Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Brjálæðislega gott vegan-lasagna

Vegan-lasagna sem sló í gegn í til­rauna­eld­húsi Gest­gjafans.

Þetta hefð­bundna ítalska lasagna sem við þekkjum í dag bygg­ist á kjöt­sósu úr gæða­nauta­kjöti og tómötum, lauk og kryddi og bechamel-sósu sem búin er til úr hveiti, mjólk og smjöri. Margs­konar útgáfur eru til af þessum fræga rétti og á hvert hérað og hver fjöl­skylda á Ítalíu sína upp­skrift. Hægt er að leika sér á fjöl­breyttan hátt með lasagna og við bjóðum hér upp á frá­bært vegan-lasagna sem sló í gegn í til­rauna­eld­húsi Gest­gjafans.

VEGAN-LASAGNA MEÐ KASJÚHNETU-TÓFÚOSTASÓSU

fyrir 4-6

Þessi réttur virð­ist í fyrstu vera flók­inn en hann er það alls ekki. Hins vegar er nauð­syn­legt að eiga mat­vinnslu­vél til að útbúa hann.

700 g sætar kart­öflur, afhýddar og skornar í ten­inga
2 stk. rauð­laukar, saxaðir
3 tsk. sjáv­ar­salt
2 tsk. mul­inn pipar
5 msk. ólífu­olía
1 stórt eggaldin, skorið í ten­inga
1 tsk. óreganó, þurrkað
1 tsk. timían, þurrkað
kasjú­hnetu-tófú­ostasósa (sjá upp­skrift)
grænt pestó (sjá upp­skrift)
9 lasagna­plötur, án eggja, soðnar í salt­vatni í 3-4 mín.

Hitið ofn­inn í 180°C. Setjið sætar kart­öflur og lauk í eld­fast mót, kryddið með sjáv­ar­salti og pipar og blandið 2 msk. af ólífu­olíu saman við, bakið í 30 mín. Setjið eggaldinið í skál og stráið 1 tsk. salti yfir og blandið vel.

Látið liggja í 10-15 mín. Hellið safanum frá og kreistið var­lega ten­ing­ana, kryddið með óreganó og timían og steikið upp úr 2 msk. af ólífu­olíu þar til ten­ing­arnir verða gull­in­brúnir og fal­legir.

KASJÚHNETU-TÓFÚOSTASÓSA
4 dl kasjú­hnetur, lagðar í bleyti í a.m.k. klst.
450 g tófú, mjúkt
4 msk. nær­ing­ar­ger, fæst í flestum stór­mörk­uðum
4 msk. nýkreistur sítrónu­safi
1 tsk. sjáv­ar­salt, eða eftir smekk
1 tsk. pipar, eða eftir smekk
1 tsk. þurrkuð basi­líka
1 tsk. óreganó, þurrkað
3 hvít­lauks­geirar

Setjið kasjú­hnetur í bland­ara og blandið þar til hnet­urnar verða alveg að mauki. Setjið svo allt annað saman við og blandið þar til áferðin verður silki­mjúk. Smakkið til með salti, pipar og sítrónusafa.

GRÆN PESTÓSÓSA
hand­fylli fersk basi­líka, söxuð
hand­fylli fersk stein­selja, söxuð
3 msk. nær­ing­ar­ger
1 dl furu­hnetur, ristaðar
4 hvít­lauks­geirar
1 tsk. sjáv­ar­salt
1 tsk. nýmal­aður pipar
1 ½ dl ólífu­olía

Setjið basi­líku, stein­selju, nær­ing­ar­ger, hnetur, hvít­lauk, salt og pipar í mat­vinnslu­vél, blandið þar til allt verður að mauki, stoppið vél­ina annað slagið og skafið með fram hlið­unum. Lækkið hrað­ann á vél­inni og bætið ólífu­ol­í­unni rólega saman við. Berið sós­una fram með lasagna­rétt­inum.

SAMSETNING
Smyrjið smá­vegis af ostasós­unni í botn­inn á eld­föstu móti og raðið 3-4 lasagna­plötum yfir, því næst 1/3 af græn­met­inu, svo aftur ostasósu. End­ur­takið þar til allt er búið. Endið á ostasósu og græn­meti.

Setjið álp­appir yfir formið og bakið í 30 mín. Að nota nær­ing­ar­ger virkar ekki mjög freist­andi fyrir þá sem það ekki þekkja. En það gefur gott osta­bragð og einnig nokkurn hnetu­keim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni