Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Gunnar Smári er sammála Agnesi: „Held að við mættum alveg ræða meira um hann blessaðan“

Gunnar Smári Egilsson.
Gunnar Smári Egilsson.

Gunnar Smári segir ekkert skrítið að biskupinn vilji tala meira um Guð.

Sósíalista­forkólfurinn Gunnar Smári Egilsson skrifaði afar djúpa hugvekju á Facebook-vegg sinn í dag. Þar fer hann á dýptina yfir Guð og heiminn í dag, samfélagið og forfeðra­dýrkun svo eittvað sé nefnt.

Hér má sjá hugvekjuna í heild sinni:

„Þurfum við að tala um Guð?

Ég myndi aldrei orða það svo að það væri þöggun um Guð í samfélaginu, en ég held að við mættum alveg ræða meira um hann blessaðan og það sem honum tilheyrir. Þegar ég var settur yfir unglinga­blaðið Fókus á síðustu öld, harðfullorðinn maðurinn, benti ég ungum blaða­mönnum á gamla ráðleggingu sem mér var einhvern tímann sagt að Árni Þórarinsson hefði gefið óreyndu fólki á leið í viðtöl, að spyrja fólk um kynlíf, áfengi og trúar­brögð. Það brást sjaldan að það voru svörin um trú sem voru áhuga­verðustu kaflarnir í viðtölunum. Þar var helst eitthvað óvænt, nýtt og sérstakt, eitthvað sem viðmælandanum fannst mikilvægt. Ef ég man rétt suðum við þetta niður og buðum upp á örviðtöl þar sem aðeins var spurt um þetta þrennt.Ég er ekki heit­trúaður en mér hefur alltaf fundist ég þurfa að skilja á einhvern hátt frásagnir af samvistum mannsins við guð sinn, að í þeim væri stærsti hlutinn af því sem mann­skepnan hefði hugsað um stöðu sína í heiminum. Sem er nátt­úrlega illviðráðanleg spurning sem best er að svara með sögum, líkingum eða söng. Um hvað við séum eiginlega að gera hér, tilhvers sé ætlast af okkur og hvernig við getum fundið innri frið og sátt, þakklæti fyrir það við höfum en viðhaldið líka von um meira réttlæti, mannúð og frið á þessu heimili sem við eigum saman.Og ég hef notað Guð eins og hvert annað áhald, til að flytja til egóið svo það þurfi ekki að vera miðja alls. Ég kann ekki betri aðferð til þess. Það fylgir tilvist okkar að vera miðja heimsins. Það er úr okkur sjálfum sem við sjáum allt og skynjum. Og þá skiljum heiminn eðlilega með okkur í miðjunni. Sem er nátt­úrlega klikkað sjónar­horn og skekkt. Til að varna þessu, eða alla vega vega upp á móti, er snjallt að koma sér upp Guði hið innra svo við þurfum ekki sjálf að sitja þarna í miðjunni og heimskast af upphafningu og ofmetnu mikilvægi.Forfeðra­dýrkun er líka snjallt áhald til að minna okkur á að flest sem við eigum og njótum var búið til og viðhaldið af öðru fólki, gengnu fólki. Það dregur bit úr egóinu að minna sig á slíkt. En það er líka menningarleg viðhalds- og verndar­stefna. Minnir okkur á að fara vel með það sem er, að okkar hlutverk sé að koma sköpunar­verki genginna kynslóða (nú, eða guðs) til skila til næstu kynslóðar ekki í lakara standi en við erfðum það.Við lifum endalok sögunnar eins og Fukuyama benti á, þótt hann hafi kannski misskilið sýn sína. Þegar Guð hafði legið dauður um langa hríð reis upp tími uppblásinnar einstaklings­hyggju þar sem egóið var í hásætinu og miðjunni og samfélagið leysist upp og varð að engu öðru en safnhaug af einstaklingum, mikilfeng­legum og alvöldum, og þá hvarf sagan. Enda hefur manneskja sem ekkert sér nema sjálfa sig ekkert að gera við sögu, samfélag eða Guð. Hver hugsun hennar eða löngun er upphaf alls, hið heila markmið að elta þetta.Við lifum mikla upplausnar­tíma. Þess vegna er stöðug­leikinn söluvara. Það er hunda­blístur til þeirra sem vilja verja stöðu sína. Hin fátæku og forsmáðu biðja ekki um stöðug­leika. Og stöðug­leikinn sem er seldur er í reynd áfram­haldandi niðurbrot þess samfélags sem byggðist upp af kröfum skipulagðra alþýðu­hreyfinga á síðustu öld, bæði innviða, grunn­kerfa og þeirrar lýðræðis­virkni sem gat fleytt kröfum hinna eigna­lausu og fátæku áfram.Og til að halda áfram niður­brotinu þurfa þau sem auðgast á því og draga til sín völdin að halda aftur af umræðu um samfélag og sögu. Og um guð, ef guð er móteitur gegn uppblásinni einstaklings­hyggju. Og besta leiðin til að ræða eitthvað alls ekki er að sveipa það helgi­ljóma svo það hefjist upp yfir okkur öll, að sagan, samfélagið og guð séu ekki eldhús­áhöld til að beita gegn vanda heldur eitthvað ósegjandlegt, óumræðanlegt og óendanlega innantómt í upphafningu sinni. Eins og við erum orðin sjálf.Við erum þar. Standandi frammi fyrir vanda sem er í grunninn andlegur. Þegar við höfum misst sjónar af stöðu okkar í heiminum og sögunni, ábyrgð okkar á samfélaginu og til hvers við getum notað góðan guð. Og þá er akkúrat ekkert skrítið við að biskup telji að það myndi bæta samfélag okkar ef við æfðum okkur að tala um guð og andleg mál. Sú sem er kristin eða iðkar aðra trú hlýtur að telja það bestu leiðina til að lækna hin andlegu mein.Svo er annað fólk öðruvísi saman sett, með rökvísi sem botn í sinni sál á meðan aðrir eru byggðir upp frá félags­legum tengslum og tilfinningum. En það er æði stór hópur sem funkerar ekki nema finna einhvern andlegan þráð. Það má ekki bara sjá af andlegri iðkun heldur hvernig allt hneigist til að taka á sig mynd trúar og trúar­bragða. Það á ekki síst við um vísindi og skipulagða þekkingar­söfnun, sem gera kröfu um heilag­leika og óskeikul­leika, búa til sínar eigin heilagra manna sögur og ritúöl og vilja fordæma þau sem ekki falla fram og tilbiðja þau.Og það sama á við um hugmynda­stefnur í samtímanum, hvort sem það er femínismi eða nýfrjálshyggja, sósíalismi eða íhaldssemi. Trúar­iðkun hefur verið svo afgerandi farvegir í gegnum aldirnar að allt sem við gerum og hugsum tekur á einhvern hátt mið af því. Hillur með fæðu­bótarefnum út í kjörbúð eru sem altari þar sem hægt er að sækja sér endurnýjun og losna undan synd, ekki með líkama Krists heldur því sem hefur tekið yfir hlutverk hans.En hvað um það. Þessi með andlega botninn í sinni sál telur að besta leiðin til að bæta heiminn, til að finna merkingu í upplausninni, sé að tala um Guð. En hún lifir í samfélagi sem hrópar niður slíkar uppástungur, eins og svo sem flest annað. Við erum föst í deilu um dagskrá og fundar­stjórn forseta, um hvað megi tala um og hvað ekki. Komumst aldrei að því að ræða neitt sem er áhugavert.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra