Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Kona heyrði skothríðina fyrir utan gluggann hjá sér: „Ok, þetta var ekki flugeldur!“

Sérsveit ríkislögreglustjóra. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd / Stundin.
Sérsveit rík­is­lög­reglu­stjóra. Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd / Stundin.

Kona sem í Berg­staðastræti í miðbæ Reykja­víkur heyrði í skot­árásinni sem sagt var frá í fréttum í morgun, út um gluggann heima hjá sér. Taldi hún í fyrstu að ráðist hefði verið á konu.

Kona sem Mannlíf hafði samband við kveðst hafa rokið út í glugga heima hjá sér við Berg­staðastræti rétt fyrir klukkan eitt í nótt vegna hávaða. „Ég heyrði svona dududududu hljóð og hugsaði með mér, „ok, þetta var ekki flugeldur!“.“ Konan kíkti út í glugga og heyrði þá öskur, „og ég hélt að kannski væri verið að ráðast á eina stelpu,“ sagði konan en um þetta leyti var margt fólk á leið heim af barbrölti þannig að konan var ekki alveg viss.

Kveðst konan svo hafa sé karlmann sem var að ganga framhjá húsinu sínu, horfa í sömu átt og skot­hljóðin komu frá þannig að hún vissi að fleiri hefðu heyrt þetta. „Síðan dreg ég bara fyrir gluggann en sé svo að það er allt blikkandi blátt hér fyrir utan, sé tvo sjúkra­bíla og menn hlaupa á milli þeirra og kalla „já drífum okkur, go, go, go“ og bruna svo í burtu. Og svo stuttu seinna kom stóri fíkn­óbíllinn og stoppaði fyrir utan hjá mér og svona hálf­lokaði götunni í smá stund.“

Aðspurð hvernig hún hafi vitað að þetta hefði ekki verið flugeldar sem hún heyrði í sagði konan að þetta hafi hljómað mjög svipað og flugeldar en að hljóðið hafi verið dýpra, að það væri hálf erfitt að útskýra það en að það hafi verið dýpra og því hafi hún verið viss um að þetta hafi verið skothljóð.

Einn maður slasaðist í skot­árásinni og var hann fluttur á slysa­deild. Hann er ekki í lífshættu. Þrír karlmenn sem allir eru liðlega tvítugir og með íslenskan ríkis­borgararétt, voru hand­teknir við rannsókn málsins og hald lagt á skotvopn. Ekki er vita um tengsl mannanna og fórnar­lambsins að svo stöddu.

Sjá einnig: Skotárás í miðbæ í nótt: „Hringdi í 112 og staðurinn leit út eins og góður CSI þáttur í smá stund“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Leigjandinn viðurkenndi að eldurinn hefði kviknað vegna gáleysis hans

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu