Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Kári Stefánsson ætlar ekki að verða eins og Elísabet: „Þegar við deyjum þá fer þessi heimur“

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. (Mynd: Jón Gústafsson).
Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar. (Mynd: Jón Gúst­afs­son).

Kári Stef­ánsson, forstjóri Íslenskrar erfða­greiningar. Vísinda­maður fram í fingurgóma, ljóð­unnandi og ljóðskáld. Hann segist skilja gagnrýni fólks í kjölfar þess að ÍE var stofnað, hann talar um hugsanir og geðklofa, hann talar um hvers vegna hann sem er að verða 73 ára er ekki enn tilbúinn að hætta að vinna og hann talar auðvitað um fjárans veiruna og Þórólf Guðnason sóttvarna­lækni sem hann segir að sé séntílmaður. Svo talar Kári um ljóð, dauðann og DNA í Mann­lífinu með Reyni Trausta­syni.

Kári vakti fljótlega athygli eftir að hann stofnaði líftækni­fyrirtækið Íslenska erfða­greiningu árið 1996. Hann stendur gjarnan í ólgusjó. Hvað veldur þessum ósköpum?

„Ég veit ekki hvort ólgusjór sé rétt lýsing. Ég kom til Íslands eftir að hafa verið búinn að vera í 20 ár í Banda­ríkjunum þar sem ég lærði tauga­lækningar og tauga­meinafræði og var síðan prófessor fyrst við University of Chicago og síðan við Harvard. Svo kom ég heim og setti saman fyrirtæki sem byggði á því að rannsaka mannlega fjöl­breytni að mestu leyti í gegnum mann­erfðafræði en líka í gegnum aðrar aðferðir. Það var nýstárlegt á þeim tíma að fyrirtæki væru að vinna að grundvallar­rannsóknum á líffræði mannsins eins og við gerðum. Það olli því að það voru aðilar innan íslensks háskóla­samfélags sem urðu býsna móðgaðir yfir því að svona ruddalegt fyrir­brigði eins og fyrirtæki væri að vinna á þeirra helga svæði. Þetta tók dálítinn tíma en hægt og hægt fór þetta sama háskóla­samfélag að umfaðma okkur og við erum núna órjúfanlegur partur af þessu háskóla­samfélagi – hjá okkur í Vatns­mýrinni vinna prófessorar ofan úr háskóla og það eru starfs­menn hjá okkur sem eru í kennslu­stöðum uppi í háskóla. Þannig að sá árekstur var tiltölu­lega skamm­vinnur í stærra samhengi þótt hann hafi tekið kannski 20 ár.“

Kára er bent á að menn voru hræddir um lífsýni og því sem tengdist persónu­verndar­sjónarmiðum. Skilur hann þá gagnrýni og var þetta einhvern tímann hættulegt?

Þannig að það hefur ýmis­legt feng­ist við að taka þesssa áhættu og sú áhætta reynd­ist aldrei skað­leg.

„Ég skil mjög vel þessa gagnrýni. Alltaf þegar þú ert að vinna við að gera eitthvað nýtt, þegar þú ert að vinna við að uppgötva eitthvað nýtt, þá ertu klofvega á milli þess sem við þekkjum og þess sem við þekkjum ekki og þessi landamæri á milli þess þekkta og þess óþekkta valda gjarnan kvíða. En á þessu 25 ára tímabili þá veit ég ekki um eitt einasta fyrir­brigði sem gerði það að verkum að þátt­takendur í rann­sóknum okkar meiddust eða urðu fyrir skaða. Við höfum hins vegar á þessu tímabili birt í kringum 700 vísinda­greinar, við höfum sett Ísland á kortið sem vísinda­land eða okkar þjóð sem vísinda­þjóð og við höfum aukið veg íslenskra vísinda meira heldur en nokkuð annað í Íslands­sögunni. Þannig að það hefur ýmislegt fengist við að taka þesssa áhættu og sú áhætta reyndist aldrei skaðleg.“

Gjörsamlega með ólíkindum

Hver er stærsti sigurinn hjá fyrir­tækinu út frá öllum þessum rann­sóknum og vinnu?

„Það sem við gerðum var að við bjuggum til ákveðna nálgun á mann­erfðafræði sem stofnanir, fyrirtæki og háskólar út um allan heim hafa núna tekið upp. Og hún byggir á því að rannsaka fjöl­breytni í ákveðnum vel skilgreindum hópi meðal ákveðinnar þjóðar; að safna saman þátt­takendum sem eru reiðu­búnir til þess að taka þátt í rann­sóknum á mörgum sjúkdómum þannig að í hvert sinn sem við gerum einhverja mælingu þá nýtist hún ekki bara við eina rannsókn heldur við óendanlegan fjölda rannsókna. Þetta er eitt af því sem Bretar hafa tekið upp í því sem heitir UK Biobank sem er raun­verulega hópur af fólki sem hefur fallist á að taka þátt í mjög víðtækum rann­sóknum á bæði sjúkdómum og heilsu. Þeir eru að setja saman annað sams konar verkefni sem heitir á ensku A Future Health eða Framtíðar­heilsa okkar. Bandaríkja­menn eru með frumkvæði að þessari gerð sem þeir kalla All of Us eða Öll okkar. Finnar eru með svona verkefni. Það er verið að vinna að rann­sóknum á mannlegri fjöl­breytni út frá þessari aðferð víða um heim í dag. Það er nátt­úrlega gjör­samlega með ólíkindum að okkur hafi tekist – sem komum hingað fyrir tæplega 26 árum á stað þar sem var engin hefð, engin þekking og engin reynsla var á þessu sviði – og að það hafi verið hægt að draga saman hóp af fólki til þess að vinna á þennan hátt. Og taktu eftir því að þetta eru næstum því alfarið Íslendingar sem vinna hjá okkur. Þeir útlendingar sem vinna hjá okkur eru þeir sem eru kvæntir íslenskum konum. Það eru tveir eða þrír af þeirri gerð sem vinna hjá okkur. En ég er mjög montinn af því hvernig okkur tókst að búa til svona hóp. Ég er montinn af því sem við höfum gert í rann­sóknum á hinum ýmsu sjúkdómum svo sem hjarta­sjúkdómum, krabba­meini og alzheimersjúkdómi. Það er varla til sá sjúkdómur sem er algengur í okkar samfélagi þar sem við höfum ekki lagt af mörkum.“

„Ég er mont­inn af því sem við höfum gert í rann­sóknum á hinum ýmsu sjúk­dómum svo sem hjarta­sjúk­dómum, krabba­meini og alzheimersjúkdómi. Það er varla til sá sjúk­dómur sem er algengur í okkar sam­fé­lagi þar sem við höfum ekki lagt af mörkum.“ (Mynd: Jón Gúst­afs­son.)

Hugsanir og geðklofi

Kári segir að á meðal starfs­manna ÍE hafi verið skimað eftir kórónu­veirunni á hverjum mánudags­morgni í mjög langan tíma en því var hætt fyrir tveimur vikum. „Ef við tökum þá tvo síðustu mánudaga þegar við skimuðum þá fannst enginn jákvæður af þessum 300 manns sem voru skimaðir. Og þá spyrðu hvernig það geti átt sér stað. Ástæðan er sú að COVID-19 er raun­verulega hegðunar­sjúkdómur. Hversu líklegt það er að þú smitist fer eftir því hvernig þú hagar þér, hvernig þú umgengst annað fólk. Og þessar neikvæðu niður­stöður hjá öllum tvo mánudaga í röð benda til þess að niðri í Vatns­mýrinni vinni mjög skrýtnir nördar sem umgangast ekki fólk á eðlilegan hátt.

Það er ótrúlega flott fólk sem vinnur niðri í Vatns­mýrinni. Þetta eru miklir snillingar og það liggur við að það líði ekki sú vika sem ekki einhver sniðug uppgötvun er gerð. Bara sem dæmi verðum við með fund í eftir­miðdaginn með erlendum samstarfs­aðilum til að fara yfir rannsókn sem við höfum verið að gera á geðklofa. Með okkur verður kona sem hefur verið að rannsaka tengslin á milli þess hvernig við hugsum og hversu líklegt það er að við fáum ákveðna sjúkdóma. Það sem hún var að skoða er það sem hún kallar á ensku cognition; það er að segja hugsun í sjálfu sér. Og aðferðir til að rannsaka cognition köllum við gjarnan gáfnapróf. Það má skipta cognition eða þessum gáfum í tvo megin­þætti – annars vegar almenna greind sem er mæld með því sem kallað er G-faktor og G-faktorinn er til vegna þess að allir mæli­kvarðar á hugsun, gáfum eða cognition tengjast á þann hátt að ef þú skorar hátt í einu þá skorar þú hátt í öðrum. En ef þú tekur þennan G-faktor í burtu þá situr þú uppi með annars vegar það sem kallað er rýmis­greind og hins vegar verbal geta. Við skulum kalla það tungumála­getu. Við tókum allar breytur í erfða­menginu sem hafa áhrif á þessa rýmis­greind annars vegar og allar breytur í erfða­menginu sem hafa áhrif á tungumála­getuna og við bjuggum til úr þessu mæli­kvarða. Og eftir því sem þú skorar hærra á þessum erfða­mælikvarða á rýmis­greind því líklegra er að þú sért of feitur. Því líklegra er að þú fáir þá sjúkdóma sem fylgir því að vera of feitur; sykursýki, hjarta­bilun og svo framvegis. Þeim mun lægra sem þú skorar á þeim persónu­leika­mælikvarða sem kallaður er openness, sem tengist annars vegar forvitni og hins vegar sköpunar­gáfu, þeim mun ólíklegra er að þú fáir hina ýmsu geðsjúk­dóma eins og geðklofa. Þeim mun hærra hins vegar sem þú mælist á þessum verbal þætti – við skulum bara kalla hann tungumála­þátt – þeim mun léttari ertu, þeim mun ólíklegra er að þú verðir of feitur og þeim mun ólíklegra er að þú fáir þá sjúkdóma sem fylgja offitu. Þeim mun hærra sem þú skorar á þessum openness skala, sem tengist forvitni og sköpunar­gáfu, þeim mun líklegra er að þú fáir hina ýmsu geðsjúk­dóma eins og geðklofa.

Þú hugsar öðru­vísi og þess vegna færðu geð­klofa.

Þetta er kannski dálítið langur inngangur en það sem út úr þessu kemur er að hvernig þú hugsar hefur áhrif á svo margt. Maður hefur alist upp við að hugsanir manns séu einkamál sem við getum falið fyrir umheiminum en þarna kemur í ljós að hvernig við hugsum hefur meira að segja áhrif á hvernig líkami okkar er samsettur sem mér finnst feikilega spennandi. Það tengist vinnu sem við höfum gert áður sem fjallaði um geðklofa og ástæðan fyrir því að ég er svona fastur í þessari hugsun um geðklofa er að geðklofi er sjúkdómur hugsana og tilfinninga. Og hugsanir og tilfinningar eru þeir eigin­leikar sem skilgreina okkur sem dýra­tegund og sem einstaklinga innan tegundarinnar. En við höfum ekki hugmynd um hvernig heilinn hugsar. Ekki minnstu hugmynd um það. Við getum ekki einu sinni skilgreint hugsanir. En við vorum svo heppnir að við duttum ofan á þá hugmynd að taka stökk­breytingar sem auka líkur á geðklofa, sjúkdómi hugsana og tilfinninga, og tíðni geðklofa í okkar samfélagi er svona 1%. 1% af okkur fá geðklofa. En ef þú ert með eina af þessum stökk­breytingum þá eru 10% líkur á því að þú fáir geðklofa og  90% líkur á að þú fáir hann ekki. Og við spurðum hvaða áhrif hafa þessar stökk­breytingar á hugsun þeirra sem bera þær en fá ekki geðklofa og við sýndum fram á að þeir eru með frávik í hugsun eða cognition sem er nákvæmlega eins og hjá geðklofa­sjúklingum. Og af hverju er það mikilvægt? Það er mikilvægt vegna þess að það þýðir að það er ekki þannig að þú fáir geðklofa og þess vegna hugsir þú öðruvísi. Þú hugsar öðruvísi og þess vegna færðu geðklofa. Það eru svona hlutir, það eru svona tækifæri til þess að fá að taka þátt í svona rann­sóknum, sem gerir það að verkum að það hefur ekki einu sinni hvarflað að mér að fara að gera eitthvað annað.“

Árlegur fundur kvenna

Kári Stef­ánsson verður 73 ára eftir nokkrar vikur. Og hann er í fullri vinnu. Hann er spurður hvort hann ætli að verða eins og Elísabet Breta­drottning sem er enn að 95 ára gömul.

„Ég ætla ekki að verða eins og Elísabet Breta­drottning. Það sem kemur í veg fyrir það eru ýmsar líffræðilegar stað­reyndir. En það hefur hins vegar í gegnum tíðina verið gerð tilraun til að færa mig svolítið nær henni; til dæmis á hverju einasta ári síðastliðin 20 ár hefur mér verið boðið að verða aðal­fyrirlesari á árlegum fundi kvenna í háskólum í Banda­ríkjunum. Og í fyrra var ég valinn the Female Entrepreneur of the Year hjá evrópsku tímariti. Það á rætur sínar í því að Kari er kven­mannsnafn í Skandinavíu og næstum því undan­tekningar­laust ganga menn út frá því að Kári sé kona. Ég hef meira að segja ferðast víða um heim að flytja fyrir­lestra og verið boðið að flytja fyrir­lestra á hinum og þessum stöðum og það hefur maður verið sendur til þess að ná í mig út á flugvöll; venjulega endar það á því að ég verð að taka leigubíl vegna þess að það hvarflar ekki að þeim að þessi aldni, hvíthærði, skeggjaði maður sé Kari.“

Ég er að setja saman skipu­lag um það hverjir taki við.

Nei, Kári – með „á“ – er ekkert farinn að hægja á. „Ég geri mér hins vegar grein fyrir því að ég er kominn á þann aldur að það má reikna með því að það þurfi einhver að taka við innan einhvers tíma. Ég veit ekki hvað það er. Ég er að setja saman skipulag um það hverjir taki við.“

Langar Kára ekkert til að fara að setjast í helgan stein?

„Ekki eins og stendur. En það getur breyst. Eins og stendur hef ég gífurlega gaman af þessu. Mér finnst þetta alveg feikilega spennandi.“

Búið í apríl

Fjárans veiran. ÍE, með Kára í broddi fylkingar, rétti þjóðinni og í raun öðrum þjóðum hjálpar­hönd þegar á þurfti að halda og skimaði fyrir veirunni og raðgreindi.

Kári er spurður hvernig málin standi á milli þeirra Þórólfs Guðna­sonar sóttvarna­læknis. Það virðast hafa verið núningar á köflum en alltaf hefur þetta smollið saman.

„Það hefur aldrei verið núningur á milli okkar Þórólfs. Við höfum ekki alltaf haft nákvæmlega sömu skoðanir. Þegar verið er að takast á við fyrir­brigði sem er alveg nýtt í þessum heimi og þó að maður safni að sér öllum þeim forsendum sem til eru þá er hægt að komast að margs konar niður­stöðum. En skoðanir okkar hafa aldrei verið mjög ólíkar og þú mátt ekki gleyma því að ég get myndað mér skoðun og þar með er það búið. Þegar hann myndar sér skoðun þá hefur það afleiðingar fyrir samfélagið. Þannig að það er miklu erfiðara fyrir hann að taka afdrifa­ríkar ákvarðanir heldur en fyrir mig að mynda kraft­miklar skoðanir á því að nú eigum við að fara að aflétta og svo framvegis. Mér fannst fyrir svona rúmum mánuði að við hefðum átt að vera búin að aflétta öllum takmörkunum og mér fannst nokkuð ljóst svona strax um áramótin að þessi pest yrði búin í apríl. En ég get sagt þetta án þess að þurfa að svara fyrir það nokkurs staðar. Mér finnst Þórólfur hafa gert þetta á mjög skyn­samlegan hátt. Hann hefur oft og tíðum orðið að standa uppréttur og brosandi milli steins og sleggju og hann hefur gert þetta vel. Hann er mikill séntílmaður og mér þykir alveg óendanlega vænt um Þórólf og mér finnst hann hafa staðið sig mjög vel. Auðvitað á tveggja ára tímabili þegar þú þarft raun­verulega að vera að tjá þig opinber­lega á hverjum einasta degi þá koma þau augnablik þar sem þú segir eitthvað sem þú vildir kannski ekki hafa sagt en í hans tilfelli þá er það mjög fágætt.“

Omikron-afbrigði veirunnar, sem veldur vægari einkennum en önnur, er alls­ráðandi og afléttingar voru boðaðar 11. febrúar: Sóttkví fellur niður og 200 mega koma saman. Verður þetta búið í apríl?

„Já.“

Hvað kemur svo?

„Svo kemur vorið, sauðburðurinn, slátturinn og allt sem því fylgir.“

Verður þetta gott sumar?

„Já, þetta verður gott sumar.“

Og við getum farið frjáls og grímulaus ferða okkar?

„Já, við getum farið frjáls og grímulaus ferða okkar og við getum farið upp í Borgar­fjörð, upp að Rauðsgili og við getum látið okkur líða vel.“

„Já, við getum farið frjáls og grímu­laus ferða okkar og við getum farið upp í Borg­ar­fjörð, upp að Rauðs­gili og við getum látið okkur líða vel.“ (Mynd: Art Bicnick.)

Ljóðin

„Ég á góð börn og barnabörn og þau eru að reyna að draga mig upp úr holunni,“ segir Kári Stef­ánsson, forstjóri Íslenskrar erfða­greiningar, en eiginkona hans, Valgerður Ólafs­dóttir, lést fyrir þremur mánuðum. Er Kári einmana? „Stundum. Ekki alltaf. Til dæmis þessa dagana þegar ég vakna á morgnana þá sest ég niður með kaffi­bolla og ræði stjórnmál við Garp, köttinn minn.“

Kári er mikill ljóð­unnandi og eftir að eiginkona hans lést var birt ljóð eftir hann í fjöl­miðlum og las hann það á upptöku við undirleik tónlistar­manna. Valgerður varð sjötug rúmum mánuði áður en hún lést og hafði Kári ort ljóðið af því tilefni. Ljóðið heitir Kona.

Bærðist ekkert utan hjarta
einn á gangi og nóttin bjarta
bjó þig til.
Nætur sumars, sumar nætur
suma okkar heppna lætur
finna ást sem aldrei dvínar
ætíð finnur rætur sínar
þótt árin líði og öllu breyti
utan þér

Þú ert ennþá ilmur blóma
ennþá sveipuð skærum ljóma
seiðandi bjartrar sumar­nætur
sem mér ávallt finnast lætur
að friðurinn sé hér.
Úr mínu gamla höfði og hjarta
hrekur burtu myrkrið svarta
kveikir ljós

Bærðist ekkert utan hjarta
einn á gangi og nóttin bjarta
bjó þig til.
Eins og blóm í haustsins haga
hátíð gerir alla daga,
það er ekkert eins og þú
ástin mín fagra þá og nú

„Ég hef reynt alla mína ævi að koma tilfinningum í orð. Oftast er það svolítið klaufalegt en ekki alltaf. Ég hef mjög ákveðna skoðun á því hvernig til dæmis menntun eigi að vera. Tungu­málið er það tæki sem við hugsum með og án tungumáls er engin hugsun. Ég hef í gegnum tíðina sem tauga­sjúkdóma­læknir verið með sjúklinga sem hafa lent í því að verða málstola; hafa fengið heila­blóðfall sem hefur tekið frá þeim tungu­málið. Og þá á ég við tungumál sem allra abstrakt kommúníkasjón. Ég hef verið með sjúklinga sem hafa síðan náð sér og hafa fengið tungu­málið aftur og það sem þeir kvarta mest undan er að þeir gátu ekki hugsað sem er alveg skelfilegt að horfast í augu við. Ég held að það sem við eigum að leggja áherslu á þegar við erum að mennta ungt fólk í grunn­skólum, mennta­skólum og svo framvegis sé að leggja fyrst og fremst áherslu á tungu­málið. Ef þú ætlar í þínu skóla­kerfi að búa til skapandi vísinda­menn þá gerir þú það ekki með því að byrja að kenna þeim raun­greinar mjög ungum. Þú átt að láta þá lesa góðar bókmenntir. Hjálpa þeim við að þjálfa sig í að nota tungu­málið með miklum sveigjanleika vegna þess að þá getur þú hugsað með miklum sveigjanleika. Auðvitað þarf að kenna þeim raun­greinar; auðvitað þarf að kenna þeim stærð­fræði og svo framvegis en menn mega ekki vanmeta mikilvægi þess að rækta hjá fólki góða tilfinningu fyrir tungu­málinu sem gerir því kleift að hugsa á nýstár­legan hátt.“

Kári er sonur Stefáns heitins Jónssonar, rithöfundar og frétta­manns. Hann hefur væntanlega innrætt syni sínum þessa hluti.

Stundum er ég að skrifa blaða­greinar um til­tekin mál til þess að sinna þeirri skyldu minni að svekkja sam­borg­ara mína.

„Þetta er alltaf spurning um hvað er meðfætt, hvað erfist og hvað á rætur sínar í umhverfinu. Við erum að vissu leyti nátt­úrlega ekkert annað en afleiðing af nokkrum DNA-sameindnum sem eru í stöðugu jafnvægi við sitt umhverfi. Og það má vel vera að faðir minn hafi haft þau áhrif á mig að ég hafi hneigst í þessa átt. Það má vel vera. En síðan er svo margt af þessu sem maður fæðist með. Jú, jú, hann lagði mikla áherslu á bókmenntir og bókmenntum var ýtt að okkur þegar við vorum kornung. Með fram minni vinnu hef ég alltaf lesið mjög mikið og síðan af og til hef ég sest niður og skrifað eitthvað. Stundum eru það ljóð. Stundum er ég að skrifa blaða­greinar um tiltekin mál til þess að sinna þeirri skyldu minni að svekkja samborgara mína.“

Voruð þeir feðgðar nánir?

„Nei, ekkert sérstak­lega. Við vorum ekkert ólíkir.“

Skapmenn báðir?

„Það er ekki rétt. Ég hef ekkert skap. Einn af mínum áþreifanlegu göllum er skortur á skapi.“

Kára er bent á að ímyndin sé önnur og að menn haldi að hann sé mikill skap­hundur.

„Það lenda allir í því að skipta skapi af og til. Ég á mjög góðan vin sem heitir Jóhann Hjartarson skákmaður sem er yfir­lögfræðingur fyrir­tækisins. Ég held að það sé rétt hjá mér að ég hafi rekið hann 45 sinnum. Hann kom einmitt inn á skrif­stofu til mín um daginn og sagði „Kári, er þér orðið illa við mig?“ Ég sagði „af hverju spyrðu?“. Hann sagði „það er svo langt síðan þú rakst mig síðast“.“

Kári er spurður hvort það sé þannig að hann hlaupi á sig en sé fljótur að ná tökum á hugsuninni aftur.

„Meðaltími sem ég er reiður er einhvers staðar á milli tvær og fimm sekúndur. Og ég skammast mín fyrir að hlaupa í gönur eins og kemur fyrir. Maður á ekki að gera það.“

Dauðinn og DNA

Jú, Á Rauðsgili Jóns Helga­sonar kom upp og Kári fer með hendingu; hann segir að sér finnist þetta vera fallegasta erindið í íslenskum ljóðheimi.

Enn ég um Fella­flóann geng,

finn eins og titring í gömlum streng,

hugann grunar hjá grassins rót

gamalt spor eftir lítinn fót.

„Ég skal segja þér það að þegar ég var í 6. bekk í MR þá sá ég um heimsókn Jóns Helga­sonar. Hann kom og talaði við okkur í 90 mínútur um ljóðin sín.“

Kári segir að Jón hafi verið stórkostlegt skáld. „Ímyndaðu þér að sitja hérna full­orðinn, gamall maður og sjá þetta ljóð sem hljómar svona,“ segir Kári og fer með ljóð Jóns.

Það var eitt kvöld að mér heyrðist hálfvegis barið
ég hlustaði um stund og tók af kertinu skarið
ég kallaði fram og kvöld­golan veitti mér svarið:
Hér kvaddi Lífið sér dyra og nú er það farið.

Og Kári fer með fleiri ljóð Jóns Helga­sonar.

Séð hef ég skrautleg suðræn blóm

sólvermd í hlýjum garði;

áburð og ljós og aðra virkt

enginn til þeirra sparði;

mér var þó löngum meir í hug

melgrasskúfurinn harði,

runninn upp þar sem Kalda­kvísl

kemur úr Vonar­skarði.

„Þarna situr hann í Kaupmanna­höfn að drepast úr heimþrá en þessi bölvaði drullu­sokkur bara ákveður að setjast að í Kaupmanna­höfn og koma aldrei aftur. Þannig að ég held því fram að þessar tilfinningar þó þær séu fallegar séu ekki einlægar. Af hverju kom hann ekki heim, mann­helvítið?“

Mennirnir fæðast og mennirnir deyja. Talið berst að lokun að Guði. Hvort Kári sé trúaður maður.

„Þarna ertu að reyna af andstyggð þinni, þjóð­þekktri andstyggð, að koma mér í vandræði. Raun­verulega sú eina trúar­játning sem ég get fallist á er eftir Steingrím Thorsteinsson.

Trúðu á tvennt í heimi.
Tign sem æðsta ber.
Guð í alheims geimi.
Guð í sjálfum þér.

Ég held að það sé enginn guð æðri kærleikanum. Ég held því fram að það eina sem skipti máli raun­verulega í lífinu sé ást og væntumþykja.“

Hvað er hinum megin? Hvað er handan við dauðann?

„Ég held að við verðum að sætta okkur við að spurningin hvað er handan við dauðann sé ekkert merkilegri í okkar tilfelli heldur en öðrum einstaklingum í lífheiminum. Hvað bíður grassins sem fölnar að hausti? Ég held að það sé ekkert merkilegra sem bíður okkar. Því miður þá held ég að við séum eins og aðrir í lífheimi; við erum hér eingöngu til þess að sjá til þess að DNA haldi áfram að vera til. Það er ekkert annað hlutverk sem við höfum í sjálfu sér og þegar við deyjum þá fer þessi heimur sem býr innan höfuð­skeljar okkar; hann fer. Okkar heimur er ósköp einfald­lega afleiðing af því að við tökum inn hluti í gegnum sjón, heyrn og alls konar snertitilfinningar og úr því býr heilinn okkar til ákveðinn heim. Og minn heimur og þinn heimur – þó svo við lýsum honum á svipaðan hátt – eru að öllum líkindum mjög ólíkir.“

Podcast-viðtalið við Reyni Traustason er að finna á vef Mannlífs og þar fjallar Kári meðal annars um deilurnar innan SÁÁ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Leigjandinn viðurkenndi að eldurinn hefði kviknað vegna gáleysis hans

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu