Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Palestínskur læknir vann sigur í Berlín

Bann við ræðu hans brot á lögum

Dr. Ghassan Abu-Sittah
Dr. Ghassan Abu-Sittah Abu-Sittah (í miðj­unni) stendur með kol­legum sínum Mynd: BENJAMIN CREMEL / AFP

Stjórn­sýslu­dóm­stóll Berlínar hefur úrskurðað að bann sem sett var á palest­ínska lækn­inn Ghassan Abu-Sittah við því að tjá sig opin­ber­lega í Þýska­landi sé ólög­legt, að því er tals­maður dóm­stóls­ins stað­festir við Al Jazeera.

Í úrskurði dóm­stóls­ins segir að ekki hafi verið til­efni til að ætla að Abu-Sittah, sem er skurð­læknir og hefur starfað í Gaza, myndi fremja refsi­verðan verknað eða ógna lýð­ræð­is­legri stjórn­skipan Þýska­lands með því einu að taka til máls á ráð­stefn­unni Palestine Congress í apríl 2024, þar sem honum hafði verið boðið að tala.

Dóm­ar­arnir sögðu engin ummæli frá Abu-Sittah frá 7. októ­ber 2023 benda til refsi­verðrar hátt­semi né heldur stuðn­ings við hryðju­verka­sam­tök.

Þá bætti dóm­stóll­inn við að stjórn­völd í Berlín hefðu átt að taka til­lit til stöðu Abu-Sittah sem sögu­legs vitnis, þar sem frá­sögn hans hefur verið lögð fyrir Alþjóð­lega saka­mála­dóm­stól­inn, auk réttar hans til tján­ing­ar­frelsis.

Yfirvöld í Berlín höfðu haldið því fram að Abu-Sittah styddi Hamas, þar sem hann tók þátt í blaða­manna­fundi á vegum palest­ínska heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins fyrir utan al-Shifa sjúkra­húsið í Gasa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Maður um fertugt hlaut alvarlega skurði og var fluttur á sjúkrahús eftir bráðameðferð á vettvangi.

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé