Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Heimur

Kyn­þokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 millj­ónir dala í lækn­is­skuldum

Helga Vala og Grímur aflétta kaupmála á gamalli eign

Samstíga í fjár­málum og kær­leika

Þegar Grímur hitti Helgu Völu
Þegar Grímur hitti Helgu Völu „Ég er feiki­lega vel gift“: Ást­ar­saga Helgu Völu og Gríms Mynd: Facebook/Helga Vala

Helga Vala Helga­dóttir og Grímur Atlason voru 29. júní að aflétta kaup­mála af gam­alli eign sam­kvæmt Lög­birt­inga­blað­inu. Hjónin eiga tvö börn saman en sam­tals telja börnin á heim­ili þeirra fjögur þar sem bæði áttu barn úr fyrri sam­böndum.

Samband þeirra hófst í októ­ber 1999 þegar þau hitt­ust út á líf­inu. Þau hafa verið gift frá 2000 en í við­tali við Rás 2 sagði Grímur að þau hefðu bæði stundað nám við Mennta­skól­ann í Hamra­hlíð (MH) og hann hefði þekkti hana lít­il­lega áður en upp frá þessu hafi þau fylgst að alla tíð síðan.

Hjónin hafa verið áber­andi í sam­fé­lags­um­ræð­unni og rætt um hjóna­bandið opin­ber­lega.

Þegar Helga Vala stóð í ströngu í póli­tík og mætti gagn­rýni, skrif­aði hún opin­ber­lega á Facebook til að leið­rétta rang­færslur: „Rétt er að geta þess einnig, að gefnu til­efni, að ég er feiki­lega vel gift öfl­ugum grein­anda á sam­fé­lagið í nútíma- og sögu­legu ljósi og er hann góður penni að auki.“

Grímur vísar oft óbeint eða beint til hennar sem ein­stak­lega rétt­sýnnar og vinnu­samrar mann­eskju, hvort sem það er á vett­vangi stjórn­mál­anna eða í lög­mennsku.

Helga Vala Helga­dóttir hefur í gegnum feril sinn sem lög­maður og þing­kona einkum barist fyrir mann­rétt­indum, vel­ferð­ar­málum, rétt­indum barna og gegn­sæi í stjórn­sýsl­unni. Hún hefur oft gagn­rýnt útlend­inga­stefnu íslenskra stjórn­valda á opin­berum vett­vangi og kallað hana mann­fjand­sam­lega. Hún er hlynnt nán­ara sam­starfi við Evrópu og situr í stjórn Evr­ópu­hreyf­ing­ar­innar. Hún hefur gagn­rýnt íslenska vaxta­stigið, verð­trygg­ingu og krón­una harð­lega og tengt það m.a. við erf­iða stöðu náms­manna í náms­lána­kerf­inu.

Grímur Atlason brennur fyrst og fremst fyrir hags­muna­gæslu jað­ar­settra hópa, bótum á geð­heil­brigð­is­kerf­inu og auknum mann­rétt­indum í sam­fé­lag­inu. Sem fram­kvæmda­stjóri Geð­hjálpar og mennt­aður þroska­þjálfi bendir hann iðu­lega á mikla inn­viða­skuld og fjár­skort innan geð­heil­brigð­is­kerf­is­ins.

Fréttin hefur verið upp­færð:

Í upp­runa­legu frétt­inni var því haldið fram að þau hafi verið að gera kaup­mála en þau voru að aflétta kaup­mála á gam­alli eign. Beðist er vel­virð­ingar á mis­tök­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Fólk

Átta mis­tök sem fólk ætti að forð­ast ef það flýgur um jólin

Á annatíma á flugvöllum geta tafir raskað ferðaáætlunum.

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Hlýlegt heim­ili við Efri Hól bíður nýrra eig­enda

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn