Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Heimur

Kyn­þokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 millj­ónir dala í lækn­is­skuldum

Segir Bjarna Ben í sérkennilegri stöðu: „Hver fellur áður en tjaldið fellur?“

Jón Gunnarsson og Guðrún Hafsteinsdóttir.
Jón Gunn­ars­son og Guðrún Haf­steins­dóttir.

Björn Birg­is­son veltir fyrir sér sér­kenni­legri stöðu sem Bjarni Bene­dikts­son er kom­inn í varð­andi dóms­mál­ara­stöð­una.

Í nýrri færslu spáir hinn skel­eggi sam­fé­lags­rýnir, Björn Birg­is­son, í þá erf­iðu stöðu sem Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra virð­ist kom­inn í innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Guðrún Haf­steins­dóttir, fyrsti þing­maður Suð­ur­kjör­dæmis hefði átti að taka við Jóni Gunn­ars­syni sem dóms­mála­ráð­herra, í mars síð­ast­liðnum, líkt og lofað var við end­ur­nýjun núver­andi rík­is­stjórn­ar­starfs en enn hefur það ekki orðið að veru­leika. Björn velti fyrir sér ástæð­unni og bendir á ansi snúna stöðu sem Bjarni er kom­inn í. Færsluna má lesa hér:

„Við end­ur­nýjun núver­andi rík­is­stjórn­ar­sam­starfs var ákveðið að Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra ætti að víkja og Guðrún Haf­steins­dóttir, fyrsti þing­maður Suð­ur­kjör­dæmis, taka við emb­ætti hans.

Rætt var um að skiptin yrðu í mars síð­ast­liðnum en nú er kom­inn miður apríl og ekk­ert ger­ist í mál­inu.Guðrún Haf­steins­dóttir hefur minnt fremur mátt­leys­is­lega á þessi áform, en engu er lík­ara en að Bjarni Bene­dikts­son ætli sér ekki að standa við þessa hug­mynd sína.Jón Gunn­ars­son hefur verið marg­spurður um þessi skipti og bregst alltaf við eins og hann komi af fjöllum og er aug­ljós­lega ekk­ert á þeim bux­unum að víkja úr emb­ætti.Bjarni Bene­dikts­son svarar bara út og suður ef á þetta er minnst.Sögu­sagnir ganga um að Jón Gunn­ars­son hafi haft í hót­unum um að segja af sér þing­mennsku ef staðið verði við áformin um ráð­herra­skiptin, enda kæmu þau út fyrir hann sem van­traust innan úr flokknum á störf hans, þeim sama flokki og einmitt varði hann gegn van­traust­s­til­lögu stjórn­ar­and­stöð­unnar fyrir skömmu.Ef sú saga er tekin aðeins lengra – og krydduð eins og góð kjafta­saga – þá dettur lög­fræð­ing­ur­inn Arnar Þór Jónsson inn á þing ef Jón hættir þing­mennsku, sömu­leiðis er Arnar Þór einnig vara­maður fyrir Bjarna Bene­dikts­son, Bryndísi Har­alds­dóttur og Óla Björn Kárason.Innkoma Arnars Þórs Jóns­sonar sem aðal­manns á Alþingi væri flokknum algjör hneisa og slæmur þyrnir í augum.Skömmu eftir páska krafð­ist Arnar Þór Jónsson nefni­lega þess að allir for­ustu­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins segðu af sér vegna svika við stefnu sína og hug­sjónir með því að fram­selja sjálf­stæði þjóð­ar­innar til Evr­ópu­sam­bands­is­ins með sam­þykkt bók­unar númer 35 við EES-samn­ing­inn.Ekki nóg með það.Hann lagði til að nafni flokks­ins verði breytt!Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn verði bara Flokk­ur­inn!Bjarni Bene­dikts­son for­maður er aug­ljós­lega kom­inn í mjög sér­kenni­lega stöðu og það er aug­ljóst að hann gerir ekk­ert sem verður þess vald­andi að Arnar Þór Jónsson detti inn á þing!Hann gæti rekið Arnar Þór úr flokknum, en eftir sem áður væri hann fyrsti vara­þing­maður flokks­ins í kjör­dæmi for­manns­ins!Eitthvað af ofan­skráðu er í hálf­gerðum kjafta­sögu­stíl, en annað ekki.Svolítið eins og nokkuð spenn­andi krimmi sem vantar bara lokakafl­ann í!Hver fellur áður en tjaldið fellur?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto