Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Anna og útsölurnar: „Í gærmorgun rann upp svartur föstudagur, bjartur og fagur“

Anna Kristjáns.
Anna Krist­jáns.

Í nýjust dag­bók­ar­færslu Önnu Krist­jáns­dóttur, sem hún skrifar frá Paradís, sem aðrir kalla Tenerife, talar hún um svarta föstu­dag­inn sem hald­inn var „hátíð­legur“ í gær víða um heim.

„Í gær­morgun rann upp svartur föstu­dagur, bjartur og fagur,“ skrifað Anna í byrjun færsl­unnar og hélt svo áfram. „Ég hafði ekki hugsað mér að kaupa neitt, en minnug þess er ég álp­að­ist til að kaupa mér far­tölvu af lítt þekktu merki fyrir þremur árum síðan í Worten á mánu­degi fyrir svartan föstu­dag. Tölvan sú reynd­ist vera mánu­dags­vél.“ Því næst skrifar hún um raunir sínar í tengslum við tölv­una. „ Það leið ekki á löngu uns blá­tönnin hætti að virka og hið ein­asta sem ég get gert eftir árang­urs­lausar til­raunir tölvu­sér­fræð­ings til að koma blá­tönn­inni í lag var að kaupa úta­náliggj­andi blá­tönn. Svo bil­aði annað usb portið svo að ég neydd­ist til að fá mér fjöltengi á tölv­una. Hið næsta sem bil­aði voru hjar­irnar á tölv­unni og þarmeð losn­aði ramm­inn utan um skjá­inn. Þá gafst ég upp, hafði sam­band við son­inn sem flýtti sér út í Origo við Borg­ar­tún og náði í nýja Lenovo tölvu og sendi mér með fyrstu ferð og er sú tölva enn í fullri notkun og án bil­ana, meira að segja svo að hún hikstar ekki einu sinni þegar ég set ein­hverja bölv­aða vit­leysu út á alnetið.“

Segir Anna hafa verið að hugsa um þetta í gær­morgun þar sem hún yfir morg­un­sop­anum, alveg harð­á­kveðin að kaupa ekk­ert í til­efni dags­ins. „En þá sendi fyr­ir­tækið sem þjón­ustar bíl­inn minn mér verð­til­boð í nýja skó handa Mjall­hvíti. Þrjú ólík til­boð. Þau ódýr­ustu upp á 600€. Svo var annað upp á 750€ frá Pirelli og loks hið þriðja uppá 800€ frá Michelin með umfelgun inni­fal­inni. Ég hugs­aði mig lengi um og svo tók ég ákvörðun. Einungis hið besta er nógu gott fyrir hana Mjall­hvíti mína og ég valdi Michelin. Þar með fór sparn­aður dags­ins fyrir bý, enda skilst mér að ég eigi að vera búin að skipta um dekk fyrir löngu síðan.“
Færsluna skemmti­legu má lesa í heild hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Upptökurnar eru frá Mið-Austurlöndum og ná yfir árin 2020 til 2026. Varnarmálaráðuneytið segir enn óljóst hvað þær sýni.
Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027