Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Hin mannskæða Sturlungaöld:„Var þetta hin snarpasta orusta, svo að engi hefir slík orðið á Íslandi“

Sturlungaöld Á Íslandi hinu forna er oft lýst sem einu ofbeldis­fyllsta tímabili í sögu landsins.

Eðlilega hefur nokkuð verið á reiki hvaða tímabil falli innan marka Sturlunga­aldar; jafnan talin hefjast um miðja 12. öld, um 1200, 1220 eða 1230.

Þá eru lok hennar jafnan talin við lok þjóð­veldis, 1262 eða 1264.

Hér skakkar nokkuð miklu; Sturlungaöld telst vera í mesta lagi um 114 ár en minnst 32 ár. Það munar um minna.

Guðbrandur Vigfússon fornrita­fræðingur taldi saman að eitthvað um að 370 manns hefði fallið í orrustum eða verið teknir af lífi í ófriði samkvæmt sögum á tíma­bilinu 1208–58.

Mann­skæðasta orrustan sem sagt er frá er Haugs­nesbardagi í Skaga­firði, árið 1246; þar áttust við Þórður kakali Sighvatsson og Brandur Kolbeinsson.

„Var þetta hin snarpasta orusta, svo að engi hefir slík orðið á Íslandi, bæði að fjölmenni og mannfalli.“

Þar féllu rúmlega hundrað manns; um 40 úr liði Þórðar en 60–70 úr liði Brands.

Í Flóa­bardaga á Húnaflóa, árið 1242, féllu milli 70 og 80 úr liði Kolbeins unga Arnórs­sonar en Þórðar kakali missti „fáa eina“ úr sínu liði; taldir eru upp með nöfnum þeir er féllu í Örlygsstaða­bardaga í Skaga­firði 1238, og eru þeir 56 talsins, 24 úr liði Sturlu Sighvats­sonar, 25 úr liði Sighvats Sturlu­sonar, föður hans, sjö úr liði Gissurar Þorvalds­sonar. Enginn er talinn úr liði Kolbeins unga Arnórs­sonar, og vantar þar líklega í upptalninguna.

Í Flugu­mýrarbrennu í Skaga­firði 1253 fórust eitthvað um 25 manns; í Þverár­bardaga í Eyjafirði, árið 1255, féllu um 16 menn, átta úr hvoru liði.

Ljóst er að Haugs­nesbardagi, árið 1246, er mann­skæðasti bardagi sem háður hefur verið hér á landi.

Ekki má gera ráð fyrir að Sturlunga saga sé algerlega tæmandi skýrsla mannfall í ófriði Sturlunga­aldar; frásögn hennar þekur tímabilið afar vel og er víða mjög nákvæm.

Tölurnar hér að ofan sýna líka að þar er lögð áhersla á að segja nákvæmlega frá mannfalli; er því ástæða til að ætla að þeir 370 sem hafa verið taldir út úr Sturlungu séu verulegur hluti þeirra sem létu lífið í ófriðnum.

Heimild: Vísinda­vefurinn

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim