Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Greini­leg kviku­söfn­un í gangi

Krist­ín Jóns­dótt­ir á Veður­stofu Íslands segir að ekki sé for­send­ur til þess að upp­færa hættu­mat­skort af Reykja­nesskaga, nema eitt­hvað breyt­ist

Kristín Jónsdóttir
Kristín Jóns­dóttir Staðan í Grinda­vík er óljós Mynd: Róbert Reynisson

Krist­ín Jóns­dótt­ir, deild­ar­stjóri eld­virkni, jarð­skjálfta og jarð­hniks á Veður­stofu Íslands segir að ekki sé for­send­ur til þess að upp­færa hættu­mat­skort af Reykja­nesskaga, nema eitt­hvað breyt­ist.

Hættumat­skortið gild­ir að óbreyttu til 15. júlí og það ger­ir ráð fyr­ir þó nokk­urri hættu á jarð­skjálft­um og jarð­falli ofan í sprung­ur, einnig sprungu­hreyf­ing­um í og í kring­um Grinda­vík.

Hættu­mat­skortið ger­ir ráð fyr­ir nokk­urri hættu á gosopn­un; hraun­flæði sem og gjósku á sama svæði ásamt mik­illi eða nokk­urri gasmeng­un.

Þá er staða eld­stöðv­anna á Reykja­nesi og við Svartseng­i þannig að gert er ráð fyr­ir auk­inni virkni, sem er fyrsta stig af þrem­ur fram að eld­gosi eða þá yf­ir­vof­andi eld­gosi:

„Á meðan þetta ferli er í gangi með kviku­söfn­un á svip­uðum hraða, bak­grunns­skjálfta­virkni og eng­um meiri­hátt­ar breyt­ing­um, þá höld­um við þessu svona,“ seg­ir Krist­ín í sam­tali við mbl.is og bætir því við að áfram­hald­andi land­ris sé í Svarts­engi og á mjög svip­uðum hraða og síð­ustu vik­urnar og þar sé greini­lega kviku­söfn­un í gangi.

Kristín seg­ir að horft sé til þeirr­ar tíma­línu að mögu­leg­ur at­b­urður verði í haust pg það þurfi áfram að fylgj­ast vel með fram­vind­unni:

„Við erum ekki far­in að sjá þessa þróun ennþá“ segir hún og nefnir að á „hverj­um degi erum við með sjálf­virka út­reikn­inga og lík­an­keyrsl­ur til að reikna rúm­mál kvik­unn­ar“ sem sé að safn­ast þarna fyr­ir, og þegar „við sjá­um að þess­ir rúm­máls­reikn­ing­ar eru komn­ir að neðri óvissu­mörk­um þá verður upp­færsla hjá okk­ur og ástæða til að breyta hættu­mati,“ seg­ir Krist­ín sem seg­ir sér­fræð­inga fylgj­ast með Mýr­dals­jökli og Kötlu, en Katla er eld­stöðin sem hul­in er Mýr­dals­jökli.

Seg­ir Kristín að í fyrra hafi orðið stórt hlaup sem búið er að vera í umræð­unni í kring­um niður­stöður frá Eyj­ólfi Magnús­syni hjá jarð­vís­inda­stofn­un Há­skóla Íslands og að hugs­an­lega sé ein­hver vatns­söfn­un í gangi og verið sé að fylgj­ast með því sem og ánum sem jök­ull­inn hef­ur áhrif á. Þá sé fylgst með jarð­skorpu­hreyf­ing­um á svæð­inu.

Einnig segir Kristín að fylgst sé með Grjótár­vatni og svæð­inu í kring­um Ljósu­fjalla­kerfið því þar skelfi jörð áfram en ekk­ert land­ris er hafið þótt sér­fræð­ing­um finn­ist lík­legt að þar sé kviku­söfn­un á miklu dýpi. Þá heldur kviku­söfn­un áfram í Öskju með land­risi, sem hófst árið 2021. Segir Krist­ín mjög mikið hafa dregið úr því en síð­asta árið hafi verið um tíu sentí­metra hækk­un og alls hafi land risið um ríf­lega átta­tíu sentí­metra frá 2021:

„Þarna er þennsla og kviku­söfn­un í gangi með bak­grunns­skjálfta­virkni en það er ekk­ert annað sem bend­ir til að það sé eitt­hvað al­veg að fara að bresta á. Þetta get­ur gengið í dá­lít­inn tíma án þess að það dragi til tíð­inda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.
Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Landið

Leifar af skála frá land­náms­tíma fund­ust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leð­ur­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp