Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Samkynhneigð uns „sakleysi“ sannast

Óvenju­leg skot­mörk í bar­áttu rúss­neskra stjórn­valda gegn LGBTQ+

Rauða Torgið í Moskvu
Rauða Torgið í Moskvu Yfirvöld í Kreml veigra sig ekki við að sekta fólk og fyr­ir­tæki fyrir hinsegin „áróður“ Mynd: MartiBstock/Shutterstock

Manga-mynda­saga um snáka­róm­an­tík, nánir tví­bura­bræður og umhverf­is­vernd­ar­sinni eru dæmi um það sem hefur orðið undir lög­unum um „óhefð­bundin gildi“ í Rúss­landi nútím­ans.

Rússnesk stjórn­völd halda áfram að herða aðgerðir gegn öllu sem þau telja tengj­ast LGBTQ+ lífi. Í nafni banns­ins á svoköll­uðum „LGBT áróðri“ hafa dóm­stólar og lög­regla farið ótrú­legar leiðir í að finna meint brot. Sjálf­stæði fjöl­mið­ill­inn 7×7 tók saman nokkur dæmi sem sýna hversu langt yfir­völd ganga.

„Víkingaþorp“ í Kaliningrad sektað

Þann 22. sept­em­ber 2025 var sögu­safnið Kaup í Kal­in­ingrad, sem kynnt er sem „vík­inga­þorp“, sektað um 800 þús­und rúblur (um 1,1 milljón krónur) fyrir að brjóta gegn lögum um „LGBT áróður“.

Tilefnið var við­burður sem hald­inn var í sumar af einka­að­ila sem leigði svæðið. Þar hafði verið sett upp skop­mynda­bás merktur „BDSM“, sem varð grund­völlur sekt­ar­innar. Þá hélt lög­regla því fram að mynd sem sýndi tvær konur kyss­ast hefði verið tekin á svæð­inu.

Stjórn­endur Kaup sögðu að mót­mæli þeirra um að þarna væri hvorki „áróður“ né neitt sem félli undir „óhefð­bundin gildi“ hefðu verið hunsuð.

Ástarsaga stúlku og snáks

Ivan Kvast, rekstr­ar­stjóri vefs­ins MangaLIB – stærstu rúss­nesku­mæl­andi útgáfu­versl­unar fyrir manga og teikni­mynda­sögur, var sektaður um 200 þús­und rúblur (292 þús­und krónur) fyrir að hýsa japönsku sög­una The Great Snake’s Bride.

Dóm­stóll­inn féllst á mál­flutn­ing sak­sókn­ara um að rómans milli manns og goð­sagna­veru teld­ist „óhefð­bund­inn“. Refs­ingar á hendur Kvast hafa nú numið meira en einni milljón rúbla. Sjálft MangaLIB hefur fengið sam­tals yfir 14 milljón rúblna sektir.

„Óvenju nánir“ tvíburabræður

Í Tat­arstan voru tví­bura­bræður dæmdir til að greiða hvor um sig 100 þús­und rúblur (146.000 kr) fyrir að „aug­lýsa óhefð­bundin kyn­ferð­is­leg sam­bönd“.

Málið byggð­ist á blogg­síðu þeirra, sem hefur færri en 2.000 fylgj­endur og inni­heldur mest­megnis fyndin mynd­bönd, ferða­lýs­ingar og lík­ams­rækt­ar­efni. Ekki er ljóst hvað nákvæm­lega kveikti áhuga sak­sókn­ara en í dóms­orði var sagt að þeir hefðu „aug­lýst óhefð­bundið kyn­ferð­is­legt sam­band milli tví­bura­bræðra“. Engin sér­fræði­grein­ing var lögð fram sem sönnun.

Umhverfisverndarsinni sektaður

Þann 15. júlí 2025 var Pavel Osipov, aðgerðasinni úr hreyf­ing­unni Sterlita­mak, Andaðu!, sektaður um 100 þús­und rúblur. Ástæða máls­ins var kvörtun frá konu tengdri bæj­ar­yf­ir­völdum, sem benti á myndir úr „vist­uðum færslum“ hans á VKontakte þar sem ungar konur voru að faðm­ast og kyss­ast.

Osipov full­yrti að hann hefði vistað mynd­irnar sem hluta af sönn­un­ar­gögnum í öðru saka­máli. Hann hefur þrjú börn og sagði í yfir­lýs­ingu að hann væri and­vígur „LGBT fyr­ir­bær­inu“. Stuðn­ings­menn hans telja málið póli­tískt og ætlað til að sverta nafn hans sem gagn­rýn­anda.

Tölurnar á bak við aðgerðirnar

Frá því að heild­ar­bannið á „LGBT áróðri“ tók gildi í des­em­ber 2022 hefur fjöldi mála farið í gegn um dóm­stóla. Greining 7×7 á opin­berum skjölum sýnir eft­ir­far­andi:

  • 405 mál bár­ust dóm­stólum, 372 leiddu til dóms­úr­lausnar.
  • Í 162 málum voru lagðar sektir, í 16 til­vikum fengu sak­born­ingar allt að 15 daga fang­elsi.
  • Fimm erlendum rík­is­borg­urum var vísað úr landi.

Málin hafa beinst að bæði ein­stak­lingum og stórum fyr­ir­tækjum, þar á meðal streym­isveitum, bóka­út­gef­endum og jafn­vel börum. Sektir hafa einnig verið lagðar á fólk fyrir að vista meme-myndir (ísl. jarm-myndir) á sam­fé­lags­miðlum eða fyrir sam­skipti á stefnu­móta­for­ritum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Maður um fertugt hlaut alvarlega skurði og var fluttur á sjúkrahús eftir bráðameðferð á vettvangi.

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé