Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Hrafn stefnir ríkinu: „Ég er í engum vafa um hvernig viðureign mín við íslenska ríkið fer“

Hrafn Jökulsson
Hrafn Jök­uls­son

Í helgar­blaði Frétta­blaðsins var ítarlegt viðtal við Hrafn Jökulsson. Þar fer hann í saumana á krabbameins­veikindum sínum sem hann kallar Surtlu og frelsinssviptingu sem hann varð fyrir þegar sérsveitir og samninga­teymi ríkis­lögreglu­stjóra auk héraðs­lækni á Hvamms­tanga mættu á Brú í Hrúta­firði þar sem hann dvaldi. Krefst Hrafn að íslenska ríkið greiði sér samanlagt 123.711.465 krónur í tveimur stefnum.

„Það eru mikil forréttindi að fá að takast bæði á við íslenska ríkis­valdið og hana Surtlu mína í öllu sínu veldi samtímis. Ég er í engum vafa um hvernig viðureign mín við íslenska ríkið fer en ég hef ekki hugmynd um hvort ég lifi sjálfur að sjá réttlætinu fullnægt. En sá dagur mun koma,“ segir Hrafn í upphafi viðtalsins við blaðamann Frétta­blaðsins.

Tvær stefnur

Annars vegar höfðar Hrafn Jökulsson mál fyrir Héraðs­dómi gegn heilbrigðis­ráðherra og fjármála- og efnahags­ráðherra fyrir hönd íslenska ríksins til greiðslu á 58.211.465 krónum auk dráttar­vaxta. Byggir Hrafn stefnu sína á því að læknirinn sem rann­sakaði hann, eftir að hann fann fyrir særindum í hálsi, hafi gerst sekur um saknæma og ólögmæta háttsemi. Ekki hafi verið framkvæmd fullnægjandi rannsókn né heldur henni fylgt eftir.

En eins og áður hefur komið fram í fjöl­miðlum greindist Hrafn með lófastórt krabbameins­æxli í hálsi. Krabba­meinið er á lokastigi.

Hinsvegar höfðar Hrafn mál fyrir Héraðs­dómi gegn dómsmála­ráðherra, heilbrigðis­ráðherra og fjármála- og efnahags­ráðherra fyrir hönd íslenska ríksins til greiðslu á 65.500.000 krónum auk dráttar­vaxta. Byggir Hrafn stefnu sína á því tjóni af hann hafi orðið fyrir vegna allrar hand­tökunnar á Brú, flutnings á sjúkrahús og nauðungar­vistunar þar og framkvæmdar hennar.

„Nú er ég loksins tilbúinn að leggja fram mitt mál eftir að hafa í næstum tvö ár þurft að rannsaka sjálfur með hjálp lögmanns míns, Reimars Péturs­sonar, og ómetanlegra vina, ráðgátuna miklu um hvað gerðist á Brú í Hrúta­firði 31. október 2020 klukkan 23.06. Þegar sérsveitir ríkis­lögreglu­stjóra úr tveimur lands­fjórðungum og gjörvallt lögreglulið Vestur-Húna­vatnssýslu ásamt samninga­teymi ríkis­lögreglu­stjóra og héraðs­lækni á Hvamms­tanga voru saman komin á Brú í Hrúta­firði, þar sem ég var að ganga til náða eftir viðburða­ríka viku og hlakkaði til þess að vakna frjáls maður 1. nóvember þegar ég yrði 55 ára og ætlaði að byrja nýtt og enn þá skemmtilegra líf,“ segir Hrafn í viðtalinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Kröfuhafar fengu ekkert greitt úr fjórum búum þar sem lýstar kröfur námu samtals rúmum 34,2 milljónum króna.
Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta