppi og sér­sjampói í fang­els­inu

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Heimur

Heimur

Svif­vængja­flug­maður lést í hörmu­legu slysi

Hann var 21 árs og hafði vakið athygli fyrir áhættusamar flugæfingar
Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Ung­lingar hand­teknir í Póllandi grun­aðir um und­ir­bún­ing hryðju­verka

Heimur

Stærsta rann­sókn sinnar teg­undar sýnir að eft­ir­sjá vegna kyn­leið­rétt­ingar er afar sjald­gæf

Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael