Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Vilja hluthafafund í Festi – Óánægja með uppsögn Eggerts

Eggert Þór Kristófersson
Eggert Þór Krist­ó­fers­son Mynd: n1.is

Hluthafar í Festi ræða nú um það sín á milli að óska eftir hluthafa­fundi í félaginu vegna uppsagnar Eggerts Þórs Krist­óferssonar úr starfi forstjóra fyrir­tækisins. Mbl.is greinir frá þessu.

Síðustu daga hefur verið fjallað um ólgu meðal hluthafa vegna uppsagnar Eggerts. Um er að ræða bæði einka­fjárfesta og lífeyris­sjóði. Hlut­hafarnir eru sagðir ekki hafa vitað af brott­hvarfi Eggerts fyrr en tilkynning var send til Kaup­hallarinnar í síðustu viku. Í tilkynningunni kom fram að Eggert hafi sjálfur ákveðið að segja starfi sínu lausu. Í kjölfarið lækkaði hlutabréfa­verð fyrir­tækisins um 3,7 prósent.

Mynd/skjá­skot RÚV

Eggert hefur starfað hjá Festi og forvera félagsins í 11 ár. Samkvæmt heimildum Mannlífs er hann afar vel liðinn, með gott orðspor í starfi. Í forstjóratíð Eggerts hefur Festi og fyrirtæki samstæðunnar skilað miklum hagnaði. Ávöxtun hluthafa hefur verið með því hæsta sem sést hefur á Íslandi frá fjármála­hruni.

Uppsögn Eggerts er sögð hafa komið sem þruma úr heiðskýru lofti og greint hefur verið frá tölu­verðri óánægju meðal hluthafa í Festi vegna málsins.

Heimildir herma að Eggerti hafi verið sagt upp

Tilkynningin bar þess merki að Eggert hefði sjálfur skyndi­lega ákveðið að láta af störfum. Heimildir Mannlífs herma að svo hafi ekki verið, heldur hafi Eggerti var sagt upp störfum og honum tjáð að stjórn fyrir­tækisins vildi „breyta til“.

Þórður Már Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Festar.

Samkvæmt heimildum Mannlífs var það meðal annars fyrir tilstilli hlut­hafanna Þórðar Más Jóhannessonar og Hreggviðs Jónssonar að hann var látinn fjúka. Þórður Már neyddist til að segja sig úr stjórn Festis og hætta sem stjórnar­formaður eftir að fjöl­miðlar upplýstu um ásakanir Vítalíu Lazarevu á hendur þeim Hreggviði, en hún sagði þá hafa farið yfir mörk sín kynferðis­lega í sumar­bústaðar­ferð. Hreggviður sagði sig úr stjórn Veritas og tengdra fyrir­tækja í kjölfar ásakananna.

Hregg­viður Jónsson

Eggert hefur haft sig í frammi í umræðu um mál tengd MeToo-byltingunni og fordæmt framferði þeirra sem sagðir eru hafa farið yfir mörk kvenna.

Í ágúst 2021 steig Eggert fram og gagnrýndi forystu KSÍ vegna meintra kynferðis­brota sem þá voru til umfjöllunar. Festi hefur verið einn af stærstu bakhjörlum Knattspyrnu­sambands Íslands.

Heimildar­menn Mannlífs segja þá Þórð og Hreggvið vart hafa rætt við Eggert frá því meint kynferðis­brotamál þeirra kom upp í fjöl­miðlum.

Hugsanleg þöggun í starfslokasamningi

Laun Eggerts á árinu 2020 voru um 73 milljónir króna og heimildir Mannlífs herma að ráðninga­samningur Eggerts tryggi honum ein árslaun hið minnsta. Líklegt má þó telja að stjórn fyrir­tækisins hafi kosið að gera enn betur við forstjórann, sem malað hefur gull fyrir hluthafa sína, gegn því að hann tjái sig ekki um starfs­lokin.

Til þess að knýja megi fram hluthafa­fund þarf ósk þess efnis að berast frá 10% hluta félagsins. Lífeyris­sjóðir eiga um 70% hlut í félaginu. Þar sem ólíklegt þykir að sjóðirnir taki þátt í að kalla eftir hluthafa­fundi mun það að öllum líkindum verða undir einka­fjárfestum komið að safna saman undir­skriftum 10% hluthafa í félaginu.

Vítalía Lazareva þakkaði Eggerti fyrir stuðninginn í máli hennar, í framhaldi af frétt Mannlífs síðustu helgi, og sagði hann vera einn fárra sem hlustað hefðu á hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Viðbragðsaðilar voru sendir á vettvang
Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá