Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Andrew Polec minnist Meat Loaf: „Það er kominn tími til að segja frá vandræðalegri sögu“

Andrew og Meat
Andrew og Meat Mynd: Instagram-skjáskot

Söngv­ar­inn og leik­ar­inn Andrew Polec skrif­aði hjart­næma færslu á Instagram í til­efni þess að tvö ár eru liðin frá and­láti rokk­goð­sagn­ar­innar Meat Loaf.

Andrew Polec lék aðal­hlut­verkið í söng­leik Jim Steinman, Bat Out Of Hell: The Musical sem sýnt var í Bret­landi og Banda­ríkj­unum frá 2016 til 2019, við fádæma vin­sældir en söng­leik­ur­inn hlaut fjöldi til­nefn­inga og verð­laun. Polec skrif­aði hjart­næma færslu á Instagram þar sem hann minn­ist kynna sinna af Meat Loaf, sem söng flest lög Jim Steinman heit­ins en þann 20. jan­úar síð­ast­lið­inn voru liðin tvö ár frá and­láti Meat Loaf en hann lést eftir erfið Covid-veik­indi. Fyrstu kynni Polec og Meat Loaf voru nokkuð vand­ræða­lega og segir Andrew frá því í færsl­unni.

„Tvö ár 💔,“ skrif­aði Polec í upp­hafi færsl­unnar og hélt áfram: „Það er kom­inn tími til að segja frá vand­ræða­legri sögu varð­andi fyrstu kynnum mínum af Meat.“

„Ég fékk þann heiður að afhenda Meat Loaf @qmagazinemusic „Q Hero Award“ fyrsta dag­inn sem ég hitti hann. Fyrir utan að vísa til hans sem „Hr. Loaf“ í eðal­vagn­inum þegar við keyrðum á við­burð­inn – sem hann sagði mér fljótt að „hætta“, átti ég aðra stund sem ég er enn að sparka í sjálfan mig útaf.“

Eftir að Polec afhenti Meat Loaf verð­launin, rétti Meat hinum unga og upp­renn­andi lista­manni umslag. „Eftir að hafa veitt honum verð­launin tók Meat verð­launa­umslagið og kortið og skrif­aði mér mjög per­sónu­leg skila­boð á meðan á athöfn­inni stóð – óskaði mér alls hins besta með Bat Out of Hell og við að halda á kyndl­inum. Það inni­hélt líka eitt­hvað á þá leið að ég væri and­legur arf­taki hans og hversu ánægður hann var fyrir mína hönd. Burtséð frá því þá var seð­ill­inn mér mik­ils virði og ég gat ekki trúað því að hann væri að gefa mér þetta fyrsta kvöldið sem við hitt­umst.“

Polec segir í færsl­unni að Frances Marie, umboðs­maður Meat Loaf, geti stað­fest að Meat skrif­aði honum þessi skila­boð, enda hafi hún verið sú sem hvatti goð­sögn­ina til að skrifa bréfið. „Allavega, þetta verð­launa­kort var aðeins stærra en opið í kápu­vas­anum mínum, svo ég þurfti að halda á því mest­alla nótt­ina. Til að flagga þessu korti ekki fyrir framan aðra stakk ég því inn­an­klæða í káp­unni minni og kross­lagði hand­legg­ina til að halda því þar. Í eft­irpartý­inu kom auð­vitað augna­blik þar sem ég var með kortið en næstu mín­út­una var það horfið. Ég hlýt að hafa misst það á jörð­ina áður en ég fór á kló­settið. Ég skann­aði svo  gólfið í næstu klukku­tíma og leit­aði og bað til Guð um að ég myndi finna skila­boðin aftur. Ég gerði það aldrei. Ég missti það og lík­leg­ast hefur ein­hver annar tekið það. Fyr­ir­gefðu mér Meat.“

Síðustu orð Polec eru hjart­næm:

„Þegar ég lít til baka á þetta allt saman – held ég að ég hafi í raun ekki þurft þessi skila­boð á blaði. Það voru gjörðir þínar sem héldu áfram að veita mér inn­blástur og elds­neyti meðan Bat æðið var í gangi. Það að kynn­ast þér var þýð­ing­ar­mesta ævin­týrið. Ég mun alltaf vera þakk­látur fyrir leið­sögn þína, frá­bæru sögur þínar, þjálfun þína, trú þína á mig og glampann í aug­unum þínum þegar ég vissi ekki hvort þú værir að fífl­ast í fólki eða ekki. Takk fyrir að vera hetjan mín. Sendi mikla ást til þín og Jim.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Upptökurnar eru frá Mið-Austurlöndum og ná yfir árin 2020 til 2026. Varnarmálaráðuneytið segir enn óljóst hvað þær sýni.
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027