Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Nora Haukland lýsir meintu ofbeldi í sambandi við Marius Borg Høiby

„Augun urðu svört“

Marius Borg Høiby
Marius Borg Høiby Þungar sakir eru bornar á prinsessu­son­inn Mynd: Bernard Rubsamen. / dana press / picturedesk.com

Fyrr­ver­andi kærasta Mariusar Borg Høiby, sonur krón­prinsessu Noregs, bar vitni fyrir dómi í dag, gegn Mariusi, sem sak­aður er um 38 mis­mun­andi brot.

Áhrifa­vald­ur­inn Nora Haukland og Marius Borg Høiby, sem oft er nefndur „auka­prins­inn“ (n. bonu­sprin­sen), voru í sam­bandi í um eitt og hálft ár. Nú er Høiby grun­aður um að hafa beitt hana bæði and­legu og lík­am­legu ofbeldi nær allan þann tíma sem sam­bandið stóð yfir.

Haukland, sem er 28 ára, steig í vitna­stúk­una í Hér­aðs­dómi Oslóar, þar sem hún lýsti sam­bandi þeirra og þeirri þróun sem það tók. Hún sagði að hún hefði smám saman byggt upp mik­inn ótta við hann og reiði hans.

Parið kynnt­ist árið 2022 og hóf fljót­lega sam­band. Haukland lýsti því hvernig hún varð fljótt ást­fangin og heilluð af honum, en sagði jafn­framt að fljót­lega hafi farið að bera á óstöð­ug­leika. Að hennar sögn sýndi hann tvær gjör­ó­líkar hliðar: ann­ars vegar glað­vær og hlý­legan mann sem hún treysti og taldi sinn besta vin, hins vegar mann sem hún gat ekki átt sam­skipti við þegar hann varð reiður.

Hún lýsti því að þegar skap hans breytt­ist hafi „augun orðið svört“ og að hún hafi verið skelf­ingu lostin þegar hún sá þessa hlið koma fram, enda vissi hún aldrei hvað myndi ger­ast næst.

Fljót­lega hafi hann orðið afbrýð­is­samur og stjórn­samur, viljað ráða klæða­burði hennar, sam­skiptum og athöfnum. Hann hafi einnig haldið sam­bandi við konur sem hann hafði áður verið með og komið með leið­in­legar athuga­semdir við vini hennar. Þegar hún gagn­rýni hann fyrir það hafi hann brugð­ist reiður við.

Samkvæmt fram­burði Haukland hófst lík­am­legt ofbeldi skömmu síðar. Hún sagði að hún hefði oft gengið á eggja­skurnum í sam­skiptum við hann, hann hafi öskrað á hana og ítrekað meitt hana lík­am­lega. Hún lýsti meðal ann­ars atviki þar sem hún læsti sig inni í her­bergi til að kom­ast undan honum, en hann barði þá á hurð­ina og réðst síðar að henni inni í her­berg­inu.

Hún sagði einnig að ofbeldið hefði átt sér stað ítrekað og að hún hefði upp­lifað bæði gas­lýs­ingu og svo­kallað „love bomb­ing“, þar sem hann ýmist beitti hana ofbeldi eða baðst afsök­unar og lof­aði bót og betrun. Þetta hafi orðið til þess að hún fór að efast um eigið mat á aðstæðum á sama tíma og ótt­inn jókst.

Við yfir­heyrslur spurði sak­sókn­ar­inn Sturla Hen­riksbø hvers vegna hún hefði ekki slitið sam­band­inu fyrr. Haukland svar­aði að hún hefði lengi vonað að hlut­irnir myndu batna, enda hefði hið góða í sam­band­inu verið sterkt og til­finn­ing­arnar djúpar.

Parið sleit sam­band­inu árið 2023 eftir um eitt og hálft ár saman. Marius Borg Høiby er nú grun­aður um alls 38 mis­mun­andi brot. Hann hefur neitað öllum ásök­unum um lík­am­legt og and­legt ofbeldi.

Rétt­ar­höldin halda áfram næstu þrjár vikur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Maður um fertugt hlaut alvarlega skurði og var fluttur á sjúkrahús eftir bráðameðferð á vettvangi.

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé