Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Innlent

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Björn með hjartnæma færslu um Grindavík: „Svona atburður leggst eins og illvíg mara á sálina“

Grindavík –
Grinda­vík – Mynd: Wikipedia

Björn Birg­is­son saknar gamla lífs­ins í Grinda­vík.

Sam­fé­lags­rýn­ir­inn frá Grinda­vík, Björn Birg­is­son skrif­aði hjart­næma Facebook-færslu í gær þar sem hann talar um það sem hann saknar mest frá Grinda­vík og talar um nýtt tíma­tal, sem byrjar 10. nóv­em­ber 2023.

„Nú er komið nýtt tíma­tal!

Alla vega hjá mér.Hef nú ekk­ert afdrifa­rík­ara að miða við en ham­far­irnar 10. nóv­em­ber 2023.Þannig að eftir eina viku verða liðnir 4 mán­uðir af þessu nýja lífi sem okkur Grind­vík­ingum var úthlutað af nátt­úr­unni sjálfri, með ein­hverju inn­gripi manna frá degi til dags.Ég lifi því nýja lífi, en mér hugn­ast það ekki.Sakna fyrra lífs sár­lega.Alls, eins og það leggur sig.Yfir­gefið heim­ilið vegur þyngst, öll hin góða aðstaða þar, þar sem minn­inga­banki lífs míns er stað­settur.Sakna bíl­skúrs­ins sem var allt í senn, athvarf fyrir raf­bíl­inn, golf­hjólin, lista­smiðja, aðstaða fyrir málun og sprautun, við­gerð­ar­verk­stæði og geymsla fyrir flest allt sem geyma þurfti – sumt til þess eins að henda síðar!Sakna bæj­ar­ins.Sakna fólks­ins.Hafn­ar­innar, sjáv­ar­ins, brims­ins.Ein­fald­lega alls.Sakna þess að vera ekki að höndla með harð­fisk, en það fannst mér gríð­ar­lega skemmti­legt.Úti­mark­aðir þegar veðrið var gott voru viss toppur á til­ver­unni.Karlinn, í fínu lopa­peys­unni sem Ingi­björg prjón­aði, að spjalla við glað­legt fólk og horfa á iðandi mann­lífið á þönum.Ein­fald­lega ynd­is­legt.“

Í seinni hluta færsl­unnar talar Björn um það sem gæti verið framundan. Segir hann að atburður eins þessi, legg­ist „eins og ill­víg mara á sál­ina.“

„Hvað gæti verið framundan?Það er mér algjör­lega hulin ráð­gáta.Þetta er ekki kjör­staða fyrir neinn og alls ekki fyrir fólk komið vel inn á átt­ræð­is­ald­ur­inn.En nokkuð víst er að lífið sem lýst er hér að ofan er gengið sinn veg og kemur ekki aftur í sömu mynd.Nú er bara að reyna að horfa fram á veg­inn og gera hvern dag bæri­legan.Þetta hljómar kannski und­ar­lega en svona atburður, atburður sem kippir öllu hinu dag­lega úr sam­bandi, leggst ein­fald­lega eins og ill­víg mara á sál­ina.Okkar staða er þrátt fyrir allt miklu betri en margra ann­arra, við erum bara tvö, börnin löngu flogin úr hreiðr­inu og ekki erum við með neinn rekstur.Maður hristir svona nokkuð ekki af sér eins og eitt­hvert kusk af hvít­flibb­anum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Nikulás sást síðast á þriðjudag. Hann var þá með bláan bakpoka og klæddur í grænan sumarjakka.
Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Landið

Leifar af skála frá land­náms­tíma fund­ust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leð­ur­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp