Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ritstjórn Vikunnar hótað lögsókn vegna viðtals við Hödd um heimilisofbeldi

Hödd Vilhjálms­dóttir, almanna­tengill og lögfræðingur, ræðir andlegt og líkamlegt ofbeldi sem hún varð fyrir af hálfu fyrr­verandi eigin­manns síns í nýjasta tölublaði Vikunnar.

Í viðtalinu er maðurinn ekki nefndur á nafn en hér er textabrot úr viðtalinu:

 „Það skipti ekki máli á hvaða tíma­punkti þetta var; við vorum nýbyrjuð saman, þegar pabbi minn lést, þegar ég var ólétt eða í sængur­legunni og þá til að mynda með nokkurra daga gamla dóttur mína, missti starfið mitt, var í prófum, átti afmæli, kláraði próf, ritgerðir, útskrifaðist, eða kláraði einhverja àfanga.

Þegar ég var niðri og þurfti á honum að halda var ég of mikið vesen fyrir hann og hann lét mig sko finna fyrir því með því að níðast á mér. Þegar ég átti að upplifa gleðilega áfanga fannst honum ég vera að taka athyglina frá honum og hann eyðilagði allar slíkar stundir.

Hann hætti með mér daginn eftir að pabbi minn dó, hann ætlaði að skilja við mig kvöldið sem èg missti vinnuna, hann skildi mig eftir í sundi, þá var ég komin átta mánuði á leið með yngri dóttur mína, því ég var sár yfir því að hann hafði ekki komið heim af djamminu fyrr en undir morgun og ég vogaði mér að minnast á það. Hann trylltist og talaði svo ekki við mig í marga daga á eftir. Hann niður­lægði mig fyrir framan vinkonur mínar og vini, samstarfs­fólk sitt og í rauninni bara alla.

Svo laug hann því út um allan bæ að ég væri skapofsa­kona sem talaði ógeðslega til hans.“

Blaðið kemur formlega út á morgun en samkvæmt DV barst ritstjórn Vikunnar í dag bréf frá lögmanni mannsins, Gunnari Inga Jóhanns­syni hjá MAGNA lögmönnum, þar sem hótað var lögsókn ef viðtalið yrði birt.

Í viðtalinu segir Hödd einnig frá rótleysi í æsku, átakanlegri sjálfs­vinnu og því hvernig hún misnotaði áfengi til að deyfa sig. Hún segist ekki líta á sig sem neitt fórnar­lamb en hún hafi viljað stíga fram fyrir sjálfa sig og dætur sínar.

 „Andlegt ofbeldi er hryllilegt, það brýtur mann svo mikið niður,“ segir Hödd með áherslu. „Þegar það er búið að sá öllum þessum efasemdar­fræjum í hausinn á manni, segja manni ótal oft að maður sé ómögulegur, ógeðs­legur, einskis virði, að öllum sé í nöp við mann og svo framvegis, þá kemur að því að maður fer að trúa því.

Ég veit ekki hversu oft ég fékk að heyra að ég væri erfiðasta og ömurlegasta kona sem hann hefði nokkurn tíma þurft að eiga við.“

Hægt er að lesa viðtalið í heild sinni sem áskrifandi Vikunnar á vef Birtíngs, útgáfu­félags Vikunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim