Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Guðný kallar eftir viðbrögðum yfirvalda vegna heimsóknar ísraelsks hermanns

„Ég geri ráð fyrir að dómsmála­ráðherra, hafi fyrir löngu tryggt að til staðar séu skýrir ferlar til að bregðast við málum sem þessum.“

Mendy (til vinstri)
Mendy (til vinstri) Myndin er tekin á heim­ili palest­ínkrar fjöl­skyldu Mynd: X

Verk­fræðingurinn Guðný Nielsen kallar eftir því að íslensk yfirvöld skýri hvernig brugðist verði við þegar einstaklingar, sem sakaðir hafa verið um stríðs­glæpi, koma til landsins. Þetta kemur fram í Facebook-færslu sem hún birti.

Tilefni færslunnar er heimsókn rabbínans Shmuley Boteach og sonar hans, Mendy Boteach til Íslands. Mendy þjónaði í Ísraelsher og tók þátt í hernaðar­aðgerðum á Gaza.

Guðný vísar til kvörtunar sem lögð hefur verið fyrir Alþjóð­lega sakamála­dómstólinn (ICC) þar sem Mendy Boteach sé sakaður um að hafa tekið þátt í að leggja undir sig heimili palestínskrar fjöl­skyldu á Gaza, valda þar skemmdum og breyta því í sýnagógu fyrir ísraelska hermenn.

„Slíkt telst stríðs­glæpur og brot á bæði Fjórða Genfar­samningnum og Rómar­samþykkt Alþjóða­glæpa­dómstólsins. Meðfylgjandi myndir og myndbönd af athæfinu birti faðir hans á samfélags­miðlinum X,“ skrifar hún.

Guðný segist gera ráð fyrir að embætti ríkis­lögreglu­stjóra hafi þegar haft samband við Alþjóð­lega sakamála­dómstólinn til að fá skýringar á því hvaða lagalegu skyldur hvíli á íslenskum yfir­völdum í málum sem þessum.

Hún beinir einnig spurningum til dómsmála­ráðherra, Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugs­dóttur.

„Ég geri jafnframt ráð fyrir að Þorbjörg Sigríður Gunnlaugs­dóttir, dómsmála­ráðherra, hafi fyrir löngu tryggt að til staðar séu skýrir ferlar til að bregðast við málum sem þessum,“ skrifar Guðný og bendir á að Ísland taki árlega á móti fjölda ísraelskra ferða­manna.

Hún bendir jafnframt á að þar sem herskylda sé almenn í Ísrael sé líklegt að margir ísraelskir ferðamenn yfir 18 ára aldri hafi tekið þátt í hernaðar­aðgerðum á Gaza.

Færslunni lýkur á gagn­rýninni spurningu til ráðherra:

„Eða finnst ráðherra kannski ekkert athuga­vert við að íslenskar barna­fjölskyldur gisti t.a.m. í kojum í skálum á Lauga­veginum við hliðina á mönnum sem sakaðir eru um stríðs­glæpi?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum